Hentu frá sér leiknum með hörmungarbyrjun á seinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. júlí 2025 11:57 Hilmir Arnarsson var langstigahæstur á móti Rúmenum í dag. FIBA Basketball Íslenska tuttugu ára landslið karla tapaði með fimmtán stiga mun á móti Rúmeníu í dag, 72-57, í baráttunni um sæti níu til sextán í A-deild Evrópumótsins.
Íslenska liðið gerði vel framan af leik en þegar leið á leikinn hertu Rúmenar vörnina og kláruðu leikinn sannfærandi. Sigur hefði tryggt íslensku strákunum áframhaldandi veru í A-deildinni en liðið fær annan möguleika til þess í næsta leik. Hilmir Arnarsson var atkvæðamestur í íslenska liðinu með 23 stig en hitti aðeins úr 3 af 13 þriggja stiga skotum sínum. Lars Erik Bragason var með 12 stig, 5 fráköst og 3 stolna bolta. Friðrik Leó Curtis skoraði níu stig en þau komu öll þegar vel gekk í upphafi leiks. Íslensku strákarnir tóku frumkvæðið í fyrsta leikhlutanum, komust mest sjö stigum yfir en leiddu 22-20 eftir hann. Hilmir Arnarsson skoraði 10 stig í fyrsta leikhlutanum. Íslenska liðið skoraði sjö fyrstu stigin í öðrum leikhluta og náði í framhaldinu níu stiga forskoti en í hálfleik munaði fjórum stigum á liðunum, 39-35. Í seinni hálfleik lenti íslensku strákarnir á rúmenskum vegg. Rúmenarnir komu mjög grimmir eftir hálfleikinn og skoruðu fimmtán fyrstu stig seinni hálfleiks og voru komnir 50-39 yfir. Eftir það var mjög á brattann að sækja og íslenska liðinu tókst ekki að koma sér aftur inn í leikinn. Þeir minnkuðu reyndar muninn í fimm stig fyrir lokaleikhlutann, 53-38, en Rúmenarnir byrjuð fjórða leikhlutann síðan á 9-0 spretti og voru komnir aftur fjórtán stigum yfir, 62-48. Eftir það var ljóst hvernig færi. Töpuðu boltarnir voru mikið vandamál enda 28 samtals. Fimm leikmenn liðsins voru með fjóra eða fleiri tapaða bolta og rúmenska liðið skoraði 39 stig eftir töpuðu bolta íslensku strákanna.
Körfubolti Landslið karla í körfubolta Mest lesið PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Sjá meira