Menning

Ragga Gísla er borgarlistamaður Reykja­víkur

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Tónlistarkonan Ragnhildur Gísladóttir var útnefnd borgarlistamaður við hátíðlega athöfn í Höfða í dag.
Tónlistarkonan Ragnhildur Gísladóttir var útnefnd borgarlistamaður við hátíðlega athöfn í Höfða í dag. Róbert Reynisson

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri útnefndi í dag Ragnhildi Gísladóttur tónlistarkonu, borgarlistamann Reykjavíkur 2025 við hátíðlega athöfn í Höfða.

Frá þessu er greint í fréttatilkynningu en hefð er fyrir því að útnefningin fari fram á 17. júní. 

Útnefningin er heiðursviðurkenning til listamanns sem með listsköpun sinni hefur skarað fram úr og markað sérstök spor í íslensku listalífi. Fram kemur að valnefndin hafi verið einhuga um að útnefna einstakling sem hefði sýnt fordæmi í því að fylgja sinni eigin sannfæringu í list og lífi. 

Ragnhildi var á athöfninni veittur ágrafinn steinn, heiðursskjal og verðlaunafé og við athöfnina fluttu Bryndís Jakobsdóttir, dóttir Ragnhildar, og Lay Low tónlist úr smiðju Ragnhildar. 

Árið 2012 hlaut Ragnhildur riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistar. Í fréttatilkynningunni er gerð grein fyrir störfum og afrekum Ragnhildar í gegnum tíðina.

„Brautryðjandi og fyrirmynd“

Ragnhildur Gísladóttir fæddist í Reykjavík 7. október 1956. Hún útskrifaðist sem tónmenntakennari frá Tónlistarskólanum í Reykjavík, lauk B.A.-prófi í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands árið 2008 og M.A.-prófi frá sama skóla árið 2013. Hún hóf tónlistarferilinn snemma og hefur áratugum saman heillað með sínum kraftmikla söng, ríkulegri túlkun og tilfinningaríkum flutningi. Með lagasmíðum sínum og sterkri nærveru hefur hún sett mark sitt á íslenskt menningarlíf á ýmsan hátt og er óumdeilanlega með þekktustu og ástsælustu nöfnum íslenskrar dægurtónlistar.

Ferill Ragnhildar spannar fjölbreytt verk og samstarf við mörg af stærstu nöfnum íslenskrar tónlistar. Hún var söngkona í hljómsveitunum Brunaliðinu, Grýlunum og Stuðmönnum og hefur leikið í mörgum kvikmyndum, til dæmis Með allt á hreinu og Ungfrúin góða og húsið. Þá er hún afkastamikið tónskáld, hefur meðal annars samið fyrir kvikmyndir, dans og leikhús og tekið þátt í ýmsum menningarhátíðum, svo sem Myrkum músíkdögum, Nordic Music Days og Reykjavík Dance Festival.

„Ragga Gísla, eins og hún er iðulega kölluð, hefur lengi verið brautryðjandi í íslensku tónlistarlífi, ekki síst fyrir kynslóðir íslenskra söngkvenna. Margar ungar konur í tónlist og á fleiri sviðum mannlífsins nefna Ragnhildi sem innblástur og fyrirmynd. Hún hefur hvatt þær til að finna sinn tón og standa með því sem skiptir þær máli,“ segir loks í tilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.