Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
Frá því ég var lítil hefur mér alltaf þótt skólinn, og nú vinnan, byrja alltof snemma .. foreldrar mínir geta staðfest það!
Þau eiga hrós skilið fyrir að vekja mig jafn oft og þau gerðu á yngri árunum. Svo stærsta áskorun hvers dags er klárlega að vakna og byrja daginn - allt eftir það er dans á rósum.
Ég vakna yfirleitt um svona sjö til níu leytið, eftir því hvernig dagurinn lítur út.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
„Mig dreymir um að verða einn daginn týpan sem vaknar fyrir allar aldir en ég hef játað mig sigraða og er farin að njóta þess að kúra aðeins lengur á morgnana.
Ég snooza því vekjaraklukkuna einu sinni .. eða tvisvar .. reikna svo hvað ég þarf langan tíma til að græja mig fyrir daginn til að mæta á réttum tíma og fer ekki á fætur mínútu fyrr. Fullkomin leið til að byrja daginn á rólegu nótunum, eða þannig, en það skiptir mig miklu máli að eiga rólega kvöldstund fyrir svefninn þess í stað.
Ég keypti mér reyndar geggjaðan dagljósalampa þegar ég byrjaði í verkfræðináminu. Hann á klárlega stóran hlut í meistaragráðunni - öðruvísi hefði ég eflaust alltaf misst af fyrsta fyrirlestri dagsins. Ég vonaðist til að lampinn myndi breyta mér í A-týpu á einni nóttu en sú von er aðeins farin að dvína, þó ég noti hann enn vongóð alla daga.“
Ef þú værir hetja í teiknimynd, hver værir þú þá?
„Fyrsta sem mér dettur í hug er Gló magnaða (e. Kim possible), kann enn textann við intro-ið sem Birgitta Haukdal söng. Gló er svo venjuleg að mörgu leyti en ætlar samt að bjarga heiminum. Algjör stelpuhetja sem er vinur vina sinna og hikar ekki við að takast á við áskoranir og hjálpa fólkinu í kringum sig.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Ég er í mörgum spennandi þróunarverkefnum fyrir jarðvarmavinnslu okkar hjá Landsvirkjun. Mjög skemmtilegt að taka þátt í vegferð fyrirtækisins sem er leiðandi í loftslags- og umhverfismálum.
Samhliða vinnu gegni ég stjórnarsetu í félagi Ungra athafnakvenna. UAK stendur fyrir árlegri ráðstefnu sinni í dag sem ber heitið Innri áttavitinn - Leiðin liggur til allra átta. Þemað í ár undirstrikar mikilvægi þess að þora að treysta okkur sjálfum og hafa sjálfstraustið til að fara okkar eigin leiðir. Við hvetjum gesti til að staldra við, hlusta á innsæið og skoða þau gildi sem móta stefnu þeirra í lífinu.“
Ein besta ákvörðun sem ég hef tekið var að skrá mig í félagið og stækka tengslanetið til allra átta. Mér þykir mjög vænt um UAK og allr þær mögnuðu konur sem ég hef kynnst í gegnum félagið. Konur eru konum bestar eru svo sannarlega orð að sönnu.“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
„Ég nota mest Planner í Teams til að halda utan um verkefnin mín. En í daglega lífinu er ég mikill aðdáandi Calendar og Notes í símanum, og skrifa bókstaflega allt þangað inn til að fá góða yfirsýn yfir það sem er framundan og to do listana.“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Heiðarlegt svar? Mjög misjafnt, en yfirleitt of seint. Ég elska kósýkvöldin mín heima og vil helst ekki sofna fyrir miðnætti.
Eftir vinnu finnst mér frábært að njóta heima á Kársnesinu - hvort sem það er göngutúr meðfram sjónum, æfing í GoMove eða sund í Kópavogslaug sem er í miklu uppáhaldi. Kársnesið minnir mig alltaf smá á Akureyri, heimabæinn minn.
Svo á ég það til að gleyma mér í prjónaskap, bakstri, föndurverkefni eða öðru skemmtilegu á kvöldin og þá helst korter í miðnætti.
Bestu hugmyndirnar fæðast einfaldlega þegar ég er komin í góða ró eftir daginn.
En þegar fer að líða á kvöldið læðist alltaf smá samviskubit að mér og minnir mig á að það væri nú skynsamlegt að skríða undir sæng og fara að sofa enda góður nætursvefn lykillinn að góðri heilsu.“