Kraftaverk að ekki fór verr þegar bíll hafnaði ofan á tveimur Tómas Arnar Þorláksson skrifar 24. ágúst 2025 12:02 Keppnin var sýnd í beinni útsendingu G7 media en útsending rofin þegar slysið átti sér stað. Bílinn lenti ofan á starfsmönnunum og voru fluttir á bráðamóttöku Landspítalans. Myndin er tekin við aksturssvæði AÍH í Hafnarfirði. vísir/Lýður Valberg Forsvarsmenn Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar segjast harmi slegnir vegna slyss sem átti sér stað í gær þar sem ökutæki hafnaði ofan á tveimur starfsmönnum. Það megi teljast kraftaverk að ekki hafi farið verr og verða verkferlar nú endurskoðaðir.
Tveir starfsmenn slösuðust á Íslandsmóti í Rallycross á akstursbraut Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar síðdegis í gær. Keppnin var í beinni útsendingu en þar mátti sjá þegar að ökumaður missti stjórn á ökutæki sínu með þeim afleiðingum að það veltir upp brekku og á tvær konur sem störfuðu við brautina. Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglu. Konurnar tvær eru á batavegi með beinbrot og tognanir en þær eru 20 og 21 árs. „Ein stór fjölskylda“ harmi slegin Akstursíþróttafélag Hafnarfjarðar harmar slysið en Linda Dögg Jóhannsdóttir, formaður félagsins, og Ari Halldór Hjaltason varaformaður segja í samtali við fréttastofu að verkferlar verði nú endurskoðaðir. „Þær sluppu ótrúlega vel frá þessu slysi. Önnur var útskrifuð í gærkvöldi og hin er undir eftirliti. Þær eru bara nokkuð sprækar. Við erum náttúrulega bara ein stór fjölskylda. Öll mjög tengd á brautinni og við hörmum mjög þetta slys. Að sjálfsögðu förum við í að skoða allt okkar verklag. Hvernig við getum komið í veg fyrir slys á fólki. Það er alltaf númer eitt, tvö og þrjú hjá okkur,“ sagði Linda. Starfsmennirnir tveir höfðu starfað þó nokkru sinnum við brautina og er önnur fyrrum keppandi. Fjölmargir starfsmenn og sjónarvottar nýttu sér áfallahjálp Rauða krossins í gær en þar á meðal er ökumaðurinn. Þeir sem kunna að tengjast málinu eru hvattir til að hafa samband við 1717. Margir aðstandendur og aðrir gestir voru á svæðinu enda 51 keppandi á mótinu. Engin hafi getað séð þetta fyrir „Það hefur aldrei orðið slys á starfsfólki hjá okkur. Við erum með þrjár til fimm keppnir á ári í þessu sporti. Það hafa aldrei áður orðið slys á starfsfólki en vissulega velta keppnisbílar á ákveðnum stöðum í brautinni en ekkert í líkingu við þetta,“ sagði Linda. „Í huga okkar allra er þetta mjög fjarstæðukenndur atburður. Að þetta hafi gerst og geti gerst. Eins og ég segi maður getur ekki komið í veg fyrir allt, maður gerir sitt besta. Þetta var algjörlega atburður sem enginn sá fyrir sér gerast og hefur aldrei komið nálægt því að gerast áður,“ segir Ari sem tekur fram að fyrsta viðbragð á vettvangi hafi verið til fyrirmyndar. „Hvernig allir brugðust við og hvernig allt var gert var upp á tíu. Það var ótrúlegt hvernig viðbragðið og fyrsta hjálpin sem þau fengu var. Við vorum með bráðaliða á staðnum sem hafa verið að sinna sportinu og síðan erum við með okkar eigin sjúkrafulltrúa. Hann sinnir fyrsta viðbragði á meðan beðið er eftir sjúkrabíl.“ Starfsmaður verið á staðnum í tuttugu ár Allt hafi verið eftir verklagi og allir starfsmenn á réttum stað í gær í aðdraganda slyssins. „Það er eiginlega bara ótrúlegt að þetta hafi gerst á þessum stað. Þar sem það hefur verið staðsettur starfsmaður þarna síðustu tuttugu ár.“ Hafið þið tekið einhverja ákvörðun varðandi næstu keppni? Hvort það verði starfsmaður staðsettur þarna? „Við bara höfum ekki komist í að ræða hlutina þar sem þetta gerðist bara í gær. Fyrst og fremst erum við að hlúa að okkur og starfsfólkinu. Við fengum áfallahjálp í gær enda mikið af tengdu fólki,“ sagði Linda. „Öryggismál í mótorsporti eru í stöðugri þróun og við erum alltaf að fara yfir og endurskoða ferla. Það verður farið vel yfir þetta og reynt sem allra mest að koma í veg fyrir að svona eða önnur slys gegn starfsfólki eigi sér stað,“ bætir Ari við. Linda ítrekar að slys í mótorsporti séu mjög fátíð hér á landi.
Hafnarfjörður Akstursíþróttir Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira