Samráðsdagar á Kjalarnesi Ævar Harðarson skrifar 15. maí 2025 10:01 Hvar verður best að búa á stór-Reykjavíkursvæðinu í framtíðinni og hvernig getum við gert góð hverfi eins og Grundarhverfi enn betri? Þessum og fleiri spurningum var velt upp á vel heppnuðum samráðsdögum í Klébergsskóla og Kjalarnesi 29. og 30. apríl síðastliðin. Þá hófst formlega vinna við endurskoðun aðalskipulags á Kjalarnesi og hverfisskipulag fyrir Grundarhverfi og nágrenni. Á þessum samráðsdögum hittum við sem erum í forsvari fyrir þessa skipulagsvinnu fjölda áhugaverðra, fróðra og skemmtilegra Kjalnesinga á öllum aldri. Þeir brenna af ástríðu fyrir sína heimabyggð og vilja veg Kjalarnessins og þéttbýlinu í Grundahverfinu sem mestan. En við uppgötvuðum einnig einstæða náttúrufegurð undir mikilfenglegum hlíðum Esjunnar, veðurblíðu og mikla gestrisni í Klébergsskóla sem við þökkum fyrir. Samráðsdagarnir 29. til 30. apríl Samráðsdagarnir í Klébergsskóla voru þrískiptir. Fyrst á dagskrá voru samtöl við krakkana í skólanum. Seinna sama dag var íbúaþing þar sem íbúar og hagaðilar á Kjalarnesi ræddu framtíðarþróun byggðarinnar. Síðasti liðurinn í þessum fyrsta fasa samráðs var viðvera sérfræðinga frá helstu sviðum Reykjavíkurborgar til að ræða og taka á móti ábendingum frá Kjalnesingum. Krakkarnir í Klébergsskóla taka þátt í samráði um skipulag á Kjalarnesi. Krakkar á Kjalarnesi Krakkarnir í Klébergsskóla tóku öll þátt í samráðinu frá 1. til 10 bekkjar. Samráðið fór fram í samkomusal skólans. Þar var búið að setja upp sýningu með veggspjöldum og módelum af hverfinu sem krakkar í skólanum höfðu byggt nokkrum árum áður. Árgangarnir komu síðan einn af öðrum með sínum kennurum og gátu ýmist lagt forskrifaða miða á módelin eða skrifað miða með eigin ábendingum um hvað væri gott og hvað mætti bæta í hverfinu þeirra. Helstu niðurstöður krakkanna voru að það væri gott að búa á Kjalarnesi. Þar væri flott náttúra, gott veður og nálægðin við sjóinn skipti máli. Til að gera hverfið enn betra mætti byggja meira og fjölga íbúum og komu þau með ábendingar um svæði. Einnig að það vantaði meiri þjónustu eins og matvöruverslun, ísbúð, húsdýragarð, fleiri leiksvæði og tré og gróður í hverfið. Hvað sögðu íbúarnir? Íbúarnir vilja efla þéttbýlið í Grundarhverfi. Þeir óska eftir því að við framtíðarskipulag svæðisins verði horft til þeirrar sérstöðu sem Kjalarnesið hefur á höfuðborgarsvæðinu við rætur Esjunnar og við ströndina. Þar séu tækifæri til að búa til einstaka byggð. Í því sambandi var hugtakið „sveit í borg“ oft nefnt til að ná utan um þær sérstöku aðstæður og lífsgæði sem hin mikla nálægð við náttúruna býður upp á. Þátttakendur á íbúaþingi 29. apríl ræða styrkleika og sóknarfæri á Kjalarnesi. Íbúar töldu að við þróun þéttbýlisins þyrfti að byggja upp fjölbreyttar íbúðir sem henti sem flestum. Kjalnesingar vilja lágreista byggð sem passar alls konar fólki á öllum aldri og ekki sýnst ungum Kjalnesingum sem vilja búa áfram í hverfinu sínu. En það vantar líka hjúkrunarheimili fyrir veika og gamla sem vilja vera áfram í heimabyggð. Í stórum dráttum vilja Kjalnesingar að byggðin stækki og eflist til muna og að það verði byggt, því hjá þeim sé nægt land fyrir framtíðarbyggð. Eindregnar óskir komu fram um að þróa byggðina til vestur fyrir neðan Vesturlandsveginn. Samfara uppbyggingu þarf að styrkja innviði eins og verslun og þjónustu þannig að Kjalnesingar geti líka keypt í matinn í sínu nærumhverfi. Einnig að byggt verði húsnæði fyrir íþrótta- og tómstundastarf, leikskóla og skóla. Uppbygging atvinnu á svæðinu var rædd en í dag er veruleg atvinnustarfsemi á Kjalarnesi. Þar er umfangsmikil matvælaframleiðsla eins og svína-, kjúklinga- og eggjaframleiðsla. Skiptar skoðanir voru þó um þessa starfsemi í nágrenni við þéttbýlið. Ferðaþjónusta er vaxandi atvinnugrein á Kjalarnesi. Þar er fallegur golfvöllur í Brautarholti og eitt vinsælasta útvistarsvæði höfuðborgarsvæðis í og við Esjuna. Fram komu áhugaverðar hugmyndir um uppbyggingu á ferðaþjónustu, nýjum atvinnugreinum og plássfrekri starfsemi enda mikið landrými. Samgöngur skipta Kjalnesinga miklu máli. Íbúar leggja mikla áherslu á að bæta almenningssamgöngur, einkum til að mæta þörfum barna og ungmenna. Í því sambandi var nefnt að það vantaði fleiri stoppistöðvar á leiðinni frá Mosfellsbæ og upp að Hvalfjarðargöngum. Það er nokkuð ljóst að þeir sem búa á Kjalarnesi þurfa að eiga bíl og jafnvel fleiri en einn til að daglegt líf gangi upp. Hugmyndin um „sveit í borg“ gengur erfiðlega upp með bíllausum lífstíl. Til að bæta samgöngur töldu bæði krakkarnir í Klébergsskóla og hinir fullorðnu að hraða þyrfti uppbyggingu Sundabrautar og breikka og laga Vesturlandsveg. En þar þarf líka að tryggja öruggar tengingar inn á Vesturlandsveg frá þéttbýlinu í Grundarhverfi. Íbúar, landeigendur og sérfræðingar borgarinnar skiptast á skoðunum á seinni degi samrásdagana. Útivist, náttúruvernd og skógrækt var mikið rædd enda Kjalnesingum umhugað um að vernda og styrkja sérkenni svæðisins. Netkönnun um til að fanga hugmyndir Kjalnesinga um aðalskipulag og hverfiskipulag. Íbúum finnst afar gott að búa á Kjalarnesi og í Grundarhverfi og vilja að fleiri íbúar komi til að efla þessa góðu byggð. Öryggi er þar mikið og náttúrvá lítil sérstaklega á flatlendinu við ströndina í Grundarhverfi og nágrenni. Veðrið er líka gott og okkur var sagt að það væri að meðaltali 1,5 gráðu heitara þar en í Reykjavík. Getur einhver góður veðurfræðingur staðfest þetta? Fram kom að til þess að öflug uppbygging geti hafist þurfa borgaryfirvöld að styðja við með góðu og heildstæðu skipulagi fyrir byggð í Grundarhverfi og nágrenni. Netkönnun - Ákall um meiri þátttöku Til að fá fram hugmyndum og óskum enn fleiri Kjalnesinga opnar í dag spurningakönnun á vefsvæði hverfisskipulags fyrir Kjalarnes (reykjavik.is/hverfisskipulag/kjalarnes). Könnunin kemur í framhaldi af umræddum samráðsdögum. Tilgangurinn er fyrst og fremst að ná til enn fleiri íbúa á Kjalarnesi og draga enn frekar fram hugmyndir íbúa um helstu styrkleika og sóknarfæri í þessum stærsta en fámennasta borgarhluta Reykjavíkur. Íbúar eru eindregið hvattir til að taka þátt í könnuninni sem verður opin til 1. júní. Netkönnun um til að fanga hugmyndir Kjalnesinga um aðalskipulag og hverfiskipulag. Höfundur er deildarstjóri Hverfisskipulag Reykjavíkur/ Ph.D. arkitekt Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ævar Harðarson Skipulag Reykjavík Mest lesið Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Skoðun Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar