Laumaði sér í vasa ferðamanns og hirti af honum kortin Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. apríl 2025 12:22 Á rauðu hringjunum má sjá konuna fara með hönd sína í vasa ferðamannsins. Myndbandið má sjá að neðan. Gerð var tilraun til að nota stolin greiðslukort í verslun í miðbæ Reykjavíkur síðdegis í gær. Þeim hafði fyrr um daginn verið stolið af ferðamanni sem beið eftir því að Strokkur sýndi listir sínar í Haukadal. Myndband náðist af stuldinum.
Myndbandið er í nokkurri dreifingu á samfélagsmiðlum og má sjá að neðan. Þar sést erlend kona með hjálp félaga sinna læðast í vasa grandalauss ferðamanns. Þjófarnir horfa í myndavélina, sem þeir telja vera að mynda goshverinn, en virðast ekki átta sig á því að um er að ræða 360 gráðu myndavél. Samkvæmt heimildum fréttastofu bar búðarkona í miðbæ Reykjavíkur kennsl á fólkið í gær. Það reyndi að nota greiðslukort í ferðamannaverslun en var hafnað. Viðkomandi dró upp annað kort og var því hafnað sömuleiðis að sögn búðarkonunnar. Verslunareigandi segir að á meðan hafi félagar konunnar fyllt stóra Icewear-poka af vörum úr búðinni. Verslanaeigandinn vill ekki koma fram undir nafni. Borið hefur á því að hann hafi verið sakaður um útlendingaandúð fyrir að hafa vakið athygli á slíkum þjófnaði á samfélagsmiðlum með myndbirtingum. „Galdramenn“ á ferðinni Vísir fjallaði um þjófnað í Gullsmiðju og listmunahúsi Ófeigs á Skólavörðustíg í gær. Bolli Ófeigsson gullsmíðameistari segir bakka fullum af gullmunum hafa verið stolið og mögulega fleiru. „Ég veit að ég fæ þetta aldrei til baka. En ég er bara að reyna að vara fólk við. Ef það sér þetta fólk, þá eru þau stórhættuleg,“ segir Bolli sem birtir myndir af fólkinu á Facebook. Hann segist hafa áreiðanlegar heimildir fyrir því að um sé að ræða gengi sem hafi leikið fólk grátt á ferðamannastöðum, líkt og á Þingvöllum, með vasaþjófnaði. Bolli veit ekki til þess að lögreglan hafi haft hendur í hári gengisins. Það gæti reynst erfitt. Bolli telur að meðlimir gengisins dvelji á gistiheimilum en haldi sig einungis í eina nótt á hverjum stað. Þau séu því sífellt á ferðinni. „Þau kunna þetta bara. Þetta er eins og er verið að vara mann við í Barselóna. Þetta eru galdramenn.“ Stolið af konu á fyrsta degi ferðalags Verslanaeigandi í miðbænum sem fréttastofa ræddi við í morgun segir um stórt vandamál að ræða. Hann nefnir sem dæmi ferðakonu sem hafi orðið fyrir barðinu á skipulögðum vasaþjófnaði fyrir tveimur til þremur mánuðum. Sú var á fyrsta degi Íslandsheimsóknar sinnar þegar hún uppgötvaði að búið var að stela vegabréfinu hennar og öllum kortum. Á tveimur klukkustundum hafi verið búið að fylla á tvo bíla og kaupa ýmsa muni í búðum í miðbæ Reykjavíkur. Konan hafi fylgst með notkuninni og séð að ein kaupin áttu sér stað í verslun viðmælanda Vísis. Hún mætti því í búðina til að vekja athygli á þjófnaðinum. Verslanaeigandinn segir upptökur hafa náðst af kaupunum. Maður hafi verið að kaupa dýrt sjal á konu. Allt virst voðalega rómantískt. Fólkið hafi meira að segja komið aftur í verslunina og reynt að kaupa meira en þá hafi konan verið búin að loka kortinu og fólkið horfið á braut. Verslanaeigandinn lýsir því að hafa birt myndir af þjófunum á Facebook, í trássi við persónuverndarsjónarmið og almenn tilmæli lögreglu, og hlotið mikil viðbrögð. Annars vegar frá fólki sem blöskraði þjófnaðurinn og ástand í miðbænum og hins vegar frá fólki sem sakaði hann um útlendingaandúð. Færslu hans hafi verið eytt. Hann segist ekki tilbúinn í annan eins slag að svo stöddu og vill því ekki koma fram undir nafni. Hann leggur áherslu á að tímabært sé að lögregla verði sýnilegri í miðbæ Reykjavíkur. Þjófarnir séu óttalausir. Óeinkennisklæddir lögreglumenn Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, ræddi erlendu glæpahópana í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í gær. Dæmi eru um að ferðamaður hafi verið rændur og greiðslukort hans notuð fyrir tæpa milljón króna. Hann sagði skipulagða glæpahópa senda fólk til landsins til að stunda vasaþjófnað og það hverfi svo af landi brott áður en að lögreglunni tekst að hafa hendur í hári þeirra. Tuttugu mál séu á borði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og önnur tuttugu á borði lögreglunnar á Suðurlandi. Ásmundur sagði lögregluna á Suðurlandi hafa hrundið af stað átaki til að sporna við vasaþjófnaði. Þá væri lögreglan á höfuðborgarsvæðinu með óeinkennisklædda lögreglumenn á helstu ferðamannastöðum í borginni, Skólavörðustíg og Laugarvegi. Enn hefði þó ekki tekist að koma í veg fyrir vasaþjófnað eða að handtaka þjófana. „Ef fólk verður vitni að einhverju svona að þá tilkynna til lögreglu um leið, bara staðsetningu, og við munum reyna að bregðast við eins hratt og við getum því við viljum reyna að hafa hendur í hári þessa fólks,“ sagði Ásmundur.
Lögreglumál Ferðaþjónusta Verslun Bláskógabyggð Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira