Fólk látið vinna of hratt og fái ekki greitt fyrir alla vinnuna Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 23. maí 2025 21:41 Ræstingafólki er oft úthlutaður allt of stuttur tími fyrir verkið sem það á að inna af hendi að sögn Eflingar. Getty Ræstingafólk, sem þrífur starfsstöðvar ríkisstofnana, fær ekki greitt fyrir alla þá vinnu sem það innir af hendi. Formaður Eflingar segir ræstingafyrirtæki úthluta fólkinu of litlum tíma fyrir hvert verk og ekki greiða meira ef verkið tekur lengri tíma.
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar sagði í viðtali við Ríkisútvarpið í gær að félagið íhugi aðgerðir eftir að Fjársýsla ríkisins og Reykjavíkurborg endurnýjuðu samninga við ræstingafyrirtæki, sem virði ekki kjarasamninga. Sólveig og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, funduðu með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og Ingu Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra í lok febrúar vegna málsins. Sólveig segist hafa gengið vongóð út af þeim fundi. „En svo því miður leið allt of langur tími á milli þess að sá fundur átti sér stað og í gær, þegar ég loksins fékk í gær,“ segir Sólveig Anna. Útgjöld ríkisins til ræstinga aukist um 80% á fimm árum Eftir að fréttin birtist hafði fulltrúi ríkisstjórnarinnar samband við Sólveigu og á nú að fara í vinnu til að koma til móts við kröfur Eflingar og SGS. Útgjöld ríkisins til ræstinga hafa aukist um tæplega 80 prósent á fimm árum á meðan verðlag hefur hækkað um tæp 40 prósent. Árið 2019 voru heildarútgjöld ríkisins til ræstinga rúmir 1,5 milljarðar króna en í fyrra námu þau tæpum 3 milljörðum. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir samskipti stéttarfélagsins við ræstingarfyrirtækin ekki hafa verið góð.Vísir/Einar Stærstu ræstingafyrirtækin sem starfa fyrir ríkið eru Dagar hf., en um helmingur þjónustunnar er keyptur þaðan, og svo Sólar ehf., IClean ehf. og Hreint ehf. en frá þeim kaupir ríkið um 14-28 prósent af ræstingaþjónustu. „Það er stóri kerfislægi vandinn sem er til staðar inni í öllum ræstingabransanum á Íslandi. Það er verið að láta fólk vinna allt of hratt en það er ekki að fá greitt í samræmi við það,“ segir Sólveig. Fái þriðjung tímans sem verkið tekur Dæmi eru um að fólk sé látið ræsta úthlutað svæði á þriðjungi þess tíma sem vinnan ætti að taka - ef verkið tekur lengri tíma en áætlað er fær viðkomandi ekki greitt fyrir umframtímann. Til dæmis hefur verið gerð krafa um að svæði skuli ræst á tveimur klukkustundum en það ætti að taka sex klukkutíma, samkvæmt uppmælingum ráðgjafafyrirtækis. Viðkomandi ræstitæknir færi aðeins greitt fyrir tveggja tíma vinnu, sama hvort það takist eða ekki. „Hver einast uppmæling sem við höfum látið framkvæma hefur leitt í ljós að fólk er að fá úthlutað allt of skömmum tíma og er ekki að fá greidd laun í samræmi við þá vinnu sem það er að inna af hendi,“ segir Sólveig. Hún segir samskiptin við fyrirtækin ekki hafa verið góð. „Það virðist vera sem svo að eigendur ræstingafyrirtækjanna séu einfaldlega búnir að ákveða að þeir geti komist upp með að framkvæma hlutina með þessum hætti. Það er kannski ekkert skrítið vegna þess að hið opinbera endurnýjar í sífellu samninga við þessi fyrirtæki sem komast svo upp með að halda vinnufyrirkomulaginu sem þessu.“ Ekki í boði að taka bara lægsta tilboðinu Við þetta starfi mjög jaðarsett fólk. „Könnun Vörðu leiddi í ljós að þetta eru 80 prósent konur, næstum 80 prósent innflytjendur og þetta er sá hópur á íslenskum vinnumarkaði sem býr við verstar aðstæður allra. Það eru lægstu launin, mesta áreitið, verstu framkomuna og þetta fólk lifir við verstu fátæktina,“ segir Sólveig. „Þau koma mjög illa út úr því þegar spurt er hvort þau geti veitt börnunum sínum eðlilega hluti eins og jólagjafir og afmælisgjafir.“ Efling fer fram á að ríkið breyti nálgun sinni að útboðum. „Það er ekki lengur í boði fyrir hið opinbera að taka alltaf bara lægsta tilboðinu vegna þess að ef það er gert er full vitneskja að það er verið að fara að gera viðskipti við fyrirtæki sem er að borga léleg laun,“ segir Sólveig. „Það verður að tryggja að þriðji aðili framkvæmi þessar uppmælingar til þess að það sé alveg á hreinu hve langan tíma tekur að þrífa hvert svæði fyrir sig. Þá er hægt að skoða með einföldum hætti: Er verið að láta fólk vinna of hratt? Er eðlilegur vinnutaktur? Er fólk að fá greidd laun fyrir sína unnu vinnu?“
Stéttarfélög Kjaramál Rekstur hins opinbera Vinnumarkaður Tengdar fréttir „Algjörlega brjálæðislegt að sjá“ Formaður Eflingar segir borgarstjóra vera með sexföld laun láglaunakvenna hjá borginni. Opinber yfirstétt virðist hafa meiri áhuga á að greiða sér „brjálæðislega há laun“ en að vinna að stöðugleika. Hið opinbera hafi tekið upp nýja launastefnu með kjarasamningi við kennara sem Efling ætli sér að miða við í viðræðum. 6. mars 2025 09:46 ASÍ fordæmir „siðlausa framgöngu“ í garð ræstingafólks Alþýðusamband Íslands fordæmir „siðlausa framgöngu“ í garð ræstingafólks. Það krefst þess að ræstingafyrirtæki greiði starfsmönnum sínum í samræmi við gerðakjarasamninga. 19. febrúar 2025 19:45 „Maður úr innsta hring íslenskrar stjórnsýslu“ reyni að afvegaleiða umræðuna Formaður Eflingar sakar framkvæmdastjóra Umbru, þjónustumiðstöðvar Stjórnarráðsins, um að segja ósatt um að brot fyrirtækisins iClean á ræstingafólki hafi ekki legið fyrir þegar Umbra endurnýjaði samning við fyrirtækið. Ágætt væri ef framkvæmdastjórinn myndi skammast sín og biðjast afsökunar. 19. febrúar 2025 13:15 Mest lesið Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Fleiri fréttir Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Sjá meira
„Algjörlega brjálæðislegt að sjá“ Formaður Eflingar segir borgarstjóra vera með sexföld laun láglaunakvenna hjá borginni. Opinber yfirstétt virðist hafa meiri áhuga á að greiða sér „brjálæðislega há laun“ en að vinna að stöðugleika. Hið opinbera hafi tekið upp nýja launastefnu með kjarasamningi við kennara sem Efling ætli sér að miða við í viðræðum. 6. mars 2025 09:46
ASÍ fordæmir „siðlausa framgöngu“ í garð ræstingafólks Alþýðusamband Íslands fordæmir „siðlausa framgöngu“ í garð ræstingafólks. Það krefst þess að ræstingafyrirtæki greiði starfsmönnum sínum í samræmi við gerðakjarasamninga. 19. febrúar 2025 19:45
„Maður úr innsta hring íslenskrar stjórnsýslu“ reyni að afvegaleiða umræðuna Formaður Eflingar sakar framkvæmdastjóra Umbru, þjónustumiðstöðvar Stjórnarráðsins, um að segja ósatt um að brot fyrirtækisins iClean á ræstingafólki hafi ekki legið fyrir þegar Umbra endurnýjaði samning við fyrirtækið. Ágætt væri ef framkvæmdastjórinn myndi skammast sín og biðjast afsökunar. 19. febrúar 2025 13:15