Hæstiréttur opnar á brottflutning til þriðja ríkis Hólmfríður Gísladóttir skrifar 4. júlí 2025 07:32 Suður-Súdan er stríðshrjáð land. Getty Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur lagt blessun sína yfir brottflutning átta manna til Suður-Súdan, jafnvel þótt aðeins einn þeirra eigi rætur sínar að rekja þangað.
Um er að ræða ólögregla innflytjendur í Bandaríkjunum sem hafa verið dæmdir fyrir alvarlega glæpi. Þeir dvelja nú á herstöð í Djíbútí, þar sem þeir hafa beðið þess að málið yrði útkljáð fyrir dómstólum vestanhafs. Brottflutningur mannanna var stöðvaður af dómara á lægra dómstigi, sem sagði að ef stjórnvöld vildu flytja fólk til þriðja ríkis þyrftu þau fyrst að sýna fram á að það myndi ekki sæta pyntingum. Hæstiréttur felldi þann dóm niður, án útskýringa, og lögmenn mannanna leituð aftur til áðurnefnds dómara sem stöðvaði brottflutninginn á ný. Stjórnvöld leituðu þá aftur til Hæstaréttar og kröfðust þess að dómstóllinn útskýrði ákvörðun sína og hvort hún ætti við um umrædda átta einstaklinga. Hæstiréttur sagði í gær að já, hann ætti við um þá. Dómararnir Sonia Sotomayor og Ketanji Brown Jackson andmæltu og sögðu ákvörðunina fela í sér að stjórnvöld myndu senda mennina, sem hefðu verið fluttir ólöglega úr landi til Djíbútí, til Suður-Súdan þar sem þeir yrðu afhentir þarlendum yfirvöldum án nokkurar staðfestingar á því að þeir yrðu ekki pyntaðir. Mennirnir eru frá Víetnam, Suður-Kóreu, Mexíkó, Laos, Kúbu og Mjanmar. Frá því að Donald Trump tók aftur við forsetaembætti hafa stjórnvöld sett sér það markmið að flytja fjölda ólöglegra innflytjenda úr landi, jafnvel til þriðja ríkis. Þau hafa meðal annars gert samning við El Salvador um að taka við mönnum og vista í fangelsi, jafnvel þótt þeir hafi ekki verið dæmdir fyrir glæp í Bandaríkjunum.
Bandaríkin Donald Trump Flóttamenn Suður-Súdan Hæstiréttur Bandaríkjanna Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Sjá meira