Flytja Emmessís í Grafarvog Árni Sæberg skrifar 3. september 2025 12:11 Starfsfólk Emmessís var kampakátt við skóflustunguna við Fossaleyni í Grafarvogi. Emmessís Á dögunum var tekin skóflustunga að nýjum höfuðstöðvum Emmessís við Fossaleyni í Grafarvogi í Reykjavík. Húsið verður 3.400 fermetrar að stærð og hýsir framleiðslu, dreifingu, vöruhús og skrifstofur. Samhliða mun fyrirtækið ráðast í umfangsmikla endurnýjun á framleiðslu -og frystibúnaði sínum.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að skóflustungan hafi verið tekin þann 27. ágúst síðastliðinn af Hermanni Þór Jónssyni, sem hafi verið starfsmaður fyrirtækisins í 47 ár. Það hafi hann gert með sérsmíðari ísskeið. Húsnæðið verði reist af fasteignafélaginu Kaldalóni og áætlað sé að flutningar hefjist í lok árs 2026. „Það er mikil tilhlökkun í loftinu kringum þetta spennandi verkefni. Nýju framleiðslutækin og frystibúnaðurinn verða bæði orkunýtnari og umhverfisvænni, auk þess sem framleiðslugeta okkar mun margfaldast. Í nýju höfuðstöðvunum ætlum við að skapa vistvænan vinnustað með frábæru vinnurými í fallegu umhverfi. Framtíðin er björt og við ætlum okkur að halda áfram að færa Íslendingum ís sem gleður allar kynslóðir!“ er haft eftir Kristjáni Geir Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Emmessís. Emmessís var stofnað árið 1960, en hefur verið í einkaeigu frá árinu 2007. Fyrirtækið er í dag í eigu 1912 ehf., sem er einnig móðurfélag Nathan & Olsen og Ekrunnar. Emmessís velti um 1,9 milljörðum króna árið 2024 og þar starfa tæplega 40 manns.
Matvælaframleiðsla Reykjavík Mest lesið Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Sjá meira