„Fróunarklefinn“, versti leikstjóri heims og Teslu-skömmin Jón Þór Stefánsson skrifar 1. apríl 2025 22:57 Teslu-skömm, HoppAir, sjálfugjald, Tommy Wiseau, og DJ Margeir. Allt kom þetta fyrir í aprílgöbbum dagsins. Á hverju ári hlaupa margir apríl og líklega var engin undantekning á því þetta árið. Fjölmiðlar, fyrirtæki, stofnanir og auðvitað óbreyttir borgarar reyndu að plata aðra upp úr skónum með misgáfulegum aprílgöbbum.
Vísir tók saman brot af bestu aprílgöbbunum 2025. Tesla til sölu á slikk vegna áreitis Aprílgabbið á Vísi þetta árið varðaði Teslueiganda sem var orðinn langþreyttur á áreitinu sem fylgir því að eiga slíkan bíl. Hann sagðist því tilbúinn að selja bílinn á slikk. „Fyrstur kemur, fyrstur fær,“ sagði Sveinn Waage, umræddur Teslu-eigandi. Undanfarið hefur verið mikið um fréttir erlendis, og eitthvað líka hér á landi, af skemmdarverkum sem unnin hafa verið á Teslum. „Nú líður mér eins og allir séu að horfa á mig. Og dæma mig,“ sagði Sveinn. Hann hefði orðið var við rispu á bíl sínum, sem hann sagði ljóst að væri vegna skemmdarverks, þó hann hefði engar beinar sannanir. Hann sagði því komið nóg og ætla að selja bílinn langt undir markaðsvirði. „Ég vil bara selja þennan bíl, losna við Elon Musk úr mínu lífi og verða frjáls maður á ný.“ Í fréttinni fylgdi símanúmer sem áhugasamir um kaup á Teslunni gátu hringt í. Á annað hundrað manns hringdu í númerið í dag. Heitir núna DJ Plötusnúðurinn Margeir Steinar Ingólfsson, sem er betur þekktur sem DJ Margreir, greindi frá nafnabreytingu sinni í færslu á Facebook. „Það eru mikil tímamót í mínu lífi – eftir langa umhugsun, ítarlegan rökstuðning og nokkrar ferðir í gegnum kerfið hef ég fengið formlega staðfestingu frá Þjóðskrá og Mannanafnanefnd: Héðan í frá heiti ég DJ Margeir Steinar Ingólfsson,“ skrifaði hann. Hann sagði að það hafi verið farið að flækja lífið að vera bæði einstaklingurinn Margeir og hins vegar listamaðurinn DJ Margeir. „Nafnið „DJ“ hefur orðið óaðskiljanlegur hluti af minni tilveru – og það var kominn tími á að sjálfsmyndin rímaði við raunveruleikann. Ég þurfti að rökstyðja málið mjög vandlega og sýna fram á að þetta væri hvoru tveggja persónuleg og menningarleg ákvörðun. Sem betur fer fékk ég skilning – og samþykki.“ Árnastofnun eyðir orðum Mbl.is greindi frá því að Árnastofnun hygðist eyða orðum úr gagnagrunni sínum vegna plássleysis í gagnageymslum. Fram kom að orðum sem ekki hefði verið flett upp á vefnum malid.is síðastliðinn fimm ár yrðu eytt. Tekin voru dæmi um nokkur orð sem myndu hverfa úr safninu, en þau voru: „aðhneiging, drymbildrútur, dugandlegur, glatarí, hnóhnika, jarðvarp, lýðskyldur, mótorhjólhestur, nítugur, nýsmánlegur, rampóneraður, reiknishaldari, röskvi, skýjablesi, slauksamur, svíri, tísaldalegur, tísaldarlegur, traðjóla og veðurkápa.“ Haft var eftir Helgu Hilmisdóttur, sviðsstjóra íslenskusviðs Árnastofnunar, að henni þætti sum orðin „hreinlega ljót“. „Þetta hljómar ekkert sérstaklega fallega fyrir mér,“ átti Helga að hafa sagt. HoppAir Rafhlaupahjóla-fyrirtækið Hopp greindi frá nýrri þjónustu í dag. Svo virtist sem að Hopp ætlaði að hasla sér völl á flugmarkaðinum, en þó með óvenjulegum hætti, þar sem notendur hennar virtust eiga að sjá um að fljúga sjálfir. „Nú getur þú hoppað innanlands á rafmagnsrellu. Við stækkum flotann og aukum við þjónustu Hopp Reykjavíkur með HoppAir! Við trúum því að loftið sé fyrir alla og bjóðum uppá grænar samgöngur hvert sem þú ferð,“ sagði í færslu á samfélagsmiðlum. Versti kvikmyndagerðarmaður heims á Íslandi Bíó Paradís greindi frá því í dag að Tommy Wiseau, kvikmyndagerðarmaður sem er þekktastur fyrir The Room, væri kominn til Íslands. „Tommy Wiseau er mættur á klakann! Hann ætlar að hitta aðdáendur og gefa út eiginhandaráritanir í Bíó Paradís kl 12:00 í hádegishléinu sínu! Endilega komið og fagnið!“ sagði í Facebook-færslu bíóssins. The Room, sem er frá 2003, þykir ein alversta kvikmynd sem gerð hefur verið, en Wiseau skrifaði handritið, leikstýrði, framleiddi og lék aðahlutverkið í myndinni. Vegna þess hversu slæm hún er þykir hún þó skemmtileg áhorfs og hefur hún reglulega verið sýnd hér á landi. Alvöru draumur fyrir Liverpool-menn Tommy Wiseau var ekki sá eini sem var sagður vera kominn hingað til lands. Á Facebook-síðu knattspyrnuverslunarinnar Jóa útherja var greint frá því að Liverpool-goðsögnin John Barnes væri á Íslandi. „Hann verður á staðnum að árita, spjalla og taka myndir – alvöru draumur fyrir alla Liverpool aðdáendur!“ Ekki þingfundur heldur þinghundur Á Instagram-síðu Alþingis var greint frá því að þinghundur myndi taka til starfa á þinginu í dag. „Það er varla til betri staður til að frumsýna hvutta en í Alþingisgarðinum, en þar stendur stytta af Tryggva Gunnarssyni, alþingismanni og dýravini. Tryggvi stofnaði Dýraverndunarfélag Reykjavíkur árið 1914 og var fyrsti formaður þess og því svo sannarlega brautryðjandi í dýraverndarmálum á Íslandi. Verið öll hjartanlega velkomin að hitta hundinn í garðinum kl. 15 í dag.“ View this post on Instagram A post shared by Alþingi (@althingi) Flugvél breytt í landslagslistaverk Víkurfréttir greindu frá því að skrokkur Icelandair-þotu, af gerðinni Boeing 757, hefði verið fluttur með pramma að ströndinni við Sandvík á Reykjanesi nóttina áður. „Þar á vélinni að verða komið fyrir í svörtum sandinum, rétt ofan flæðamáls, sem hluti af nýju verkefni sem miðar að því að laða ferðamenn að svæðinu með óvenjulegu landslagslistaverki,“ sagði á vef Víkurfrétta. Jafnframt kom fram að ekki lægi fyrir hvort gestum yrði hleypt inn í skrokkinn, en þó væri mögulegt að opna þar kaffihús síðar meir. „Þotan mun standa sem minnisvarði um íslenskt flug, gosbeltin og framtíðarsýn á svæði sem hefur verið í mikilli þróun frá eldsumbrotum.“ Dúbaí-súkkulaði út um allt Ný vara sem var kynnt til leiks var frá steinefnadrykkjarframleiðandanum Happy Hydrate. Þeir sögðust vera að bjóða upp á nýtt bragð, dúbaí-súkkulaði. Hvað er Dúbái-súkkulaði? Bjarki Sigurðsson fréttamaður fjallaði um fyrirbærið á dögunum. Sjá nánar. Sjálfugjald á Þingvöllum Á Facebook-síðu þjóðgarðarins á Þingvöllum var greint frá því að á næsta ári myndi hefjast gjaldtaka á svokölluðum sjálfum, eða sjálfsmyndum, í þjóðgarðinum. „Spretthópur hefur í dag tilraunir með nýja gjaldheimtu á hegðun, atferli og framkomu ferðamanna á Þingvöllum. Tillagan kom fram í samtali við þjóðina um breytingar í ríkisskerfinu og ítarlegri leiðir til tekjuöflunar af ferðaþjónustunni í landinu. Helst þessi nýja tekjuöflun í hendur við nýútkomna fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem nær yfir árin 2026-2030,“ sagði í færslunni. „Sjálfugjaldið nær yfir svæðið í kringum Almannagjá, þar sem flestir sjálfhverfir ferðamenn fara um og setja sjálfa sig í öndvegi mynda sinna. Þeir verða samkvæmt tillögum spretthóps rukkaðir eftir; fjölda sjálfumynda, lengd myndskeiða, samkvæmt birtingu og hvort verið sé að taka landslagsmynd eða andlitsmynd.“ Fram kom að blaðamannafundur yrði haldinn vegna þessa klukkan fimm í dag. „Fróunarklefinn“ Kynlífstækjaverslunin Blush kynnti nýjung í verslunum sínum í dag, svokallaðan fróunarklefa. „Þetta einstaka rými gefur viðskiptavinum tækifæri til að velja vöru úr verslun sér að kostnaðarlausu, prófa hana og gefa vörunni umsögn. Markmiðið er að gefa viðskiptavinum tækifæri til að prófa sig áfram með vörur, finna hvað það er sem henta, taka upplýsta ákvörðun og um leið gefa umsagnir sem hjálpa öðrum í leit að hinu fullkomna kynlífstæki,“ sagði í færslu á Facebook. „Lagt hefur verið mikið í hönnun og uppsetningu á fróunarklefanum. Þar er lögð áhersla á notalegt en seiðandi andrúmsloft þar sem viðskiptavinir fá fullkomið næði til að fróa sér. Rýmið er hljóðeinangrað og notendur geta verið vissir um að öryggi þeirra sé tryggt. Klefinn hefur allt það helsta sem þarf eins og sleipiefni, blautþurrkur og handklæði þar sem vel er hugað er að hreinlæti. Viðskiptavinir velja vöru að eigin vali sér að kostnaðarlausu, prófa vöruna og fylla út umsagnar eyðublað.“ Conor kaupir klár Á vef Eiðfaxa var greint frá því að írski bardagakappinn Conor McGregor hefði keypt hestinn Tuma frá Jarðbrú, sem vann ásamt knapa sínum, ungmennaflokkinn á Landsmóti hestamanna síðasta sumar. „Gunnar [Nelson] hafði samband við mig í byrjun árs og spurði hvort ég ætti ekki einhvern góðann graðhest til sölu en hann væri að leita fyrir vin sinn. Mér datt strax Tumi í hug enda mikill gæðingur, fallegur, rúmur og með frábært geðslag,“ var haft eftir Sigurði Matthíassyni, sem var sagður hafa haft milligöngu um sölu á folanum
Aprílgabb Grín og gaman Tengdar fréttir Konungshjón á gönguskíðum, Katrín til forseta og nýtt flugfélag Fyrirtæki, vefmiðlar og aðrir hrekkjalómar gerðu sitt allra besta til þess að gabba landsmenn í dag. Uppátækin voru allavega; konungshjón á gönguskíðum, litakóðað bókasafn og nýtt flugfélag. Vísir tók saman brot af því besta. 1. apríl 2024 18:53 Konungshjón á gönguskíðum, Katrín til forseta og nýtt flugfélag Fyrirtæki, vefmiðlar og aðrir hrekkjalómar gerðu sitt allra besta til þess að gabba landsmenn í dag. Uppátækin voru allavega; konungshjón á gönguskíðum, litakóðað bókasafn og nýtt flugfélag. Vísir tók saman brot af því besta. 1. apríl 2024 18:53 Love Island, kynlífstæki og pósthross Margir hlupu eflaust apríl í gær. Fjöldi fyrirtækja tók þátt í þessari alþjóðlegu hefð; Elko sagðist ætla að opna nýja verslun á Tenerife, Krónan auglýsti grænmetisfyllt páskaegg, Pósturinn boðaði umhverfisvæna aðgerð með dreifingu pósts á hestbaki, ný göng undir Selfoss áttu að verða að veruleika og svo lengi mætti telja. 2. apríl 2023 07:58 Mest lesið Talsmaður Hvíta hússins segir að Carpenter hljóti að vera heimsk Lífið Best klæddu stjörnurnar samkvæmt Vogue Lífið Halda aðra tónleika á Íslandi fyrir þá sem misstu af Tónlist Íslensk raunveruleikastjarna í Svíþjóð: „Þetta var fokking erfitt, sérstaklega fyrir líkamann“ Lífið „Mig langar að elska þig alla daga, ævilangt“ Lífið Halla fær að koma inn í eldhúsið tvisvar á ári Lífið Þessi eru tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna Lífið Sýnilegri í senunni á meðgöngunni Menning Það skrítnasta á djamminu: Amfetamín inni á klósetti og fólk að ríða Menning „Þú veist þú varst að fara að reykja krakk, er það ekki?“ Lífið Fleiri fréttir Best klæddu stjörnurnar samkvæmt Vogue Þessi eru tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna Fannar leitaði lengi að transbrauði „Mamma, ég gat þetta“ Opnar sig um kaupfíkn sem kviknaði þegar hún var sjö ára Gummi skíthræddur við Sigurjón Kjartans Þessi stóðu upp úr hjá Spotify í ár „Mig langar að elska þig alla daga, ævilangt“ „Lendir auðvitað í því að vera alltaf málaður upp sem voðalega vondur“ Siggi Ingvars og Alma Finnboga fjölga sér Talsmaður Hvíta hússins segir að Carpenter hljóti að vera heimsk Hræðilegra að syngja með Bítinu en að fara í fallhlífastökk Íslensk raunveruleikastjarna í Svíþjóð: „Þetta var fokking erfitt, sérstaklega fyrir líkamann“ „Þú veist þú varst að fara að reykja krakk, er það ekki?“ Halla fær að koma inn í eldhúsið tvisvar á ári Taka í gegn fjölskylduhús í Eyjum með einstöku útsýni Selfyssingar unnu Skjálftann með verki um hinsegin bakslag Ástin blómstrar hjá Arndísi Önnu og Lindu A-teens og tveir fyrrverandi sigurvegarar taka þátt í Melodifestivalen Segir Sinatra hafa verið „risavaxinn“ neðan beltis Bílakarókí með Bítinu: „Rændirðu henni?“ „Besta byrjun á desember sem hægt var að hugsa sér“ Radiohead frestar tónleikum sínum í Köben Vann ekki úr nauðguninni og skaddaðist á mænu Kim mældist með „litla heilavirkni“ Fagnaði 35 árum með stæl í Kólumbíu Stjörnulífið: Ólétta og ást í 23 ár Er hægt að njóta kynlífs þrátt fyrir mikla áfallasögu? Fela einhverfu til að passa inn MTV hættir að sýna tónlistarmyndbönd allan sólarhringinn Sjá meira
Konungshjón á gönguskíðum, Katrín til forseta og nýtt flugfélag Fyrirtæki, vefmiðlar og aðrir hrekkjalómar gerðu sitt allra besta til þess að gabba landsmenn í dag. Uppátækin voru allavega; konungshjón á gönguskíðum, litakóðað bókasafn og nýtt flugfélag. Vísir tók saman brot af því besta. 1. apríl 2024 18:53
Konungshjón á gönguskíðum, Katrín til forseta og nýtt flugfélag Fyrirtæki, vefmiðlar og aðrir hrekkjalómar gerðu sitt allra besta til þess að gabba landsmenn í dag. Uppátækin voru allavega; konungshjón á gönguskíðum, litakóðað bókasafn og nýtt flugfélag. Vísir tók saman brot af því besta. 1. apríl 2024 18:53
Love Island, kynlífstæki og pósthross Margir hlupu eflaust apríl í gær. Fjöldi fyrirtækja tók þátt í þessari alþjóðlegu hefð; Elko sagðist ætla að opna nýja verslun á Tenerife, Krónan auglýsti grænmetisfyllt páskaegg, Pósturinn boðaði umhverfisvæna aðgerð með dreifingu pósts á hestbaki, ný göng undir Selfoss áttu að verða að veruleika og svo lengi mætti telja. 2. apríl 2023 07:58
Íslensk raunveruleikastjarna í Svíþjóð: „Þetta var fokking erfitt, sérstaklega fyrir líkamann“ Lífið
Íslensk raunveruleikastjarna í Svíþjóð: „Þetta var fokking erfitt, sérstaklega fyrir líkamann“ Lífið