Atvinnulíf

Í vinnutengdri ástar­sorg

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Eitt af því sem gerir vinnutengda ástarsorg svo erfiða er að hún er ekki nógu viðurkennd í tali. Svona eins og þessi tegund ástarsorgar eigi ekki rétt á sér. Staðreyndin er þó sú að þótt vinnan geti aldrei elskað okkur til baka, getur margt valdið því að við upplifum vinnutengda ástarsorg.
Eitt af því sem gerir vinnutengda ástarsorg svo erfiða er að hún er ekki nógu viðurkennd í tali. Svona eins og þessi tegund ástarsorgar eigi ekki rétt á sér. Staðreyndin er þó sú að þótt vinnan geti aldrei elskað okkur til baka, getur margt valdið því að við upplifum vinnutengda ástarsorg. Vísir/Getty

Nei við erum ekki að fara að tala um framhjáhaldið sem óvart virtist komast upp á Coldplay-tónleikunum um daginn. En við erum samt að fara að tala um ástarsorg í vinnunni.

Sem þó er svolítið skrýtin ást. 

Því þótt mörg okkar elski vinnuna okkar. 

Elskar vinnan okkur aldrei til baka.

Við erum samt að tala um sams konar sorg; Þessa sorg þar sem hjartað brotnar svolítið. Eitthvað sem við tökum virkilega nærri okkur og setur okkur öll út af laginu. Á ensku er talað um þetta sem „professinal heartbreak.“ Enda er þetta vinnutengd ástarsorg.

En hvers konar ástarsorg er þetta og út af hverju?

Jú, í umfjöllun Harvard Business Review (HBR) eru rakin mörg ólík dæmi úr vinnuumhverfinu sem geta valdið okkur þessari vinnutengdu ástarsorg.

Nokkur dæmi:

Við missum vinnuna sem við elskum og höfum lengi eða mjög mikið tengt ímynd okkar við

Við seljum fyrirtækið okkar en líður ekki vel með það eftirá

Við gerum samning sem skiptir okkur svakalega miklu máli, en samningurinn gengur alls ekki upp eins og við gerðum okkur væntingar um. Gæti líka tengst því að fá fjárfesta inn eða samrunasamningar

Við vinnum að verkefni af öllu hjarta í langan tíma fyrir það eitt að það síðan gengur ekki upp eða því er hafnað

Þér finnst einhver eða einhverjir nákomnir þér í starfi eða tengslaneti hafa svikið þig, til dæmis með því að virða ekki trúnað

Enn eitt dæmið sem nefnt er í umfjöllun HBR er þegar konur sinna störfum sem þær vita að þær eru að fá mun lægra greitt fyrir miðað við sambærilegt framlag og karlmaður

Fleiri dæmi mætti nefna.

Það sem gerir þessa vinnutengdu ástarsorg svo erfiða, er að hún er ekki nógu viðurkennd. Segjum til dæmis að við séum miður okkar, þó að reyna að halda haus, því við misstum vinnuna okkar. Staðalímyndin okkar er að okkar mati í molum og okkur líður jafn ömurlega og manneskja sem er í ástarsorg út af parsambandi sem ekki gekk upp.

Viðkvæðið er samt ólíkt. Í staðinn fyrir að okkar nánustu segi að þessi líðan okkar sé skiljanleg en eftir smá tíma fari okkur að líða betur. Heyrum við frekar setningar eins og: Já, já, en þetta var nú bara vinnan þín…..

Sem er ekkert auðvelt að heyra. Því þegar við erum í vinnutengdri ástarsorg líður okkur ekki eins og eitthvað „bara“ eigi við.

En hvað er til ráða?

Í raun fátt annað en að leyfa hjartanu að jafna sig. Þessum óskiljanlegu og erfiðu tilfinningum sem ástarsorginni fylgir.

Það gerum við með því að viðurkenna fyrir okkur sjálfum og greina hvers konar tilfinningar og líðan eru að fylgja þessu „áfalli“ sem rekja má til upprunans.

Síðan þurfum við einfaldlega að vera heiðarleg við okkur sjálf og gefa okkur tíma til að jafna okkur. Leita jafnvel til fagaðila ef líðanin er þannig. Aðalmálið er að gera ekki lítið úr því að líða eins og okkur líður, því það getur þá dregist á langinn að við vinnum úr stöðunni.


Tengdar fréttir

Nýtt trend: Sami stjórnandinn að vinna fyrir mörg fyrirtæki

Það hefur ótrúlega margt breyst í atvinnulífinu um allan heim síðustu árin. Ekki aðeins vegna tækniþróunar heldur er það smátt og smátt að verða raunveruleiki að það að vinna frá níu til fimm á einhverjum vinnustað er hægt og rólega að hverfa sem „normið.“

Um forvitna yfirmanninn

Ef það eru einhverjir sem halda að nú séu þeir að detta inn í djúsí neikvæða grein um yfirmenn er best fyrir þá að hætta að lesa.

Ekki flaska á að undirbúa sumarfríið þitt í vinnunni

Við erum oft svolítið upptekin af því að klára allt sem þarf að klára fyrir sumarfrí. Og fáum síðan jafnvel samviskubit yfir því ef okkur tekst ekki að klára allt á verkefnalistanum áður en við förum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×