Hent nauðugri út úr hryllingshúsi vegna ógreiddrar leigu Jakob Bjarnar skrifar 5. maí 2025 11:18 Ljósmyndari Vísis kíkti á Bríetartún og þar var svona umhorfs á stigagangi. vísir/Anton Brink Jón Daníelsson segir af skelfilegum aðstæðum í húsnæði Félagsbústaða við Bríetartún 20. Jón segir til standa að dóttur hans, sem er fíkill, verði hent þaðan út vegna vangreiddrar húsaleiguskuldar meðan nær væri að hún fengi greitt fyrir að sætta stöðugum ógnum annars leigjanda.
Jón, sem titlar sig gamalmenni, segir að á morgun muni Félagsbústaðir henda dóttur sinni fíklinum út á götu. Þetta kemur fram í aðsendri grein sem Vísir birti nú rétt í þessu. Hann segir Bríetartún 20 ekki geta kallast mannabústaður. Aðrir íbúar búi við ógn og skelfingu „Íbúarnir í þessum stigagangi búa við stöðugan ótta og öryggisleysi. Á sínum tíma komu Félagsbústaðir upp öryggismyndavélum í stigaganginum, en einn íbúinn, er löngu búinn að klippa á allar leiðslur sem að þeim liggja. Íbúinn er vel þekkt síbrotakona, sem veður vopnuð um stigaganginn og axarför og aðrar skemmdir eftir hana má sjá hér og hvar, m.a. á hurðinni að íbúð dóttur minnar. Dyrnar eru reyndar svo laskaðar eftir ítrekuð innbrot, að í íbúðin stendur nánast opin.“ Jón segir að frá því að Félagsbústaði úthlutuðu konunni íbúð í húsinu hafi aðrir íbúar þar búið við stöðuga skelfingu en konan hafi með geðofsa sínum, síendurteknum skemmdarverkum og innbrotum bæði í aðrar íbúðir í húsinu og geymslur í sameign hússins. Segir af nauðgun sem dóttir hans varð fyrir „Meðal afreka hennar má telja innbrot til dóttur minnar fyrir rúmum tveimur árum. Þá var hún í fylgd með einhverjum karlkyns félögum sínum, sem nauðguðu dóttur minni „í öll göt“ svo notuð séu hennar eigin orð, misþyrmdu henni og skildu við hana svo hart leikna að það leið langur tími, mögulega sólarhringur eða meira, hélt hún sjálf, þangað til hún komst til sæmilegrar meðvitundar.“ Félagsbústaðir, Bríetartún 20 Jón segir að dóttir hans hafi vitaskuld kært þann atburð til lögreglu, eða reyndi það allavega, en hann hafi ekki neinar spurnir af því að þeirri kæru hafi verið sinnt. „Síbrotakonan hefur auðvitað verið kærð til lögreglu miklu oftar, enda líka verið staðin að ýmsum ójöfnuði, m.a. ítrekað að þjófnaði í verslunum.“ Jón segir að hvorki lögregla né Félagsbústaðir hafi aðhafst nokkurn skapaðan hlut. „Ef ástæðan er skortur á sönnunum er það augljós fyrirsláttur. Sannleikurinn er öllu fremur sá að ekkert hefur verið aðhafst til að afla sannana.“ Skorar á lögreglu að beita sér í málinu Jón segir að það ætti ekki að vera neitt tiltökumál. Hann kvartar undan áhugaleysi fjölmiðla en nefnir þó að DV hafi birt af þessu fréttir, þá síðustu nú um helgina. Þar sé vísað í viðmælendur sem gætu borið vitni ef lögregla hefði minnsta áhuga á málinu og manndóm í að láta sig þetta skipta. Félagsbústaðir, Bríetartún 20 Jón segir enga ástæðu til að halda hlífiskyldi yfir sökudólgnum, verið sé að refsa fórnarlömbum sem megi heita sannkallað níðingsverk. Hann skorar á framkvæmdastjóra Félagsbústaða ásamt formann og framkvæmdastjóra Velferðarráðs borgarinnar að stöðva þessa boðuðu aðgerð án tafar og sjá til þess að Félagsbústaðir og lögreglan rannsaki málið án tafar. Vísir gerði tilraun til að ná í einhvern hjá Félagsbústöðum en það var eins og að vera í falinni myndavél. Eftir að hafa beðið lengi á línunni, og talið niður kom að endingu símasvari á ensku þar sem sagt var eitthvað á þá leið að maður væri kominn á endastöð!
Félagsmál Húsnæðismál Fíkn Lögreglan Reykjavík Mest lesið Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Fleiri fréttir Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Sjá meira