Óttar selur glæsiíbúð í Garðabæ Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 11. september 2025 14:44 Óttar festi kaupa á íbúðinni í mars í fyrra. Óttar Pálsson, hæstaréttarlögmaður og einn af eigendum lögfræðistofunnar Logos, hefur sett glæsilega íbúð við Löngulínu í Garðabæ á sölu. Íbúðin er á efstu hæð með fallegu sjávarútsýni. Ásett verð er 124,9 milljónir.
Óttar festi kaup á eigninni í mars í fyrra og greiddu 108 milljónir fyrir. Í maí á þessu ári festi hann kaup á 210 fermetra lúxusíbúð á sjöundu og efstu hæð í nýlegu húsi við Vesturgötu í Reykjavík, á svokölluðum Héðinsreit. Kaupverðið nam 320 milljónum króna. Íbúðin í Garðabæ er 115 fermetrar að stærð í húsi sem var byggt árið 2008 og hefur verið mikið endurnýjuð. Íbúðinni fylgir sérmerkt stæði í bílakjallara. Alrýmið, sem samanstendur af eldhúsi, borðstofu og stofu, er bjart og opið með gólfsíðum gluggum og 4,2 metra lofthæð sem gefur eigninni ákveðinn lúxusbrag. Á gólfum er fallegt viðarparket í fiskibeinamynstri en slíkt gólfefni hefur löngum verið tákn vandaðrar hönnunar og tímalausrar fegurðar. Uppruna þess má rekja til forna Rómaveldis og hefur mynstrið fest sig í sessi sem hluti af skandinavískri hönnun og talið tákn um fágun og glæsileika. Í eldhúsinu er dökk innrétting ásamt eyju með dökkum granítstein á borðum og upp á vegginn sem gefur rýminu dýpt og karakter. Samtals eru þrjú svefnherbergi og eitt baðherbergi. Nánari upplýsingar um eignina má nálgast á fasteignavef Vísis.
Fasteignamarkaður Hús og heimili Garðabær Mest lesið Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Lífið Dýra steikin á matseðlinum er ekki þarna til að seljast Áskorun Stafrænir bílstjórar aka bráðum Hringveginn Leikjavísir ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Lífið „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Lífið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Lífið Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell Lífið Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið Fleiri fréttir „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Sjá meira