Viðskipti innlent

Munu opna tvö Star­bucks-kaffi­hús í mið­borginni

Atli Ísleifsson skrifar
Dato’ Sydney Quays, forstjóri Berjaya Food Berhad.
Dato’ Sydney Quays, forstjóri Berjaya Food Berhad. Starbucks

Malasíska félagið Berjaya Food Berhad mun opna tvö kaffihús hér á landi undir merkjum Starbucks og mun það fyrsta opna í maí næstkomandi.

Í tilkynningu segir að kaffihúsin verði staðsett í miðbæ Reykjavíkur og verði tilkynnt um nákvæma staðsetningu og tímasetningu á opnun þeirra á næstu vikum. Í síðasta mánuði var sagt frá því á Vísi að framkvæmdir við byggingu Starbucks á Laugavegi 66-68 væri langt á veg komnar.

Í tilkynningunni nú segir að rekstur kaffihúsanna sé í höndum Berjaya Food Berhad í gegnum systurfélag sitt Berjaya Food International, sem hafi tryggt sér rekstrarleyfi Starbucks í Finnlandi og Danmörku auk Íslands. Hönnun staðanna og þjónusta muni taka mið af því sem viðgengst á Starbucks í Malasíu. Á kaffihúsunum verði lögð áhersla á persónulegt og hlýlegt andrúmsloft með fjölbreytt úrval af kaffidrykkjum og veitingum sem Starbucks sé þekkt fyrir um heim allan.

„Við erum spennt að geta loksins kynnt Starbucks fyrir Íslendingum og vonumst til að kaffihúsin verði áfangastaður fyrir frábært kaffi og góðar samverustundir,“ er haft eftir Dato’ Sydney Quays, forstjóra Berjaya Food Berhad. „Við hlökkum til að kynna hið einstaka Starbucks andrúmsloft ásamt hlýlegri malasískri gestrisni. Á sama tíma leggjum við áherslu á að styrkja íslenskt samfélag með því að skapa atvinnu og eiga í samstarfi við innlend fyrirtæki með kaupum á vörum og þjónustu,“ bætir hann við.

Starbucks rekur í dag rúmlega 40 þúsund kaffihús víða um heim. Starbucks

Þá er haft eftir Duncan Moir, forstjóra Starbucks í Evrópu, Miðausturlöndum og Afríku, að það sé gleðiefni að auka viðveru félagsins á Norðurlöndum í samstarfi við traustan og langvarandi viðskiptafélaga, Berjaya Food Berhad. „Á grundvelli 26 ára samstarfs við Berjaya Food, hlökkum við til að tengjast enn fleiri viðskiptavinum í gegnum Starbucks kaffi og leggja metnað í að fjárfesta með varanlegum áhrifum í velferð starfsfólksins okkar og samfélagsins alls,“ er haft eftir Moir.

Um Berjaya Food Berhad segir að um sé að ræða malasískt hlutafélag sem hafi verið stofnað í Malasíu árið 2009. Félagið eigi og reki ýmis þekkt vörumerki, þar á meðal Starbucks Coffee í Malasíu, Brúnei og á Íslandi, Paris Baguette í Malasíu og á Filippseyjum, auk Kenny Rogers Roasters í Malasíu. Að auki hafi félagið komið Joybean vörulínunni á markað í gegnum dótturfyrirtækið Bestari Food Trading. 

Starbucks var stofnað árið 1971 og rekur í dag rúmlega 40 þúsund kaffihús um allan heim.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×