Innlent

Tveir skjálftar úti á Reykja­nes­hrygg

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Appelsínugulu punktarnir sýna upptök skjálftanna.
Appelsínugulu punktarnir sýna upptök skjálftanna. Veðurstofa Íslands

Tveir skjálftar mældust úti á Reykjaneshrygg í gærkvöldi, klukkan 23.49 og 23.51. Fyrri skjálftinn var 2,8 að stærð og seinni 2,5.

Engir aðrir skjálftar fylgdu í kjölfarið, að því er fram kemur í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

„Skjálftavirkni á Reykjaneshrygg er algeng en síðast varð skjálfti af svipaðri stærðargráðu þann 2. maí sl. og mældist hann 2,7 að stærð,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×