Saka sneri aftur og skoraði í sigri Skyttnanna 1. apríl 2025 21:00 Það tók Saka ekki langan tíma að láta til sín taka. Sebastian Frej/MB Media/Getty Images Bukayo Saka sneri aftur úr meiðslum og setti seinna mark Arsenal í 2-1 sigri gegn Fulham í þrítugustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Mikael Merino tók forystuna fyrir Arsenal með marki skömmu fyrir hálfleik. Liðið hafði verið ágætlega spilandi fram að því en átt í vandræðum með að skapa sér marktækifæri, þar til Merino laumaði boltanum framhjá varnarmönnum og í fjærhornið. Bukayo Saka steig svo aftur inn á völlinn um miðjan seinni hálfleik eftir langa fjarveru og var ekki lengi að láta til sín taka. Aðeins um fimm mínútum eftir að hann kom inn á fékk hann fyrirgjöf frá Gabriel Martinelli og stangaði boltann í netið. Rodrigo Muniz minnkaði muninn fyrir Fulham með marki upp úr skyndisókn, en sigur heimamanna var þá þegar orðin staðreynd. Níu stigum munar nú milli Arsenal og Liverpool, sem á leik til góða gegn Everton annað kvöld. Jørgen Strand Larsen skoraði eina markið í sigri Úlfanna. Jack Thomas - WWFC/Wolves via Getty Images Wolverhampton Wanderers tóku á móti West Ham á sama tíma í kvöld og unnu 1-0 sigur þökk sé marki Jörgen Strand Larsen á 21. mínútu. Úlfarnir breikkuðu þar með bilið milli sín og fallsvæðisins í tólf stig. Enski boltinn