Innlent

Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim

Samúel Karl Ólason skrifar
Blindrafélagið er til húsa í Hamrahlíð og vill að Hljóðbókasafnið verði þar einnig.
Blindrafélagið er til húsa í Hamrahlíð og vill að Hljóðbókasafnið verði þar einnig. Ja.is

Ákveðið var á aðalfundi Blindrafélagsins að skora á stjórnvöld að koma Hljóðbókasafninu heim. Í ályktun sem samþykkt var á fundinum er kallað eftir því að safnið fái framtíðarhúsnæði í Hamrahlíð 17, þar sem það byrjaði árið 1982 og á eðlilegum samastað innan öflugs þjónustukjarna fyrir blint og sjónskert fólk.

Svo virðist sem flytja þurfi Hljóðbókasafnið úr núverandi húsnæði þess á næstu mánuðum.

„Með aukinni stafrænni þróun hefur húsnæðisþörf þess minnkað verulega og því er ljóst að Hamrahlíð 17 hentar starfseminni mun betur en áður, hvað varðar stærð, aðgengi og samlegð við aðra þjónustu. Það er því rökrétt niðurstaða að safnið þekkist boð Blindrafélagsins um aðstöðu í Hamrahlíð 17,“ segir í ályktun Blindrafélagsins.

Þar segir einnig að Hljóðbókasafnið sé lykilstofnun í aðgengi blindra og sjónskertra að bókmenntum, menningu og upplýsingum. Það sé lifandi dæmi um hvernig hægt sé að veita aðgengi að efni sem annars væri lokuð bók fyrir fjölda fólks.

Ályktuðu einnig um mannréttindi

Fundurinn skoraði einnig á stjórnvöld að lögfesta saming Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, innleiða vefaðgengistilskipun ESB með skýrari tímaramma og að lögfesta tengingar örorkulífeyris við launavísitölu.

„Þessi mál, sem varða grundvallarmannréttindi fatlaðs fólks, eru þegar til meðferðar eða í undirbúningi á Alþingi. Með því að tryggja framgang þeirra getur Alþingi sýnt raunverulega ábyrgð og stigið skref í átt að réttlátara, aðgengilegra og mannúðlegra samfélagi, þar sem enginn er skilinn eftir.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×