Hækka þurfi veiðigjald í skrefum Jón Ísak Ragnarsson skrifar 11. maí 2025 14:49 Heiðrún Lind Marteinsdóttir er framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Ívar Fannar Breytingar á veiðigjaldi þurfa að eiga sér stað í skrefum og með samtali. Sjávarútvegurinn er tilbúinn í umræðu um hækkun þess með slíkum hætti segir Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.
Stórfelld hækkun gjaldsins í einu vetfangi sé hins vegar óboðleg og muni koma illa niður á greininni. Heiðrún Lind ræddi málið á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun en fyrstu umræðu um veiðigjaldafrumvarp atvinnuvegaráðherra lauk á aukaþingfundi í gær. Hart hefur verið deilt um málið og þingið á enn eftir að greiða atkvæði um tillögu stjórnarandstöðunnar sem leggur til að málið gangi til efnahags- og viðskiptanefndar fremur en atvinnuveganefndar þar sem um skattahækkun sé að ræða. Atkvæði verða greidd um tillöguna á næsta þingfundi á morgun, mánudag. Heiðrún Lind gagnrýndi Hönnu Katrínu Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, og sagði hana hafa lokað á allt samtal við sjávarútveginn og kom einnig umdeildri auglýsingaherð samtakanna til varnar. Ráðherra hafi ekki viljað hitta hagaðila „Við urðum að ýfa fjaðrir til þess að fá umræðuna af stað, vegna þess að það átti bara að keyra þetta í gegn án umræðu. Ráðherra skoraði síðast á okkur á ársfundi SFS,“ segir Heiðrún. „Þau segja ef þetta kemur svona illa við ykkur, þá er bara best að fyrirtækin opni sínar bækur, og sýni sveitarfélögum og öðrum, hvernig þetta hefur áhrif á rekstur þeirra.“ „Ég sagði bara okei við skulum fara í þessa vinnu. Nú erum við búin að fara í þessa vinnu með deloitte. Ég óskaði eftir fundi með ráðherra, og hún hefur ekki áhuga á að hitta okkur. Ef okkur hefði tekist að ná upp samtali, er ég viss um að við hefðum getað komið okkur niður á einhverja niðurstöðu.“ Sem væri hærri en hún er í dag? Þið mynduð sætta ykkur við það ef það væri gert með samtali? „Við vitum að við erum með ríkisstjórn sem hefur sagt við ætlum að hækka veiðigjald. En við erum bara þeirrar skoðunar að það skipti máli hvernig það er gert.“ Nauðsynlegt að auka umræðuna með auglýsingum Heiðrún segir að mikið hafi verið undir og þess vegna hafi verið farið af stað í auglýsingarherferð sem vakið hefur mikil viðbrögð. „Það liggur mikið við og í ljósi þess að það eigi að fara svona hratt í gegnum málið töldum við fullt tilefni til þess að reyna auka umræðuna um málið á þessum skamma tíma.“ „Og það gerir maður nú kannski illa nema tala til almennings í formi auglýsinga.“ Heiðrún segir að orðræðan í kringum sjávarútvegin sé orðin óboðleg. Fólk sem hafi unnið að auglýsingunum eða birst í þeim hafi beinlínis orðið fyrir aðkasti. „Ekki bara af einhverjum nettröllum, af fjölmiðlafólki og fyrrverandi forsetaframbjóðendum. Orðræðan er svo ógeðfelld að mér býður við því.“ „Af hverju getum við ekki bara tekið almennilega efnislega umræðu?“ Heiðrún segir svo að Kristrún Frostadóttir hafi verið mjög skýr í aðdraganda kosninga í nóvember. Hún hafi sagt að hún sæi fyrir sér breytingar á veiðigjaldi en vildi ekki gera það af offorsi. Hún hafi séð fyrir sér tvöföldun á veiðigjaldi á næstu tíu árum. „Það voru hennar orð nákvæmlega orðrétt. Ekki bara einu sinni heldur um allt land þegar hún fór að hitta sjávarútvegskerfi.“ „Að skella algjörlega breyttri nálgun á veiðigjaldi í einu vetvangi fyrir áramót og láta það skella á af fullum þunga án þess að skeyta nokkru um það hver áhrifin verða, það er stórt hættumerki,“ segir Heiðrún. Athugasemd ritstjórnar: Heiðrún Lind er stjórnarkona í Sýn.
Sjávarútvegur Breytingar á veiðigjöldum Sprengisandur Bylgjan Tengdar fréttir „Þetta er salami-leiðin“ Formaður Framsóknarflokksins vill frekar að þrepaskiptur tekjuskattur verði lagður á sjávarútvegsfyrirtæki heldur en að sjá frumvarp atvinnuvegaráðherra um veiðigjöld verða að veruleika. Slíkt kerfi vill hann meina að sé líklegra til að tryggja að stærri og efnameiri fyrirtæki sem hagnast mest greiði meira af auðlindinni til samfélagsins en lítil og meðalstór fyrirtæki. Hann telur áform ríkisstjórnarinnar „andlandsbyggðarlega“ „salami-aðferð“ til að sækja tekjur af greininni. 6. maí 2025 08:29 Alþingi hafi mistekist að tryggja þjóðinni eðlilegan hlut Þingmenn takast enn á um nýtt frumvarp um veiðigjöld á þingi. Þingmaður Samfylkingarinnar segir Alþingi hafa mistekist að tryggja þjóðinni sinn hlut en það verði nú lagað. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að ekki megi skemma verðmætasköpun með álögum. 6. maí 2025 22:15 Segir Jon Øigarden Ingvar E þeirra Norðmanna Fannar Sveinsson, leikstjóri, sjónvarpsmaður og hlaðvarpsstjóri, segir Jon Øigarden stórkostlegan leikara. Fannar leikstýrði umdeildri auglýsingu SFS sem farið hefur fyrir brjóstið á mörgum manninum. Fannar hefur ekki sett sig inn í pólitíkina sem hefur blossað upp í tengslum við hana. 30. apríl 2025 11:49 Mest lesið Gefa út gula viðvörun fyrir allt landið Veður „Trúi ekki öðru en að hún taki þetta til sín“ Innlent Starfsmaður leikskóla rekinn vegna atviks en foreldrar ekki látnir vita Innlent Trump „svindlaði“ í kosningum í Flórída Erlent Stofnun atvinnuveganna: Matvælastofnun og Fiskistofa lagðar niður Innlent Trúnaði aflétt: Leigan hljóðar upp á 500 milljónir, ekki 1.500 Innlent „Við megum vera vond við börn“ Innlent „Þið komið ekki til Íslands til að brjóta af ykkur“ Innlent Ein lægð fjarlægist en önnur djúp nálgast Veður Viðræður eða ekki viðræður, þarna er efinn Erlent Fleiri fréttir Ester Bíbí leiðir Vinstrið í Hafnarfirði Ræddu „fjóra strámenn“, vonbrigði og hagsmunaárekstra Trúnaði aflétt: Leigan hljóðar upp á 500 milljónir, ekki 1.500 Grænlendingar gætu verið í lykilstöðu Af og frá að viðræður séu hafnar „Trúi ekki öðru en að hún taki þetta til sín“ Ísraelar hyggjast hernema suðurhluta Líbanon Vonskuveðrið gengið yfir og Danir kjósa í dag „Við megum vera vond við börn“ Sýnileiki öryggisgæslu aukinn eftir hópaárás „Þið komið ekki til Íslands til að brjóta af ykkur“ Telja litla áhættu af notkun vagnanna en ráðfæra sig við ríkislögreglustjóra Starfsmaður leikskóla rekinn vegna atviks en foreldrar ekki látnir vita Ekki skylt að upplýsa um trúarlegar slátrunaraðferðir Reikna með að rýmingu verði aflétt í hádeginu Þeir svartsýnustu trúi varla að Trump muni ráðast á Kúbu Stofnun atvinnuveganna: Matvælastofnun og Fiskistofa lagðar niður Úttekt á loftslagsstjórnsýslu frestast fram á haust „Gærdagurinn reyndi á kerfið sem stóð sig vel“ „Okkar bestu menn valdir í afísinguna“ Mikið að gera á mörgum vígstöðvum Óhjákvæmilegt að Ísland fái sjálfkeyrandi ökutæki Fluginu aflýst eftir að vélin rann út af akbraut Rýma hús á Seyðisfirði Fylgi Samfylkingar ekki verið minna í eitt ár Hátt í hundrað skjálftar út af Reykjanesi Glæný könnun, óveðrið og sjálfkeyrandi bílar Flugvél fór út af og öllum brautum lokað Fjórðungur Hringvegarins lokaður Drengur skar mann í Strætó Sjá meira
„Þetta er salami-leiðin“ Formaður Framsóknarflokksins vill frekar að þrepaskiptur tekjuskattur verði lagður á sjávarútvegsfyrirtæki heldur en að sjá frumvarp atvinnuvegaráðherra um veiðigjöld verða að veruleika. Slíkt kerfi vill hann meina að sé líklegra til að tryggja að stærri og efnameiri fyrirtæki sem hagnast mest greiði meira af auðlindinni til samfélagsins en lítil og meðalstór fyrirtæki. Hann telur áform ríkisstjórnarinnar „andlandsbyggðarlega“ „salami-aðferð“ til að sækja tekjur af greininni. 6. maí 2025 08:29
Alþingi hafi mistekist að tryggja þjóðinni eðlilegan hlut Þingmenn takast enn á um nýtt frumvarp um veiðigjöld á þingi. Þingmaður Samfylkingarinnar segir Alþingi hafa mistekist að tryggja þjóðinni sinn hlut en það verði nú lagað. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að ekki megi skemma verðmætasköpun með álögum. 6. maí 2025 22:15
Segir Jon Øigarden Ingvar E þeirra Norðmanna Fannar Sveinsson, leikstjóri, sjónvarpsmaður og hlaðvarpsstjóri, segir Jon Øigarden stórkostlegan leikara. Fannar leikstýrði umdeildri auglýsingu SFS sem farið hefur fyrir brjóstið á mörgum manninum. Fannar hefur ekki sett sig inn í pólitíkina sem hefur blossað upp í tengslum við hana. 30. apríl 2025 11:49