Upp­gjörið: Stjarnan - Grinda­vík 108-100 | Stjarnan skrefinu á undan

Siggeir Ævarsson skrifar
Ægir Þór Steinarsson fór á kostum í kvöld, 29 stig og 13 stoðsendingar
Ægir Þór Steinarsson fór á kostum í kvöld, 29 stig og 13 stoðsendingar vísir / jón gautur

Stjarnan tók á móti Grindavík í kvöld í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Bónus-deildar karla en fyrir leikinn í kvöld hafði Grindavík ekki unnið sigur á Stjörnunni utan Grindavíkur síðan í febrúar 2018. Á því varð engin breyting í kvöld en Stjarnan fór að lokum með sigur af hólmi, 108-100.

Grindvíkingar byrjuðu leikinn með miklum látum, þá sérstaklega Daniel Mortensen, sem setti þrjá þrista í röð í byrjun leiks og kom Grindvíkingum í 2-11. Heimamenn voru að hitta afar illa í byrjun en náðu smám saman að stilla miðið. Hilmar Henningsson setti niður tvo þrista undir lok fyrsta leikhluta og staðan 26-25 Stjörnunni í vil.

Leikurinn var svo algjörlega í járnum fram að hálfleik. Grindvíkingar voru í stökustu vandræðum með að dekka Ægi Þór Steinarsson sem annað hvort skoraði sjálfur eða kom boltanum fljúgandi Shaquille Rombley sem tróð með látum.

Ægir átti svo lokaorðið í hálfleiknum þegar hann setti niður körfu með stóru tána á þriggjastiga línunni, staðan 47-44 í hálfleik en á þeim tímapunkti var Jeremy Pargo með núll stig þrátt fyrir átta skottilraunir.

Stjörnumenn áttu virkilega góðan þriðja leikhluta meðan að Grindvíkingar virtust fyrst og fremst pirraðir. Að DeAndre Kane hafi t.d. ekki fengið tæknivillu í leikhlutanum er rannsókarefni. Heimamenn gengu á lagið og komu muninum upp og leiddu með átta fyrir lokaleikhlutann, 75-68.

Lélegt hittni heimamanna í byrjun átti heldur betur eftir að breytast en sóknarleikur Stjörnunnar varð bara beittari og beittari eftir því sem á leið og Grindvíkingar réðu illa við Ægi Þór og Hilmar Smára sem skoruðu 29 og 27 stig.

Ólafur Ólafsson gerði mjög heiðarlega tilraun til að koma Grindvíkingum aftur inn í leikinn í upphafi fjórða leikhluta þar sem hann skoraði fjóra þrista í röð og minnkaði muninn í 85-83 en þá skelltu heimamenn í gírinn og kláruðu leikinn að lokum nokkuð örugglega, 108-100.

Atvik leiksins

Þetta var leikur sem var stútfullur af glæsilegum tilþrifum og það væri hægt að velja margt undir þennan lið. Þristarnir fjórir frá Ólafi Ólafssyni kæmu sterklega til greina ef Grindavík hefði náð að fylgja þeim eftir og vinna leikinn.

Undir lok leiksins setti Ægir Þór alveg fáránlega körfu. Skotklukkan að renna út og færið alveg galið og skotið í rauninni líka en einhvern veginn spýttist boltinn ofan í körfuna. Þessi karfa var kannski lýsandi fyrir það hvernig stjörnurnar röðuðust upp fyrir Stjörnuna í kvöld.

Stjörnur og skúrkar

Ægir Þór Steinarsson spilaði eins og kóngur í kvöld og ljóst að Grindvíkingar verða að stilla varnarleikinn eitthvað upp á nýtt. 29 stig frá honum og 13 stoðsendingar. Þá átti Hilmar Smári Henningsson einnig frábæran leik og skoraði 27 stig, og var fimm af átta í þristum.

Það er eiginlega ekki hægt að sleppa því að minnast á þátt Bjarna Guðmanns Jónssonar. Hann spilaði aðeins tíu mínútur í kvöld en á þeim tíu mínútum komst hann inn að innstu sálarrótum DeAndre Kane og kom honum hressilega úr jafnvægi.

Hjá Grindavík var Daniel Mortensen sjóðandi heitur til að byrja með og endaði að lokum stigahæstur með 27 stig. Hann setti niður fjögur af fimm þriggjastiga skotum sínum og hefði að ósekju mátt skjóta meira. 

Ólafur Ólafsson snögghitnaði í fjórða leikhluta og endaði með 26 stig en því miður fyrir Grindvíkinga náðu félagar hans ekki að fylgja honum eftir á þeim tímapunkti.

Grindvíkingar eiga Jeremy Pargo nær algjörlega inni en hann klikkaði úr tíu af fyrstu skotunum sínum og endaði með sjö stig og sjö stoðsendingar. Tapaði að vísu engum bolta en Grindvíkingar verða að fá meira út úr fyrrum NBA leikmanni sínum sem er að fara að spila þrír á þrjá með Joe Johnson í sumar.

DeAndre Kane sömuleiðis í engum takti við leikinn í kvöld. Brenndi af fjölda færa undir körfunni en hann setti aðeins sex skot niður í 20 tilraunum.

Dómararnir

Sigmundur Már Herbertsson, Bjarki Þór Davíðsson og Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson dæmdu leikinn í kvöld og miðað við umræðuna á samfélagsmiðlum eru skiptar skoðanir á frammistöðu þeirra. Sumum fannst þeir leyfa Stjörnumönnum að komast upp með full mikið en á móti kemur fannst mér þeir ekkert ósanngjarnir við Grindvíkinga. 

Línan var að mínu mati nokkuð skýr og Stjörnumenn voru einfaldlega mun nær henni en Grindvíkingar í kvöld.

Stemming og umgjörð

Allt til fyrirmyndar í Umhyggjuhöllinni, fullt hús og mikill glaumur og gleði. Rosaleg læti í Stjörnumönnum í stúkunni og níðsöngvarnir og hrópin að mestu innan siðsamlegra marka.

Viðtöl

Jóhann Þór: „Bara nokkrir hlutir sem við þurfum að laga og bara vera klárir á fimmtudaginn“

Jóhann Þór ætlar að laga nokkra hluti fyrir næsta leikVísir/Diego

Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, var ekki á því að „leikur“ Stjörnunnar hefði orðið ofan á í kvöld.

„Já og nei bara. Við bara náðum aldrei takti varnarlega. Við vorum einhvern veginn alltaf á eftir og náðum aldrei takti varnarlega. Þar af leiðandi verður þetta bara erfitt og allir þeirra helstu hestar eru í takti allan leikinn. Varnarlega erum við ekki nógu beittir í kvöld. Stuttur tími en við þurfum að finna lausnir fljótt og laga þetta fyrir fimmtudaginn.“

Ægir Þór fór illa með Grindvíkinga í kvöld og Jóhann var ekki sáttur með hvernig hans menn vörðust honum í kvöld. En hann ætlar þó ekki að dvelja lengi við það.

„Við bara gerðum ekki nægilega vel, það er ekki flókið. Planið einhvern veginn gekk ekki upp. Svo fara ákvarðanatökur að vera asnalegar í kringum það og þá einhvern veginn riðlast allt. Við erum alveg inni í þessu allan tímann en samt finnst mér við eiga helling inni. Þannig að það eru bara nokkrir hlutir sem við þurfum að laga og bara vera klárir á fimmtudaginn. Það er bara ekkert annað í boði. Við getum verið svekktir núna í einhvern tíma en svo er þetta bara áfram gakk og „on to the next one“.“

Jóhann og bekkurinn hjá Grindvíkingum fengu tvær tæknivillur í kvöld og Jóhann tók undir að þeir hefðu mögulega aðeins misst hausinn en fannst þó að hann hefði haft rétt á að mótmæla því sem kom upp á. Varnarleikurinn var honum áfram hugleikinn.

„Mögulega. Við kannski fórum að einbeita okkur að hlutum sem við stjórnum ekki en mér fannst við eiga fullan rétt á mótmælum í öll skiptin. En það er bara leikurinn og bara partur af prógramminu. Við hefðum alveg getað gert aðeins betur þar en bara heilt yfir er vörnin ekki nógu góð og þar af leiðandi verðum við undir hér í kvöld.“

Eftir að Ólafur Ólafsson raðaði niður þristum var það varnarleikurinn sem varð Grindvíkingum að falli sem fyrr.

„Við fáum alltaf körfu í andlitið. Varnarlega erum við bara á hælunum og eru bara ekki nægilega góðir. Það er leikurinn. Við erum alltaf að elta, samskiptaleysi og asnalegar færslur. Bara allskonar hlutir sem eru ekki í lagi og því fór sem fór.“

DeAndre Kane og Jeremy Pargo voru alls ellefu af 39 í skotum í kvöld og voru langt frá sínu besta. Jóhann sagði þó að það hefði ekkert komið þeim á óvart í varnarleik Stjörnunnar.

„Svo sem ekki. Við vissum að þeir myndu pressa og allt það. Við gerum 100 stig. Það skiptir engu máli hver er að setja stig á töfluna. Hundrað stig á að vera nóg. Við náum aldrei takti varnarlega og þar af leiðandi erum við ekki í takti í kvöld.“

Baldur Þór Ragnarsson: „Þetta var helvíti gott í dag en erfitt á öllum vígstöðvum“

Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari StjörnunnarVísir/Anton Brink

Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stjörnunnar, var kampakátur með úrslit kvöldsins og frammistöðu sinna manna.

„Náttúrulega bara rosalegur úrslitakeppnisleikur. Svaka orka út um allt á báðum endum. Strákarnir töffarar, það er bara svoleiðis. Vorum að fá einhverjar auðveldar körfur hér og þar. Strákarnir gera vel, margir góðir í dag og skora mikið.“

Ægir Þór var í miklum ham í kvöld og það kom Baldri ekki á óvart.

„Bara búinn að vera geggjaður í þessari úrslitakeppninni og mun halda því áfram. Þekkir þetta út og inn og frábær leikmaður. Bara gaman þegar menn eru að gera góða hluti.“

Grindvíkingar virkuðu pirraðir á köflum en Baldur vildi lítið ræða um það, heldur einbeitti sér að sínu liði.

„Við náum náttúrulega áhlaupi og setjum góð skot. Hilmar í gír. Þetta var helvíti gott í dag en erfitt á öllum vígstöðvum.“

Ólafur Ólafsson: „Höldum bara áfram. Þetta er ekkert hundrað í hættunni“

Ólafur Ólafsson setur upp undrunarsvip.Vísir/Hulda Margrét

Ólafur Ólafsson, fyrirliði Grindavíkur, var með skýr svör þegar hann var spurður hvað sæti helst í honum í leikslok.

„Klikkuð sniðskot, lélegt vítanýting og sóknarfráköst hjá þeim í þriðja og fjórða leikhluta þar sem við hefðum átt að gera betur. Við vorum ekki nógu fókuseraðir síðustu mínúturnar í fjórða leikhluta í vörninni og þeir gengu aðeins á lagið. Við klikkum úr einhverjum 30 sniðskotum og 40 vítum. Þetta er bara gamla góða. Það er bara 1-0 og við förum bara heim og lögum það sem við þurfum að laga. Höldum bara áfram. Þetta er ekkert hundrað í hættunni.“

Vítin voru reyndar ekki 40, heldur tólf.

„Þetta eru tólf stig, við hefðum þá verið 1-0 yfir sem segir bara allt sem segja þarf. Við þurfum bara að vera meira fókuseraðir á allt sem við erum að gera, einbeittir í öllu sem við gerum varnar- og sóknarlega. Þá erum við mjög góðir í körfubolta og erfitt að eiga við okkur.“

Ólafur tók undir að Grindvíkingar hefðu látið suma hluti fara of mikið í taugarnar á sér en fannst í góðu lagi að þjálfararnir væru að fá tæknivillur.

„Það á eiginlega bara að vera þeirra [þjálfaranna] starf að fá tæknivilludóterý og við eigum bara að einbeita okkur að því að fylgja leikplaninu og spila leikinn. Það er svo sem örugglega alveg rétt hjá þér að við misstum aðeins hausinn og fórum aðeins að tuða of mikið og einbeita okkur að því sem við höfum enga stjórn á. Bara eitthvað sem við þurfum að laga og einbeita okkur að því sem við erum góðir í.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira