„Lít niður á alla þessa dópista sem mér er meint að hafa selt vopn“ Agnar Már Másson skrifar 19. júlí 2025 15:24 Ísidór Nathansson og fyrir aftan hann Sindri Snær Birgisson, sem voru sakborningar í málinu. Vísir/Vilhelm Einn sakborninga í hryðjuverkamálinu svokallaða segir í hlaðvarpsviðtali að hann finni ekki fyrir ábyrgð á skotárásum sem framdar hafi verið með vopnum sem hann smíðaði. Í þættinum talar hann opinskátt um að vera „hægri öfgamaður“.
Ísidór Nathansson, sem var annar sakborninga í hryðjuverkamálinu svokallaða, var gestur í Bjórkastinu, sem er á vegum Brotkasts. Ísidór og Sindri Snær Birgisson voru sýknaðir af ákæru um að undirbúa hryðjuverk en héraðsdómur sakfelldi þá báða fyrir vopnalagabrot. Málinu hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar. Eins og nafn hlaðvarpsins gefur til kynna eru veigar oft við hendi í þáttunum. Í hlaðvarpsþættinum talar Ísidór opinskátt um málið, sem hann hlaut 15 mánaða fangelsisdóm fyrir, en hann ræðir einnig um stjórnmálaskoðanir. „Fasistar eða hvað sem þú vilt kalla mig“ fengið á sig slæmt orðspor Ertu hægri öfgamaður? „Já,“ svarar Ísidór og beðinn um að útskýra nánar segir hann: „Ég hef til dæmis ekki mikla trú á lýðræði.“ Seinna í þættinum minnist hann samskipta sinna við sálfræðing sinn í fangelsi. „Hann sem svona sálfræðingur hélt virkilega að hann gæti leikið á mig og verið með einhver undirhandabrögð. Hann vissi náttúrulega mínar meintu skoðanir. Þú finnur sjaldan hóp... fasista eða hvað sem þú vilt kalla mig, sem er með jafn margar fyrirfram stimplaðar [skoðanir]. Hann ákveður bara hvað mér finnst,“ segir hann. „Áður en að þessi gaur [sálfræðingurinn] vissi það að bróðir ömmu minnar væri einn af samtökunum 76 [svo] eða svoleiðis — hann var meira að segja með eitthvað furðulegt nafn, Kíkí eða svoleiðis — hann var frumkvöðull í úrkynhneigð á [óskiljanlegt]. Þegar ég nefndi þetta var hann að covera fyrir þetta vegna þess að hann leit á þetta út frá minni meintu andúð á samkynhneigðum,“ bætir hann við og einn þáttastjórnandi skýtur inn í: „Það eru fordómar.“ Ekki vopnasalinn sem hleypir af byssunni Þá ræðir Ísidór einnig vopnaframleiðslu þeirra tvímenninga í hryðjuverkamálinu, talar um að hafa tekið þátt í framleiðslu og breytingum á skotvopnum, m.a. með 3D-prentun. Ísidór segir að þetta hafi byrjað sem tæknilegt áhugamál en þróast yfir í framleiðslu og sölu. „Ég sem öfgasinnaður og allt þetta... ég lít niður á alla þessa dópista sem mér er meint að hafa selt vopn,“ segir hann. „Allar þessar skotárásir sem hafa farið fram með þessum þrívíddaprentuðu vopnum, það er ekki hægt að kenna okkur um þetta. Eins og margir frjálshyggjumenn skilja þá er ekki hægt að kenna vopnaframleiðandanum um hver notar vopnin. Ég er ekki að afsaka afleiðingar af neinu en ég er ekki að segja það að ég eigi beinan þátt í því sem fór fram,“ bætir hann við en óljóst er til hvers hann vísar. Ísidór viðurkennir að hafa breytt Colt M4 rifli í hálfsjálfvirkt vopn. „Ein af ástæðunum af hverju við héldum okkur við þetta áhugamál er að samkvæmt íslenskri löggjöf er þetta bara sekt,“ sagði hann. En þeir fara um víðan völl fjórmenningarnir í Bjórkastinu og ræddu meðal annars mál Jeffery Epstein og „Júðabrúðuna“ Donald Trump Bandaríkjaforseta, eins og Ísidór kallar hana. Þeir ræddu kynferðisofbeldi, samkynhneigð, heimilisofbeldi, stöðu drengja í íslensku samfélagi, hneykslismál innan nýrrar forystu Sósíalistaflokksins svo einhver dæmi um umræðuefni séu nefnd.
Grunaðir um skipulagningu hryðjuverka Lögreglumál Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira