Samstarf

Stein­kast og rispur? Ekki lengur vanda­mál með lakkvarnarfilmu frá Bónsvítunni

Bónsvítan
Lakkvarnarfilma, eða Paint Protection Film (PPF), er gegnsæ plastfilma sem lögð er á yfirborð bílsins og virkar eins og ósýnileg brynja. „Við bjóðum upp á eina þá fullkomnustu sem völ er á: Kavaca PPF frá Ceramic Pro,“ segir Kristinn Sigurjónsson, eigandi Bónsvítunnar.
Lakkvarnarfilma, eða Paint Protection Film (PPF), er gegnsæ plastfilma sem lögð er á yfirborð bílsins og virkar eins og ósýnileg brynja. „Við bjóðum upp á eina þá fullkomnustu sem völ er á: Kavaca PPF frá Ceramic Pro,“ segir Kristinn Sigurjónsson, eigandi Bónsvítunnar.

Rispur í lakki bíla eftir steinkast á vegum, sandrok, salt og stöðugar veðrabreytingar eru veruleiki bíleigenda á Íslandi og flest þekkjum við vonbrigðin við fyrstu rispuna á glænýjum bíl. Bónsvítan er með lausnina og býður upp á sérsniðna þjónustu fyrir allar gerðir bíla.

„Lausnin heitir lakkvarnarfilma, eða Paint Protection Film (PPF), sem er gegnsæ plastfilma sem lögð er á yfirborð bílsins og virkar eins og ósýnileg brynja. Við bjóðum upp á eina þá fullkomnustu sem völ er á: Kavaca PPF frá Ceramic Pro,“ segir Kristinn Sigurjónsson, eigandi Bónsvítunnar.

Kavaca filman sem Bónsvítan notar er ekki aðeins þykk og sterk, hún er 190 míkróns, eða tvöfalt þykkari en hefðbundið bílalakk – heldur hefur hún einnig innbyggða keramik blöndu sem bætir verndina til muna. Filman veitir einnig vörn gegn útfjólubláum geislum, hrindir frá sér vatni og auðveldar að halda bílnum hreinum í öllum veðrum.

„Það sem gerir þessa filmu enn sérstæðari eru svokallaðir sjálfheilandi eiginleikar. Þ.e. ef rispur koma í filmuna þá getur sólarhiti verið nægur til að hita yfirborðið svo rispurnar hverfa – einnig er hægt að hella heitu vatni yfir þær með sama árangri,“ segir Kristinn.

Íslenskt veðurfar býður ekki alltaf upp á sterkt sólarljós, en með réttri uppsetningu heldur Kavaca filman sér glansandi og óskemmd, ár eftir ár. Þjónustan er sérhæfð og krefst mikillar nákvæmni. Starfsmenn Bónsvítunnar hafa sótt sérstök námskeið erlendis og fylgja ströngum verklagsreglum.

„Bíllinn er vandlega undirbúinn áður en filman er sett á; hann er hreinsaður, lakkið lagað ef þörf krefur, og hver einasta filma er annað hvort handskorin og sniðin nákvæmlega að hverri bílgerð. Við tökum bílinn nánast í sundur og leggjum mikinn metnað í verkið. Þess vegna líta bílar sem farið hafa í gegnum ferlið hjá okkur eins og þeir séu nýkomnir af færibandinu.

Einnig er hægt að setja filmu einungis á álagssvæði eins og framstuðara, húdd, hurðafalsa eða neðri hluta hurða. Þessi svæði verða oft fyrir mestu álagi, bæði frá umhverfi og daglegri notkun. Uppsetning á heilfilmuvörn getur tekið um fjóra til fimm daga, en ef aðeins er verið að vinna með hluta bílsins getur verkið klárast á einum til tveimur dögum.

Verðið ræðst af umfangi verksins. Full frontal – það er framstuðari, húdd, frambretti og framljós – kostar frá 270.000 krónum. Heilfilma á allan bílinn byrjar frá 600.000 krónum.

Þetta er einfalt: þú kemur með bílinn, við metum þörfina og gerum heiðarlegt tilboð. Þú ferð út með ósýnilega brynju og hugarró – tilbúinn í næsta steinkast. Bíll með óskemmdu lakki heldur betur verðgildi sínu,“ segir Kristinn.

Nánari upplýsingar um lakkvarnarfilmuna má finna á vef Bónsvítunnar og þar er hægt að hafa beint samband við starfsfólk fyrirtækisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×