Innlent

Málið rann­sakað sem til­raun til mann­dráps

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Lögreglan á Suðurnesjum fer með rannsókn málsins.
Lögreglan á Suðurnesjum fer með rannsókn málsins. Vísir/Vilhelm

Héraðsdómur Reykjaness félst í dag á kröfu lögreglustjórans á Suðurnesjum um að gæsluvarðhald yfir íslenskum karlmanni, sem grunaður er um að hafa stungið mann í Reykjanesbæ 20. júní síðastliðinn, skuli framlengt um eina viku á grundvelli rannsóknarhagsmuna.

Frá þessu er greint í tilkynningu lögreglunnar á Suðurnesjum en þar segir að rannsókn málsins miði vel áfram, og árásarþolinn hafi verið útskrifaður af sjúkrahúsi.

Margrét Kristín Pálsdóttir, settur lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir að málið sé rannsakað sem tilraun til manndráps.

Árásin átti sér stað síðastliðinn laugardag þegar maðurinn, sem er á þrítugsaldri, réðst á mann á sjötugsaldri með hníf.

Tilkynnt var um árásina klukkan 22:16 og var maðurinn handtekinn á höfuðborgarsvæðinu rétt fyrir miðnætti og síðan úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald.


Tengdar fréttir

Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar

Lögreglan á Suðurnesjum hefur handtekið einn einstakling eftir alvarlega líkamsárás í Reykjanesbæ. Árásarþoli var með alvarlega stunguáverka og er á sjúkrahúsi en líðan hans er stöðug. Einstaklingurinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×