Hlýnandi veður og gæti farið í tuttugu stig á morgun Atli Ísleifsson skrifar 12. maí 2025 06:55 Hiti verður á bilinu sjö til sextán stig í dag og hlýjast á Austurlandi. Vísir/Vilhelm Hæð suðsuðvestur í hafi og lægð við norðausturströnd Grænlands mun beina suðvestlægri átt til landsins í dag. Yfirleitt verður vindum átta til átján metrar á sekúndu þar sem hvassast verður í vindstrengjum á norðanverðu landinu.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að léttskýjað verði norðaustan- og austanlands, annars skýjað og sums staðar dálítil væta. Eitthvað gæti þó rofað til yfir daginn. Fram kemur að síðdegis muni svo draga úr vindi. Hiti verður á bilinu sjö til sextán stig í dag og hlýjast á Austurlandi. „Á morgun verður hæðin yfir Færeyjum. Áttin verður því suðlæg eða breytileg, fremur hægur vindur og yfirleitt léttskýjað, en strekkingur norðvestantil auk þess sem einhver lágský verða viðloðandi þar fram eftir morgni. Hiti víða 11 til 20 stig. Annað kvöld þykknar upp vestanlands. Áfram suðlæg átt á miðvikudag með björtu og hlýju veðri, en þó verður líklega skýjað vestantil fyrri part dags,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 16 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Sunnan 3-10 m/s og víða léttskýjað, en 8-15 norðvestantil og sums staðar dálítil væta framan af degi. Hiti yfirleitt 11 til 20 stig yfir daginn. Þykknar upp vestanlands um kvöldið. Á miðvikudag: Suðaustan 8-13 við suðvestur- og vesturströndina, annars hægari vindur. Víða léttskýjað, en skýjað vestantil fram eftir morgni og þykknar aftur upp þar um kvöldið. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast inn til landsins. Á fimmtudag: Sunnan 5-13. Dálítil væta og hiti 8 til 15 stig, en lengst af þurrt og bjart á Norður- og Austurlandi með hita að 20 stigum. Á föstudag: Suðlæg eða breytileg átt 3-10. Skýjað með köflum og sums staðar þokuloft við ströndina, en bjartviðri á Norðurlandi. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast fyrir norðan. Á laugardag og sunnudag: Breytileg átt og víða bjartviðri, en sums staðar þoka við sjávarsíðuna. Áfram hlýtt í veðri.
Veður Mest lesið Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Erlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Innlent Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Innlent Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Innlent Telur engan vafa um að Bandaríkin verji bandamenn sína Erlent Fleiri fréttir Rigning víða í dag Skýjað og væta í flestum landshlutum Áfram hlýjast á Vesturlandi Hlýjast á Vesturlandi Gular viðvaranir í kortunum Hiti gæti náð sautján stigum suðaustantil Bætir í úrkomu í kvöld Rigning eða súld um landið allt Lægðardrag yfir landinu Hiti að sextán stigum Allt að átján stiga hiti fyrir vestan Allt að tuttugu stiga hiti Að átján stigum suðvestanlands Fjögurra daga bongóblíða í vændum Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Rigning og hvassviðri með suðurströndinni Bjart með köflum en blæs úr austri í kvöld Bjart og milt peysuveður Glittir í endurkomu sumarsins Að mestu léttskýjað fyrir sunnan og vestan Áframhaldandi norðan strekkingur Óveðrinu slotar en áfram hætta á skriðuföllum Grjóthrun á Siglufjarðarvegi og skriðufall í Neskaupstað Það versta yfirstaðið en veður áfram leiðinlegt á morgun Vaktin: Ekta sumarhret leikur landann grátt Skriðuhætta geti skapast á ólíklegum stöðum Lýsa yfir óvissustigi vegna veðurs Höfuðborgarsvæðið bætist í hópinn Lægð nálgast sem dýpkar ört Rigning í dag og svo von á júníhreti Sjá meira