Forseti Hæstaréttar: „Mér er alveg sama þótt þetta séu tillögur frá einhverjum hópi“ Árni Sæberg skrifar 5. mars 2025 17:50 Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar, segir ástæðu fyrir því að ákveðið hafi verið að hafa sjö dómara við réttinn þegar Landsréttur var stofnaður. Vísir/Anton Brink Forseti Hæstaréttar segir af og frá að fækka dómurum við réttinn úr sjö í fimm, líkt og lagt er til í einni sextíu hagræðingartillagna sem lagðar voru fram í gær. Með tillögunni sé æðsta dómstigi þjóðarinnar sýnd vanvirðing.
Hagræðingarhópur ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur skilaði í gær af sér skýrslu sem inniheldur sextíu tillögur að aukinni ráðdeild í ríkisrekstri. Þrjár tillögur snerta Hæstarétt Íslands með einum eða öðrum hætti. Í fyrsta lagi er lagt til að dómurum við réttinn verði fækkað úr sjö í fimm, í öðru lagi að sérkjör dómara verði afnumin og í þriðja lagi að handhafalaun vegna forsetavalds verði lögð af. Forseti Hæstaréttar er einn þriggja sem fer með forsetavald þegar forsetans nýtur ekki við. Benedikt Bogason, forseti Hæstaréttar, segir seinni tillögurnar tvær sjálfsagðar og vert sé að skoða þær. Hins vegar sé af og frá að ætla að fækka Hæstaréttardómurum. Engin tilviljun að dómarar eru sjö Blaðamaður hafði þegar mælt sér mót við Benedikt í Hæstarétti til þess að ræða ársskýrslu Hæstaréttar, sem kemur út á næstu dögum, þegar fregnir af sparnaðartillögunni bárust. Því fór drjúgur hluti viðtalsins í að ræða fjölda dómara við réttinn. Þá ræddi hann við Véstein Örn Pétursson fréttamann, sem mun fjalla um viðbrögð við hagræðingartillögunum í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. Viðtal hans við Benedikt má sjá í heild sinni hér að neðan: Benedikt segir að þegar dómskerfinu hér á landi var breytt með stofnun Landsréttar árið 2018 hafi vandlega verið farið yfir það hversu margir dómarar ættu að sitja í Hæstarétti eftir breytingu. Þá voru dómendur níu talsins en með tilkomu Landsréttar var ljóst að álag á réttinn yrði minna, enda tók Landsréttur við hlutverki Hæstaréttar sem eini áfrýjunardómstóll landsins og Hæstiréttur varð fordæmisgefandi dómstóll. Benedikt segir að niðurstaðan hafi verið sú að dómendur yrðu sjö talsins og það hafi ekki verið af tilviljun. Dómarar séu aldrei færri en fimm í hverju máli en sjö í allra mikilvægustu málunum. Ljóst er að ekki væri hægt að hafa fjölskipaðan dóm Hæstaréttar ef aðeins væru fimm dómarar. Þá segir hann ótækt að hafa færri dómara en fimm í almennum málum enda séu dómarar í Landsrétti þrír í hverju máli. Fordæmisgildið væri minna ef jafnmargir dæmdu á æðsta dómstigi og því næstæðsta. Ekki hægt að æðsti dómstóllinn reiði sig á varaskeifur Benedikt segir helstu ástæðuna fyrir því að dómarar þurfi að vera sjö vera að ella væri það frekar regla en undantekning að kalla þyrfti til varadómara í Hæstarétti. Dómarar forfallist og fara í leyfi eins og aðrir. Til að mynda verði dómararnir aðeins sex út þetta ár. Benedikt Bogason segir afleita hugmynd að fækka dómurum við Hæstarétt.Vísir/Anton Brink „Dómarar eru vanhæfir, dómarar fara í námsleyfi eða rannsóknarleyfi, dómarar láta skipta um liði í sér eins og aðrir. Við erum að kljást við forföll, eðlileg forföll. Ef við erum bara fimm, fimm að dæma og fimm dómarar, þá þýðir þetta það að við værum örugglega með meira og minna einn settan alltaf. Svo værum við að kalla inn í einstök mál, eftir því sem fólk vantaði. Þannig að við værum með einn, tvo og jafnvel þrjá. Hvernig ætlar þú að hafa æðsta dómstól þjóðarinnar starfandi á þessum grundvelli?“ spyr Benedikt. Í áðurnefndri ársskýrslu Hæstaréttar segir að á öllu síðasta ári hafi þurft að kalla inn fjóra dómara. Benedikt segir það hafa verið í einni ákvörðun um áfrýjunarleyfi, þegar allir dómarar réttarins voru vanhæfir, og í einu eiginlegu máli. Veltir fyrir sér öðrum tillögum „Það verður líka að hafa í huga þrígreiningu ríkisvaldsins, þegar svona tillaga er sett fram. Ég tel að þarna hefði átt að hafa samráð við Hæstarétt og mér finnst réttinum sýnd mikil vanvirðing með þessari tillögugerð.“ Benedikt segir einu gilda hvaðan tillagan hafi komið og veltir fyrir sér vinnu við aðrar tillögur en þær sem snúa að réttinum. „Ég velti því fyrir mér, eru aðrar tillögur frá þessum hagræðingarhópi jafnilla ígrundaðar og þessi? Það er furðulegt að það sé ekki talað við réttinn áður en þetta er sett fram. Maður er alveg bit á þessu. Eins og ég sagði, það er verið að sýna réttinum mikil vanvirðing með þessu. Mér er alveg sama þótt þetta séu tillögur frá einhverjum hópi. Það hlaut að eiga sér stað einhver skoðun á því hvort að þarna væru tillögur sem væru gjörsamlega haldlausar, eins og þessi.“
Dómstólar Rekstur hins opinbera Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Innlent „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Innlent Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Innlent Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Fleiri fréttir Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjálfstæðisflokkur mælist stærstur Mikil tíðindi í nýrri fylgiskönnun Maskínu Þróunin mælist áfram hæg en stöðug Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Sjá meira