Lofar bongóblíðu við langþráð langborð Árni Sæberg skrifar 4. júlí 2025 15:17 Allar líkur eru á að sú gula láti sjá sig á Laugaveginum á morgun. Þorgeir Ólafsson Fimmtíu metra langborði með hvítum dúkum verður komið fyrir á Laugaveginum í miðborginni á morgun þar sem fólki verður boðið að koma saman yfir mat og drykk. Skipuleggjendur lentu í vandræðum með leyfisveitingu en nú hefur verið greitt úr öllu slíku og búist er við miklu betra veðri en þegar upphaflega átti að leggja á langborðið.
Ólafur Örn Ólafsson, einn skipuleggjenda langborðsins, segir í samtali við Vísi að á morgun verði viðburðurinn haldinn í fimmta skipti. Árið 2020 hefðu eigendur veitingastaðanna Vínstúkunnar, Sumac og Public house, sem eru allir á Laugavegi milli Klapparstígs og Frakkastígs, tekið höndum saman til þess að skapa stemningu í miðborginni. Fastur liður í menningarlífinu „Það er það sem vakti fyrir okkur fyrst. Það var einhver neikvæð umfjöllun um Laugaveginn á þeim tíma, það var verið að breyta þessu í göngugötu og það voru alls konar leiðindi. Þannig að við spurðum okkur, af hverju sækjum við ekki fleira fólk í bæinn og bjóðum upp á eitthvað skemmtilegt í staðinn fyrir að vera með barlóm?“ Gert er ráð fyrir því að alla vega þúsund manns fái sér sæti við langborðið á morgun.Þorgeir Ólafsson Það hafi virkað svo vel og verið svo gaman að þeir hafi haldið því áfram hvert einasta sumar frá 2020. langborðið sé orðinn fastur liður í menningarlífi borgarinnar. Í því samhengi nefnir Ólafur Menningarnótt og Gleðigönguna og hlær dátt. Góðu veðri og góðum mat spáð Ólafur segist búast við mikilli stemningu á Laugaveginum á morgun, enda hafi góðu veðri verið spáð. „Ég lofa líka góðum mat, það er búið að spá því líka. Það sem þetta er líka er vettvangur fyrir fólk til að hittast, það er engin dagskrá önnur en fólk að borða saman, fólk að hanga saman. Þetta snýst um máltíðina og klisjuna um að veitingastaðir séu samkomustaðir. Auðveldara að hafa gaman héðan í frá Greint var frá því um miðjan júní að íþyngjandi regluverk hefði sett langborðinu stólinn fyrir dyrnar þetta árið og aðstandendur hefðu þurft að fresta því. Undanfarin fjögur ár hefur langborðið verið sett upp í kringum sumarsólstöður og því átti að gera það þann 21. júní. „Það leystist úr því. Við höfum alltaf sótt um sama leyfið aftur og aftur og aftur, svo var allt í einu komin einhver reglugerð um það að það þyrfti að auglýsa í fjórar vikur svo við þurftum að fresta í tvær vikur.“ Það komi þó ekki að sök og allt bendi til þess að betra verði að dekka upp á morgun en fyrir tveimur vikum, veðrið verði betra og þar fram eftir götunum. „Og það virðist sem betur fer verið búið að greiða aðeins úr þessum leyfamálum. Ég held að Jóhann Páll [Jóhannson, umhverfis-, loftslags- og orkumálaráðherra] hafi gert það. Þannig að það er orðið ekki eins snúið og erfitt að gera eitthvað skemmtilegt.“
Matur Reykjavík Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira