Kerkez spilar ekki með Ungverjum: Sagður á leið til Liverpool að skrifa undir Ágúst Orri Arnarson skrifar 5. júní 2025 15:47 Milos Kerkez mun ekki spila með Ungverjalandi gegn Svíþjóð á morgun. Hann er sagður á leið til Liverpool. Alex Caparros - UEFA/UEFA via Getty Images Félagaskipti Milos Kerkez frá Bournemouth til Liverpool virðast vera á lokametrunum. Leikmaðurinn mun ekki spila með ungverska landsliðinu á morgun og er sagður á leið til Liverpool að ganga frá læknisskoðun og samningsmálum.
Kerkez var einn af betri vinstri bakvörðum ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili og eftirsóttur af Liverpool og Manchester City meðal annars. Hann er metinn á um 45 milljónir punda. Hjá Liverpool er það Richard Hughes, yfirmaður knattspyrnumála, sem leiðir viðræðurnar. Maðurinn sem keypti Kerkez til Bournemouth frá AZ Alkmaar árið 2023, sem er talið hafa hjálpað við að sannfæra hann um að semja við Liverpool. Milos Kerkez var einn besti vinstri bakvörður ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili. Robin Jones - AFC Bournemouth/AFC Bournemouth via Getty Images Viðræðurnar hafa gengið vel og nú hefur Marco Rossi, landsliðsþjálfari Ungverjalands, sagt að Kerkez spili ekki leikinn gegn Svíþjóð á morgun. Engin meiðsli voru nefnd í því samhengi og spekingar spá því að ástæða fjarverunnar sé ferðalag til Liverpool. Liverpool var í leit að hægri bakverði eftir brotthvarf Trent Alexander-Arnold frá félaginu til Real Madrid og samdi við Jeremie Frimpong frá Bayer Leverkusen. Þá er talið að vinstri bakvörðurinn Andy Robertson yfirgefi félagið í sumar og fari mögulega til Celtic í heimalandinu Skotlandi. Mögulega taki Robertson þó að sér hlutverk varamanns á næsta tímabili, ef Kostas Tsimikas verður seldur. Kerkez er hugsaður sem byrjunarliðsmaður í vinstri bakverðinum.
Enski boltinn Mest lesið Joshua kjálkabraut Paul Sport Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Dagskráin í dag: Enski boltinn í tíu klukkutíma Sport Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Enski boltinn „Komum eins og aumingjar inn í þennan leik“ Körfubolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti „Jólasteikin mun bragðast betur í ljósi þessa sigurs“ Körfubolti Fleiri fréttir Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Alexander Isak fékk sænska gullboltann „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Garnacho skaut Chelsea áfram í undanúrslit Vísa á bug fullyrðingum Bruno sem hafa valdið fjaðrafoki Hlaut 21 árs dóm fyrir að aka inn í skrúðgönguna í Liverpool Bjarni segir Newcastle stærra félag en Tottenham Moyes ældi alla leiðina til Eyja Bróðirinn sendir Amorim skilaboð: „Frelsið Kobbie Mainoo“ „Besta frammistaða United undir stjórn Amorim“ Segir að Salah muni sjá eftir því að fara í janúar Sjáðu mörkin úr ótrúlegu átta marka jafntefli á Old Trafford Skemmtilegt fyrir fólkið heima og United verðskuldaði sigur Sjá meira