Sunneva veltir Evu Ruzu úr sessi Samúel Karl Ólason skrifar 19. ágúst 2025 11:14 Sunneva Eir Einarsdóttir og Eva Ruza Miljevic. Vísir/Anton/Vilhelm Sunneva Eir Einarsdóttir er tekjuhæst íslenskra áhrifavalda í ár og hefur hún þar með velt Evu Ruzu Miljevic úr efsta sætinu. Á eftir þeim koma Birgitta Líf Björnsdóttir, Páll Orri Pálsson og Reynir Bergmann. Þetta kemur fram í Tekjublaði Frjálsrar verslunar í ár. Þar kemur fram að Sunneva var með 1,74 milljónir á mánuði í fyrra. Eva Ruza var með 1,47 milljónir, Birgitta Líf með 1,2 milljónir, Páll Orri með 1,2 milljónir og Reynir Bergmann með 1,14 milljónir króna í laun á mánuði. Í fyrra var Eva Ruza efst á listanum og hafði verið það tvö ár í röð, Birgitta Líf var í öðru og Sunneva í því þriðja. Ólafur Jóhann Steinsson er í sjötta sæti með 1,1 milljón á mánuði. Pálina Axelsdóttir er í því sjöunda með 1,06. Brynjólfur Löve Mogensson er í áttunda sæti með rétt rúma milljón. Magnea Björg Jónsdóttir er í níunda með 941 þúsund krónur og Birta Líf Þórudóttir er í tíunda sæti með 940 þúsund krónur. Sunneva hefur undanfarið haldið úti Teboðinu, hlaðvarpsþætti ásamt vinkonu sinni Birtu Líf. Hægt er að kaupa áskrift að hlaðvarpinu en auk þess gáfu vinkonurnar nýlega út ístegund undir merkjum hlaðvarpsins, Bestís. Listi yfir tíu tekjuhæstu áhrifavaldana árið 2024: Sunneva Eir Einarsdóttir, áhrifavaldur – Teboðið - 1,7 milljónir króna. Eva Ruza Miljeciv, skemmtikraftur og útvarpsm. - 1,5 milljónir króna. Birgitta Líf Björnsdóttir, áhrifavaldur og markaðsstj. World Class - 1,2 milljónir króna. Páll Orri Pálsson, big income pally – verðbréfam. Íslandsbanka - 1,19 milljónir króna. Reynir Bergmann Reynisson, áhrifavaldur - 1,14 milljónir króna. Ólafur Jóhann Steinsson, Tiktok-stjarna og útvarpsm. FM957 - 1,1 milljón króna. Pálína Axelsdóttir Njarðvík, Instagram-stjarna - 1,06 milljónir króna. Brynjólfur Löve Mogensson, áhrifavaldur og ljósm. hjá MBL - 1,01 milljón króna. Magnea Björg Jónsdóttir, áhrifav. og markaðssérf. hjá Heklu - 941 þúsund krónur. Birta Líf Þórudóttir, áhrifavaldur – Teboðið - 940 þúsund krónur. Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í dag en rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2024 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2023 sem var greiddur árið 2024. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði. Verktakagreiðslur flokkast ekki sem útsvarsskyldar tekjur og eru því ekki teknar fyrir í álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem Tekjublaðið styðst við. Tekjur Kjaramál Mest lesið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Lífið Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Lífið Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Lífið „Þvílík gleði með þennan tíma“ Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Bíó og sjónvarp Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Lífið samstarf Fleiri fréttir Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors Sjá meira
Þetta kemur fram í Tekjublaði Frjálsrar verslunar í ár. Þar kemur fram að Sunneva var með 1,74 milljónir á mánuði í fyrra. Eva Ruza var með 1,47 milljónir, Birgitta Líf með 1,2 milljónir, Páll Orri með 1,2 milljónir og Reynir Bergmann með 1,14 milljónir króna í laun á mánuði. Í fyrra var Eva Ruza efst á listanum og hafði verið það tvö ár í röð, Birgitta Líf var í öðru og Sunneva í því þriðja. Ólafur Jóhann Steinsson er í sjötta sæti með 1,1 milljón á mánuði. Pálina Axelsdóttir er í því sjöunda með 1,06. Brynjólfur Löve Mogensson er í áttunda sæti með rétt rúma milljón. Magnea Björg Jónsdóttir er í níunda með 941 þúsund krónur og Birta Líf Þórudóttir er í tíunda sæti með 940 þúsund krónur. Sunneva hefur undanfarið haldið úti Teboðinu, hlaðvarpsþætti ásamt vinkonu sinni Birtu Líf. Hægt er að kaupa áskrift að hlaðvarpinu en auk þess gáfu vinkonurnar nýlega út ístegund undir merkjum hlaðvarpsins, Bestís. Listi yfir tíu tekjuhæstu áhrifavaldana árið 2024: Sunneva Eir Einarsdóttir, áhrifavaldur – Teboðið - 1,7 milljónir króna. Eva Ruza Miljeciv, skemmtikraftur og útvarpsm. - 1,5 milljónir króna. Birgitta Líf Björnsdóttir, áhrifavaldur og markaðsstj. World Class - 1,2 milljónir króna. Páll Orri Pálsson, big income pally – verðbréfam. Íslandsbanka - 1,19 milljónir króna. Reynir Bergmann Reynisson, áhrifavaldur - 1,14 milljónir króna. Ólafur Jóhann Steinsson, Tiktok-stjarna og útvarpsm. FM957 - 1,1 milljón króna. Pálína Axelsdóttir Njarðvík, Instagram-stjarna - 1,06 milljónir króna. Brynjólfur Löve Mogensson, áhrifavaldur og ljósm. hjá MBL - 1,01 milljón króna. Magnea Björg Jónsdóttir, áhrifav. og markaðssérf. hjá Heklu - 941 þúsund krónur. Birta Líf Þórudóttir, áhrifavaldur – Teboðið - 940 þúsund krónur. Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í dag en rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2024 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2023 sem var greiddur árið 2024. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði. Verktakagreiðslur flokkast ekki sem útsvarsskyldar tekjur og eru því ekki teknar fyrir í álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem Tekjublaðið styðst við.
Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í dag en rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2024 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2023 sem var greiddur árið 2024. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði. Verktakagreiðslur flokkast ekki sem útsvarsskyldar tekjur og eru því ekki teknar fyrir í álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem Tekjublaðið styðst við.
Tekjur Kjaramál Mest lesið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Lífið Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Lífið Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Lífið „Þvílík gleði með þennan tíma“ Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Bíó og sjónvarp Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Lífið samstarf Fleiri fréttir Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors Sjá meira