Var í mótorhjólagengi, sat inni en er nú kominn á Opna breska Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. mars 2025 10:30 Ryan Peake lék samtals á 23 höggum undir pari á Opna nýsjálenska mótinu og var einu höggi á undan næstu mönnum. afp/Michael THOMAS Ástralinn Ryan Peake tryggði sér sæti á Opna breska meistaramótinu í golfi með því að vinna Opna nýsjálenska meistaramótið. Hann sat í fangelsi á sínum yngri árum.
Þegar Peake var 21 árs var hann hluti af mótorhjólagenginu the Rebels og fékk fimm ára fangelsisdóm fyrir alvarlega líkamsárás. Peake sneri hins vegar blaðinu við og segir að golfið hafi átt stóran þátt í að koma sér á beinu brautina. „Ég er hálf orðlaus núna. Þetta breytir öllu. Þetta er rosaleg saga, rosalegt augnablik,“ sagði Peake eftir að hann vann Opna nýsjálenska mótið. „Ég vissi alltaf að ég gæti þetta. Það var bara spurning um hvenær ég myndi gera það. Þetta er það sem ég geri núna. Ég vil bara vera hér og spila golf.“ Peake þótti efnilegur kylfingur þegar hann yngri. Og meðan hann sat inni kom þjálfarinn Ritchie Smith að máli við hann og fékk hann til að byrja að spila golf á nýjan leik þegar hann yrði látinn laus. Auk þess að vinna sér þátttökurétt á Opna breska, sem fer fram á Norður-Írlandi 17.-20. júlí, fékk Peake 99.500 pund í verðlaunafé. Það jafngildir rúmlega sautján og hálfri milljón íslenskra króna.
Golf Opna breska Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira