Hafi verið rangkynjuð oftar en hún geti talið og segir transfóbíu bitna á öllum Magnús Jochum Pálsson skrifar 7. maí 2025 23:03 Gréta Kristín, sem er leikstjóri, dramatúrg og dósent við LHÍ, skrifar um það hvernig trans hatur smitar út frá sér og skerðir frelsi allra. Vísir/Anton Brink Gréta Kristín Ómarsdóttir leikstjóri segist hafa verið rangkynjuð alla ævi vegna útlits síns. Transfóbía og hysterísk kynjatvíhyggja bitni á öllum og atvikum sem byggi á slíku fari fjölgandi. Fólk eigi að fá að stjórna eigin líkömum og segir hún trans hatur skerða frelsi allra.
Gréta Kristín, sem er einnig dósent við sviðslistadeild LHÍ, skrifaði um skaðleg áhrif transfóbíu í Facebook-færslu í kvöld sem hefur vakið mikla athygli en þegar þetta er skrifað hefur henni verið deilt 92 sinnum. Tilefni færslunnar er frétt af tveimur cis konum sem var um helgina hent út af klósetti á hóteli í Boston eftir að önnur neitaði að sýna kynfæri sín til að mega nota kvennaklósett. Öryggisvörður hafi tekið þá geðþóttaákvörðun um að meina þeim aðgengi að klósettinu því önnur þeirra hafi verið karlleg. „Hér sannast enn á ný að transfóbía og hysterísk kynjatvíhyggja bitnar á okkur öllum og skerðir frelsi og lífsgæði allra. Langar okkur virkilega að fara á þennan stað?“ skrifar Gréta í færslunni. Rangkynjuð oftar en hún getur talið Hún lýsir síðan eigin reynslu af því vera „190 cm há cis kona, stutthærð, stórbeinótt og sterkbyggð cis kona“ og setur í samhengi við samfélagslega þróun síðustu misseri. „Ég hef lent í því allt frá barnæsku, oftar en ég get talið, að vera rangkynjuð,“ skrifar hún í færslunni. „Oftast hefur það verið meinlaust og valdið meiri vandræðagangi hjá þeim sem rangkynjar heldur en nokkurri raunverulegri ógn eða óþægindum hjá mér.“ Hún nefnir nokkur dæmi, huggun velviljaðrar eldri konu sem kallaði hana „elsku drenginn,“ kanadíska flugfreyju sem ávarpaði hana sem herra og þjón sem sagði: „Jæja strákar, hvað má bjóða ykkur,“ þegar hún fór á veitingastað með vinum mínum. „En svo eru óþægileg og jafnvel óhugnanleg móment í bankanum,“ segir hún. „Hvað viljið þið að ég geri?“ Eins og „mörg börn sem dansa á brekkum normalkúrvunnar“ segist Gréta hafa lent í einelti sem snerist ekki síst um hvað líkami hennar var „óeðlilegur, strákalegur, lessulegur, ógeðslegur.“ „Á fullorðinsaldri hafa menn öskrað á mig „hvort ertu?“ úti á götu, mér hefur verið meinaður aðgangur að kvennaklósettum, ungir menn hafa ráðist á mig inni á skemmtistað,“ skrifar hún og spyr svo: „Hvað ætli ég sé að gera vitlaust?“ „Það stoðar lítt fyrir mig að safna hári, strákarnir lömdu mig á skólalóðinni þó ég væri með stelpulegt og sléttað, sítt hár. Ég var stífmáluð, hrikalega sæt í hrikalega sætum kjól þegar karlmaður hrinti mér á Klapparstíg af því hann hélt ég væri karl í dragi,“ skrifar hún. „Á ég að ganga um með vottorð um kyn-litningamælingu og hormónabúskap minn? Bera á mér kynfærin þegar einhver er í vafa? Hvað viljið þið að ég geri? Hætti að vera með há kinnbein og stóran kjálka? Hætti að vera stórbeinótt og sterkbyggð? Hætti að vera svona hávaxin?“ spyr hún svo. Í krafti jaðarsettra geti hún sagt: „Nei takk og fokkaðu þér“ Gréta segir óþægileg og óhugnanleg atvik sem þessi vera að færast í aukana. Hún ætli hins vega ekki að minnka eða beygja sig. „Ég vil ekki fara með á þennan stað,“ segir hún. „Eftir 35 ár á þessari jörð hef ég lært að þessi stóri, ókvenlegi líkami minn er gullkista af forréttindum. Ég geng í hælum sem hækka mig hátt í tvo metra, ég vil vera með stutt hár, ég klæði mig eins og mig langar til, ég horfi niður á litla lúða sem þykjast geta minnkað mig,“ skrifar Gréta. Þetta frelsi segist Gréta fá frá „trans og hinsegin fólki, jaðarsettu fólki, lituðu fólki, fötluðum aktívistum og femínistum sem hafa rutt brautina fyrir mig og kennt mér að ég er frjálsari en það hlutskipti sem þröngsýn tvíhyggja býður okkur öllum upp á, að ég er stærri en kúgandi hugmyndirnar sem ég ólst upp við.“ Í krafti þessa fólks og vegna þeirrar baráttu segist Gréta geta sagt: „Nei takk og fokkaðu þér.“ Í krafti þeirra geti hún fyllt út í „allt þetta djöfulsins pláss sem ég fékk úthlutað með því að vera eins lessuleg, kven,- og karlmannleg og mér sýnist hverju sinni.“ Fólk eigi að fá að stjórna eigin líkömum Gréta skrifar í færslunni að fólk geti ekki stjórnað því hvernig líkama það fái þegar það fæðist, í hvaða skítapleisi það fæðist eða hvaða hugmyndir eru við líði þar sem það fæðist. „Við ættum hins vegar öll að fá að stjórna því sjálf hvað við gerum með okkar eigin líkama, hvernig við skilgreinum hann og tengjum við hann, hvort við dveljum áfram í skítapleisinu eða förum eitthvert annað,“ skrifar Gréta. „Anti-trans, LGB og Terf er að mínu viti það versta, innsta hrings helvítis skítapleis á plánetunni allri. Þetta er smáríki smásála sem hafa ekkert betra við innrætt sjálfshatur sitt að gera en að misþyrma þeim sem sýna með tilvist sinni fram á hvað við gætum öll verið frjálsari,“ skrifar Gréta. Í því skítapleisi tapi allir og frelsi allra skerðist „niður í dystópískar öreindir sínar og andstæðu.“ Hún varar því fólk við að snúa við frá slíku skítapleisi. „Trans hatur mun éta okkur öll ef við leyfum því að stýra ferðinni og förum þangað. Protect the dolls, þau halda á frelsi okkar allra,“ skrifar hún að lokum.
Málefni trans fólks Jafnréttismál Hinsegin Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Innlent Fleiri fréttir Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Sjá meira