Slydda og snjókoma víða um land Atli Ísleifsson skrifar 3. mars 2025 07:12 Eftir hádegi nálgast úrkomusvæði nýrrar lægðar úr suðri. Vísir/Vilhelm Djúp og kröpp lægð úti fyrir Norðvesturlandi beinir nú éljalofti til landsins, en hiti er nærri frostmarki víða hvar.
Á vef Veðurstofunnar segir að lægðin hreyfist rösklega austur á bóginn og fari því fljótlega að draga úr vindi og éljum. Veðurviðvaranir eru í gildi víða um land, en benda þurfi á að aðstæður til ferðalaga sé víða varasamar fram eftir morgni. „Eftir hádegi nálgast úrkomusvæði nýrrar lægðar úr suðri og með kvöldinu má búast við slyddu eða snjókomu víða um land. Hlýnar þó smám saman syðra og fer að rigna þar. Á morgun, þriðjudag snýst svo aftur í suðvestanátt með éljum, en styttir jafnframt upp um landið norðaustanvert. Dregur síðan úr vindi og kólnar smám saman seinnipartinn. Útlit er fyrir að hlé verði á umhleypingum þegar nær dregur helgi og er þá von á nokkrum rólegheitadögum, a.m.k. hvað veðrið varðar,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Gengur í suðvestan 13-20 m/s með éljum, en birtir til norðaustanlands. Hiti kringum frostmark síðdegis og dregur þá heldur úr vindi. Á miðvikudag: Gengur í austan og suðaustan 13-18 m/s með snjókomu eða slyddu, en rigningu syðst. Hlýnandi veður. Á fimmtudag: Fremur hæg norðlæg átt og snjókoma norðanlands, en annars hægviðri og víða él. Hiti kringum frostmark. Á föstudag og laugardag: Hæg breytileg átt, dálítil él á víð og dreif og talsvert frost. Á sunnudag: Hægviðri, víða bjart og áfram kalt veður.
Veður Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sjö ára dómur Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Innlent Fleiri fréttir Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Sjá meira