Lífið

Stjörnulífið: Fröllur í poka og franska rívíeran

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Það var allt á útopnu í liðinni viku hjá stjörnum landsins.
Það var allt á útopnu í liðinni viku hjá stjörnum landsins.

Það var allt á útopnu hjá stjörnum landsins í liðinni viku. Ber þar að nefna skvísufrí erlendis, sumarbrúðkaupin sem eru komin á fullt, árshátíðir fyrirækja, tónleikar og fleira. 

Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.


Franska rívíeran og Formúlan

LXS-skvísurnar Birgitta Líf Björnsdóttir, Ástrós Traustadóttir, Sunneva Einarsdóttir, Hildur Sif Hauksdóttir, Magnea Björg Jónsdóttir og Ína María Einarsdóttir eru staddar í Cannes í Frakklandi þar sem þær njóta lífsins á frönsku ríverunni. Allar birtu þær myndir frá ferðinni sem virðist draumkennd. Sól, góður matur og vellystingar í fallegu umhverfi, það gerist varla betra. Þá fóru þær einnig á formúluna í Monakó.

„Engar fröllur í poka hérna“

Gerður Arinbjarnardóttir, eigandi Blush, sýndi óbeinan stuðning við Birgittu Líf Björnsdóttur, markaðsstjóra, með færslu á samfélagsmiðlum. Hún birti mynd af sér í rúminu á hóteli í Barcelona með McDonald's-franskar og skrifaði: „Engar fröllur í poka hérna. #girlpower.“

Tilefnið var athugasemd frá Enok Vatnari Jónssyni, sjómanni og athafnamanni, sem lét falla niðrandi ummæli um Birgittu Líf, barnsmóður sína og fyrrverandi kærustu. Ummælin hafa vakið mikla athygli og hneykslun meðal þeirra sem fylgjast með vinsælustu áhrifavöldum landsins.

Enok skrifaði kaldhæðna athugasemd við TikTok-myndband þar sem Birgitta Líf kom fyrir. Þar sagði hann: „Settu franskarnar í pokann“ – slanguryrði sem notað er til að niðurlægja einhvern og gefa í skyn að það sem viðkomandi hefur að segja skipti engu máli.

Sumarbrúðkaup

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir var stórglæsileg í bleikum kjól í brúðkaupi um helgina. Hún og bróðir hennar Magnús voru veislustjórar saman. Tóku þau meðal annars lag tileinkað brúðhjónunum, Eurovision-lag með íslenskum texta sérsniðið að turtildúfunum.

Fanney Ingvarsdóttir, áhrifavaldur og markaðsfulltrúi Bioeffect var glæsileg í brúðkaupi hjá góðum vinum um helgina.

Kúrekastelpur

Tónlistarkonan Guðrún Eyfjörð var glæsileg í smart kúrekadressi sem var sérhannað á hana af fatahönnuðinum Sigríði Ágústu.

Stórtónleikar Rottweiler

Tónlistarkonan Gugusar hitaði upp fyrir XXX Rottweiler þegar sveitin hélt 25 ára afmælistónleika sína í Laugardalshöll á laugardaginn.

Tónlistarkonan Svala Björgvins kom fram á tónleikunum.

Stórtónleikar í New York

Áhrifavaldurinn Camilla Rut Rúnarsdóttir fór á tónleika Beyoncé í New York.

Elskar maímánuð!

Friðþóra Sigurjónsdóttir, áhrifavaldur og kærasta Prettyboitjokkó, birti skemmtilega myndasyrpu frá sólríkum stundum í maí.

Árshátíðargleði

Tískudrottningin og markaðsfræðingurinn Sigríður Margrét var glæsileg á árshátíð 66° norður.


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Bikiní dress vikunnar

Liðin vika var umvafin sól og sælu. Íslendingar nutu veðurblíðunnar um helgina og birtu myndir af sér ýmist á hlaupum, í miðborginni eða í sólbaði með svalandi drykk á sundfötunum. Eurovision setti sinn svip á vikuna þar sem Væb-bræður kepptu fyrir Íslands hönd og stóðu sig með prýði.

Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju

Tónlistarkonan og stórstjarnan Laufey Lín Jónsdóttir tilkynnti í gær að hún mun gefa út sína þriðju plötu, A Matter of Time, þann 22. ágúst næstkomandi. Platan kemur út á vínyl og í tengslum við útgáfuna birti hún myndband á TikTok þar sem hún dansar og syngur við lag Herra Hnetusmjörs, Elli Egils, á meðan hún áritar tugþúsundir eintaka.

Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn

Liðin vika var lífleg og viðburðarík hjá stjörnum landsins þar sem skemmtanalífið var með líflegasta móti. Mæðradagurinn var haldinn hátíðlegur í gær og voru Íslendingar duglegir að senda kveðjur á mæður sínar. Þá stóð Bakgarðshlaupið yfir um helgina en því lauk í morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.