Gular viðvaranir og hryssingslegt sunnan- og vestantil Atli Ísleifsson skrifar 9. maí 2025 07:14 Gular viðvaranir eru í gildi við Faxaflóa, Breiðafjörð, Vestfirði og Strandir og Norðurland vestra vegna éljagangs til kvölds. Vísir/Vilhelm Úrkoma og vindur minnkar heldur miðað við í gær en áfram verður fremur hryssingslegt veður sunnan- og vestantil. Gera má ráð fyrir skúrum eða slydduéljum og líkur eru á krapa og hálku á fjallvegum.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði þurrt og bjart á köflum norðaustantil. Gular viðvaranir eru í gildi við Faxaflóa, Breiðafjörð, Vestfirði og Strandir og Norðurland vestra vegna éljagangs til kvölds. Vegagerðin beinir því til vegfarenda um athuga að víða á Vestur- og Norðurlandi sé hálka eða hálkublettir á fjallvegum, meðal annars á Hellisheiði og í Þrengslum. Hiti á landinu verður á bilinu tvö til tólf stig, mildast austanlands. „Til morguns dregur enn frekar úr vindi og úrkomu og líkur á að sólin nái aðeins meir á milli skýja, sem aftur gefur aðeins hlýrra veður yfir daginn. Á sunnudag er að sjá að vindur verði orðinn suðvestlægari ásamt því að það hlýnar heldur og að auki gera spá ráð fyrir að þurrt verði um mest allt land. Síðan er að sjá að veðrið haldi áfram að batna enn frekar eftir helgi,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan átta í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Vestlæg átt, 5-13 m/s og dálítil él eða skúrir, en yfirleitt bjartviðri austanlands. Hiti 3 til 12 stig, svalast á Vestfjörðum. Á sunnudag: Suðvestan 3-10 m/s, skýjað með köflum og þurrt að mestu, en léttskýjað eystra. Hiti 7 til 13 stig yfir daginn. Á mánudag, þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag: Fremur hægar suðlægar áttir og skýjað með köflum við suðvesturströndina, en annars víða léttskýjað eða bjartviðri. Hlýtt í veðri, einkum fyrir norðan og austan.
Veður Mest lesið Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Erlent „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Innlent Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Fleiri fréttir Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Gætu orðið hressilegar dembur inn til landsins Skýjað að mestu og hæg norðlæg eða breytileg átt Rigning og skúrir víða um land Bætir í úrkomu eftir hádegi Spáð hlýju veðri norðaustantil Víða skúrir en allt að tuttugu stigum austanlands Sjá meira