Ríkisstofnun rassskellt Björn Ólafsson skrifar 6. maí 2025 11:02 Ríkisstofnun selur sál sína. Fyrirtækið; Meta Carbon Removal Coalation, í gegnum dótturdótturdótturfyrirtæki, hefur stofnað fyrirtæki hér á landi til að gera tilraunir í Hvalfirði. Nafnið Meta ætti að vera kunnuglegt, en einn eiganda MCRC er; frú Mark Zuckerberg (Facebook ofl). Allt er þetta kynnt á þeim forsendum að hér sé verið að vinna að tilraun sem gæti komið mannkyni mög vel. Í örstuttu máli snýst fyrsta tilraunin um það að losa 30.000 kg af vítissóda (NaOH, natríumhýdroxíð) í sjóinn. Mæla síðan út hvort það gerir sjóinn móttækilegri, auki, getu hans til að binda koltvísýring(CO2) úr andrúmsloftinu, og þá til lengri tíma. Tæknin er kennd við OAE, Ocean Alkalinity Enhancement, sem enn er á tilraunastigi. Ef tilraunin tekst, hvað þá? Hvað ef sjórinn fer að binda meira CO2 eftir vítisódann? Nákvæmlega, það er lykilatriðið. Þá er stóra planið, að hella vítissóda í milljóna tonna vís í sjóinn, á iðnaðarskala. Auðvitað verður það ekki bara „on the house“, nei farið verður að selja „þjónustuna“ til mengandi stórfyrirtækja. Afhverju er tilraunin gerð hér? Það liggur ekki fyrir, en mín skoðun; af því regluverkið hér er lélegt og það kostaði ekki nema 100 milljónir króna að fá Hafró til að blessa eitrunina! Það ættu allir að sjá í hendi sér, að vítissódi gerir vistkerfi sjávar ekkert gott. Þetta er hluti af „kolefnisjöfnunar-æðinu, sem margur keppist nú við að gera að gullnámu. Ríkisstofnunin okkar beit á agnið og seldi vísindalega heiður sinn fyrir smá pening, vitandi að það gagnrýnir ekki nokkur þá stofnun, amk, ekki þannig að tekið sé eftir. Einn starfsmaður frá Hafró hefur þegar hafið vinnu hjá umræddu fyrirtæki, ekkert gruggugt við það? Hafró hefur ítrekað verið rassskellt af Alþjóða Hafrannsóknarráðinu. (ICES). Nýlega hafa tveir yfirmenn Hafró mætt á Bylgjuna til að ræða um slæma stöðu nytjastofna sjávar hér við land. Umfjöllunin var einkum um humarinn, loðnu og þorsk. Þar sem um ríkisstarfsmenn er að ræða, þá gerir maður ríkari kröfur til þeirra en ella. Hlýnun sjávar, kenna þeir báðir um bága stöðu okkar helstu nytjastofna. Staðreyndirnar eru allt aðrar en ríkisstarfsmenn okkar komu með á borðið. Hafró hefur ítrekað verið rassskellt af Alþjóða Hafrannsóknarráðinu. (ICES). Humarinn, hrun stofnsins má rekja til: Ofveiði um margra ára skeið. Veiði var langt umfram sjálfbærni stofnsins. Búsvæði humarsins voru eyðilögð, sem var til þess að nýliðun í stofninum var enn lélegri en ella. Stofnstærðarmat byggðist ekki á vísindalegum grunni. ICES ítrekaði fyrir Hafró að taka upp UWTV stofnstærðarmat sem byggist á myndavélaeftirliti við mat á stofni og búsvæðum(under water television surveilance). Þá tækni tóku aðrar þjóðir upp árin 2003-2007, en hér dró Hafró lappirnar til 2016, skv. Skýrslum ICES. Hlýnun sjávar stuðlaði að minni nýliðun, en stofninn byrjaði að hrynja löngu áður en hlýnun fór að eiga sér stað. Um þessar fullyrðingar mínar má lesa í hjá ICES Working group, 2018, bendir Hafró á ítrekaðan óútskýrðan mismun á stofnstærðarmati - ICES. Skýrsla frá 2020 um rannsóknir á stofnstærðum í N-Atlantshafi.- ICES 2022 Report, ráðgjöf Hafró um 30% umfram ráðgjöf ICES. - ICES, ráðgjöf 2020, Humar á Íslandsmiðum (Nephrops om Icelandic Waters). – Journal of Marine Science(2017) Trawl -induced habitat destruction. – Fisheries Research(2015) Study.. Nephrops on the North Atlantic... Iceland‘s stock decline...- Oceana Report(2019), bendir á vöntun á upplýsingum, ráðgjöf sé í ósamræmi við stofnstæðarmat - Fleiri greinar og umfjallanir má finna um hrun humarstofnsins, sem fangaði athygli vísindasamfélagsins mun víða erlendis. ICES: Loðnustofninn við Ísland er hruninn samkvæmt vísindalegri skilgreiningu. Loðnustofninn á Íslandsmiðum hefur minnkað úr 4.000.000 tonna um árið 1980, í 200.000 tonn nú árið 2025. Í líffræði sem fjallar um skammlífar fiskitegundir, sem halda sig í torfum, er talað um að stofnstærð megi ekki fara niður fyrir svo nefnd „varúðarmörk“ (Blim). Við þau mörk er talið að stofninn eigi á mikilli hættu á að ná sér ekki á strik aftur í fyrra horf, þrátt fyrir veiðibann. Loðna er aðal fæða margra fiskitegunda, þorskurinn þar fremstur. Því er hætta á þegar stofninn verður svo lítill, að hann verði að miklum hluta hreinlega étinn upp, með tilheyrandi hörmungum fyrir vistkerfið. Stofninn hefur nú verið innan við þessi varúðarmörk nú í 5 ár, 2018 til 2023. Nýliðun í stofninum hefur verið í sögulegu lágmarki undanfarin ár. Þetta eru staðreyndir, ICES segir stofninn hruninn, en Hafró að hann sé „allt of lítill“. Í skýrslum frá ICES árin 2021, 2022 og 2023, ítrekar ICES við Hafró, að loðnuveiði sé langt umfram það sem stofninn sé að gefa af sér. Veiðin sé ósjálfbær. ICES nefnir hvað sé að gerast með loðnustofninn í Barentsafi og hvað hafi gerst við Nýfundnaland. Stofninn við Ísland sé á sömu leið. Í ráðgjöf ICES frá 2023, segir að loðnustofninn hafi verið ofveiddur í a.m.k 20 ár. Stofninn sé og hafið verið undir varúðarmörkum. Engin merki sé um að hann sé að ná sér upp. ICES telur nú að stofninn sé aðeins um 33% af þvi sem hann mætti minnst vera. Nýliðun sé í sögulegu samhengi mjög lítil. Sjá: ICES Capelin Advice 2023. Hlýnun sjávar geti ráðið baggamuninn á því hvort loðnustofninn nái að byggja sig upp úr því sem komið er. Breytingar á magni dýrsvifs, rauðátu, ljósátu ofl, sökum hlýnunnar, sem er loðnulifrum nauðsyn, geri nýliðun enn tvísýnni. Rannsóknir hafi sýnt að öflugur loðnustofn sé mun harðari af sér gagnvart umhverfisbreytingum, en stofn sem ströggli. (Huse Et Al. 2012 Marine Biology Research) Sjá: ICES AFWG Report 2022 – og Gjösæter Et.Al 2009, Progress in Oceangraphy. Á sama tíma og loðnustofninn hrynur, er þorskstofninn sögulega stór, og því er afrán enn meira álag á veikburða loðnustofninn. Enda er svo að þorskurinn léttist ár frá ári og fiskurinn nær kynþroska seinna. Stofninn eldist þar sem sjálfrán stóreykst vegna loðnuskorts. Framtíð þorskstofnsins er fjarri því að vera björt í ljósi viðvarandi loðnubrests. Þetta kemur fram í skýrslum ICES. Afrán þorsks á loðnustofninn sé hlutfallslega allt of mikið fyrir veikburða stofn. Ríkisstofnunin okkar, sem við í daglegu tali er kölluð Hafró, er því miður fjarri því að standa sig í hlutverki sínu, sem vörður um sjávarauðlindir þjóðarinnar. Stofnuninn lætur stjórnast af viðskiptalegum hagsmunum á kostnað vísindalegrar nálgunnar. Skortur á langtíma hugsun með tillitli til hagsmuna eigenda sjávarauðlindanna, er algjör. Hugarfarið „þetta reddast“ virðist allsráðandi. Næstu kynslóðir hér, eiga betra skilið af okkur en að skilja helstu nytjastofna sjávar eftir í rúst. Hrun loðnu hefur gífurleg áhrif á vistkerfi sjávar. Tími er kominn til að þessi mál séu skoðuð í kjölinn. Það eru fleiri stofnanir en fjármálafyrirtæki sem þurfa eftirlit. Nú getur ekkert annað tekið við en loðnuveiðibann, ef bjarga á loðnustofninum, það er ráðgjöf ICES og langflestra vísindamanna utan Hafró. Framganga Hafró hefur vakið undrun vísindamanna víða. Kvótinn sem gefinn var út núna, um 8500 tonn, þótti sýna fyrringu Hafró, og er tilefni greinaskifa erlendis. Kyrrstæðir fiskistofnar -Hafró „grípur í“ til að skammta „náttúrunni loðnu“. Eftirfarandi er úr tækniskýrslu Hafró frá 2025. Svona bregður stofnunin sér í form „Guðs“ og reiknar út hvað þarf að skammta „náttúrunni“ áður en „við grípum í“ sagði forstjóri Hafró. Þessi tilvitnun er hreint með ólíkindum, kyrrstæðir fiskar.... engir hvalir, selur, fuglar.... Vistkerfi sjávar passar ekki inn í né fer eftir Excel skjali “Gert er ráð fyrir að afræningjarnir (þorskur, ýsa og ufsi) séu kyrrstæðir á tímabili loðnugöngunnar og rúmfræðileg dreifing þeirra er fengin úr stofnmælingu botnfiska í mars frá 1985 fram að síðasta ári. Heildarfjöldi hvers afræningja er byggður á spá fyrir núverandi ár útfrá á mati fyrra árs.” Höfundur er útgerðartæknir o.fl. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðunargreinar. Senda grein Mest lesið Treystu þjóðinni. Þú ert með tromp á hendi — Opið bréf til forsætisráðherra Íslands Stjórn Stjórnarskrárfélagsins Skoðun 390.000 hektarar af landbúnaðarlandi breytast í skóg og votlendi: Landbúnaður næsta stóra loftslagsverkefni Dana Eyþór Eðvarðsson Skoðun Inga Sæland og sjálfstæðið Gunnar Ármansson Skoðun Flott embætti í boði fyrir ESB ríki Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Af ávöxtunum skulum við þekkja þá Guðröður Atli Jónsson Skoðun Hagfræðileg brenglun í lagatextanum um verðtryggingu Örn Karlsson Skoðun Hvað gerðist hjá listskautakappanum Ilia Malinin á vetrar ÓL? – hugleiðingar sálfræðings Andri Hrafn Sigurðsson Skoðun Að „kíkja í pakkann“ sem er nú þegar opinn Jökull Sólberg Auðunsson Skoðun Menn sem hata konur Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Hvað er að gerast í skapandi greinum? Erla Rún Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Treystu þjóðinni. Þú ert með tromp á hendi — Opið bréf til forsætisráðherra Íslands Stjórn Stjórnarskrárfélagsins skrifar Skoðun Veikt flutningskerfi er sóun á náttúruauðlindum Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun 390.000 hektarar af landbúnaðarlandi breytast í skóg og votlendi: Landbúnaður næsta stóra loftslagsverkefni Dana Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Hvað gerðist hjá listskautakappanum Ilia Malinin á vetrar ÓL? – hugleiðingar sálfræðings Andri Hrafn Sigurðsson skrifar Skoðun ESB-pakkinn er galopinn Bergþór Ólason skrifar Skoðun Opið bréf til umhverfisráðherra Ragnhildur Elín Skúladóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Hagfræðileg brenglun í lagatextanum um verðtryggingu Örn Karlsson skrifar Skoðun Börnin okkar – sameiginleg ábyrgð Hanna Borg Jónsdóttir skrifar Skoðun Ísland í brennidepli: Lýðfræðilegar breytingar og nýtt jafnvægi á vinnumarkaði Ingvar Freyr Ingvarsson ,Sigrún Brynjarsdóttir skrifar Skoðun Skilvirkir ferlar, betri reglur Einar Bárðarson skrifar Skoðun Af ávöxtunum skulum við þekkja þá Guðröður Atli Jónsson skrifar Skoðun Fyrirmyndarverkefni í grunnskólum Reykjavíkurborgar Steinn Jóhannsson,Arndís Seinþórsdóttir skrifar Skoðun Hvað er að gerast í skapandi greinum? Erla Rún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Inga Sæland og sjálfstæðið Gunnar Ármansson skrifar Skoðun Blómin í haganum og börnin í boxinu Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Flott embætti í boði fyrir ESB ríki Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Samgönguáætlun og samkeppni í flutningum Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Samferða á föstunni Hjalti Jón Sverrisson, Árni Þór Þórsson,Guðný Hallgrímsdóttir,Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir,Kristín Pálsdóttir,Toshiki Toma skrifar Skoðun Evrópusambandssinnar - það er bannað að plata! Birgir Finnson skrifar Skoðun Erum við tilbúin í umbreytingu? Agnes Ósk Snorradóttir skrifar Skoðun Opið bréf til heilbrigðisráðherra vegna stöðu einhverfra Ármann Pálsson,Ragnheiður Ösp Sigurðardóttirp ,Sigurjón Már Svanbergsson,Halldóra Hafsteinsdóttir,Eyrún Halla Kristjánsdóttir,Guðlaug Svala Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Að „kíkja í pakkann“ sem er nú þegar opinn Jökull Sólberg Auðunsson skrifar Skoðun Ekki ein tomma en hvar eru aðgerðirnar? Telma Árnadóttir skrifar Skoðun Getur tölva dæmt betur en maður? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Réttindi, réttlæti, aðgerðir: Hvers vegna jafnrétti kynjanna skilgreinir framtíð ESB Clara Ganslandt skrifar Skoðun Hið nýja siðfár? Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir skrifar Skoðun „Pólitíkin ræður“ Anna Sofía Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Það sem koma skal? Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Flestir fjölmiðlar eru ríkisfjölmiðlar á Íslandi Þorsteinn Sæmundsson skrifar Skoðun Þegar þolendur stíga fram reynir á samfélagið Þóra Sigfríður Einarsdóttir,Kristín Skjaldardóttir skrifar Sjá meira
Treystu þjóðinni. Þú ert með tromp á hendi — Opið bréf til forsætisráðherra Íslands Stjórn Stjórnarskrárfélagsins Skoðun
390.000 hektarar af landbúnaðarlandi breytast í skóg og votlendi: Landbúnaður næsta stóra loftslagsverkefni Dana Eyþór Eðvarðsson Skoðun
Hvað gerðist hjá listskautakappanum Ilia Malinin á vetrar ÓL? – hugleiðingar sálfræðings Andri Hrafn Sigurðsson Skoðun
Skoðun Treystu þjóðinni. Þú ert með tromp á hendi — Opið bréf til forsætisráðherra Íslands Stjórn Stjórnarskrárfélagsins skrifar
Skoðun 390.000 hektarar af landbúnaðarlandi breytast í skóg og votlendi: Landbúnaður næsta stóra loftslagsverkefni Dana Eyþór Eðvarðsson skrifar
Skoðun Hvað gerðist hjá listskautakappanum Ilia Malinin á vetrar ÓL? – hugleiðingar sálfræðings Andri Hrafn Sigurðsson skrifar
Skoðun Opið bréf til umhverfisráðherra Ragnhildur Elín Skúladóttir,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar
Skoðun Ísland í brennidepli: Lýðfræðilegar breytingar og nýtt jafnvægi á vinnumarkaði Ingvar Freyr Ingvarsson ,Sigrún Brynjarsdóttir skrifar
Skoðun Fyrirmyndarverkefni í grunnskólum Reykjavíkurborgar Steinn Jóhannsson,Arndís Seinþórsdóttir skrifar
Skoðun Samferða á föstunni Hjalti Jón Sverrisson, Árni Þór Þórsson,Guðný Hallgrímsdóttir,Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir,Kristín Pálsdóttir,Toshiki Toma skrifar
Skoðun Opið bréf til heilbrigðisráðherra vegna stöðu einhverfra Ármann Pálsson,Ragnheiður Ösp Sigurðardóttirp ,Sigurjón Már Svanbergsson,Halldóra Hafsteinsdóttir,Eyrún Halla Kristjánsdóttir,Guðlaug Svala Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Réttindi, réttlæti, aðgerðir: Hvers vegna jafnrétti kynjanna skilgreinir framtíð ESB Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þegar þolendur stíga fram reynir á samfélagið Þóra Sigfríður Einarsdóttir,Kristín Skjaldardóttir skrifar
Treystu þjóðinni. Þú ert með tromp á hendi — Opið bréf til forsætisráðherra Íslands Stjórn Stjórnarskrárfélagsins Skoðun
390.000 hektarar af landbúnaðarlandi breytast í skóg og votlendi: Landbúnaður næsta stóra loftslagsverkefni Dana Eyþór Eðvarðsson Skoðun
Hvað gerðist hjá listskautakappanum Ilia Malinin á vetrar ÓL? – hugleiðingar sálfræðings Andri Hrafn Sigurðsson Skoðun