Menning

Birta Sól­veig fer með hlut­verk Línu Langsokks

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Hér má sjá þær Sigrúnu Eddu Björnsdóttur, Margréti Vilhjálmsdóttur, Ilmi Kristjánsdóttur og Ágústu Evu Erlendsdóttur, sem allar hafa túlkað hina ástsælu Sigurlínu Rúllugardínu Nýlendínu Krúsimundu Efraímsdóttur í atvinnuleikhúsi, ásamt Birtu Sólveigu Söring Þórisdóttur fyrir miðju.
Hér má sjá þær Sigrúnu Eddu Björnsdóttur, Margréti Vilhjálmsdóttur, Ilmi Kristjánsdóttur og Ágústu Evu Erlendsdóttur, sem allar hafa túlkað hina ástsælu Sigurlínu Rúllugardínu Nýlendínu Krúsimundu Efraímsdóttur í atvinnuleikhúsi, ásamt Birtu Sólveigu Söring Þórisdóttur fyrir miðju. Þjóðleikhúsið

Birta Sólveig Söring Þórisdóttir mun fara með hlutverk Línu Langsokks í nýrri uppsetningu Þjóðleikhússins sem verður frumsýnd þann 13. september næstkomandi. Nú þegar hafa hátt í fimmtán þúsund miðar selst og stefnir í að allar 40 sýningarnar verði uppseldar fyrir frumsýningu.

Birta útskrifaðist af leikarabraut Listaháskóla Íslands árið 2024 og lauk áður söngnámi. Hún þreytti frumraun sína í Þjóðleikhúsinu í söngleiknum Stormi og lék Auði í Litlu hryllingsbúðinni hjá Leikfélagi Akureyrar. Fyrr í vikunni hlaut hún tilnefningu til Grímunnar sem leikkona ársins í aðalhlutverki – fyrir sitt fyrsta hlutverk í atvinnuleikhúsi. Í vetur lék hún einnig í sýningunum Frost og Yermau.

Í tilkynningu frá Þjóðleikhúsinu kemur fram að mikil eftirvænting hafi ríkt um hver færi með hlutverk Línu í þessari metnaðarfullu uppfærslu. Sýningin verður heljarinnar sjónarspil sem höfðar til breiðs aldurshóps.

Fimm flottar Línur

Eldri leikkonur sem hafa áður túlkað hina ástsælu Sigurlínu Rúllugardínu Nýlendínu Krúsimundu Efraímsdóttur í atvinnuleikhúsi hittust í vikunni og buðu Birtu velkomna í hópinn. Meðal þeirra eru Sigrún Edda Björnsdóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir, Ilmur Kristjánsdóttir og Ágústa Eva Erlendsdóttir.

Leikstjóri sýningarinnar er Agnes Wild, sem hefur vakið mikla athygli fyrir frábærar barnasýningar. Karl Olgeirsson er tónlistarstjóri og má m.a. nefna einstaklega vel heppnaðar útsetningar hans á lögunum í Kardemommubænum. Finnur Arnar hannar leikmynd, Eva Björg Harðardóttir sér um búninga, Elma Rún Kristinsdóttir er danshöfundur og Ásta Jónína og Björn Bergsteinn hanna lýsingu. Þórarinn Eldjárn er þýðandi verksins.

Lína Langsokkur er meðal ástsælustu barnabóka hins vestræna heims og hefur notið gríðarlegra vinsælda meðal barna á Íslandi. Hún er óborganlega skemmtileg og uppátækjasöm, en sagan er einnig mannleg og falleg. Lína Langsokkur þykir frábær fyrirmynd – en nú eftir rúma viku verður því fagnað víða um heim að 80 ár eru liðin frá því að Astrid Lindgren skapaði þessa ástsælu persónu.

Nánar um sýninguna á vef Þjóðleikhússins.


Tengdar fréttir

Stormur í Þjóðleikhúsinu

Ég sat í auga stormsins og naut hverrar mínútu. Una Torfa getur leikið, látið engan segja ykkur annað. Hún syngur og semur lög og texta sem hafa hrifið kynslóð hennar og uppfyrir. Hún er með dásamlega rödd sem þú þekkir um leið og þú heyrir hana syngja. Hún er mjög góður texta- og lagasmiður. Þú getur vart beðið um meira.

Gleði þegar Unnur og Una frumsýndu loksins Storm

Söngleikurinn Stormur eftir þær Unni Ösp og Unu Torfa var frumsýndur með pompi og prakt í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi. Hátíðarstemning var í loftinu og eftirvæntingin mikil.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.