Kynlífsmyndband í Ásmundarsal Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 18. september 2025 07:31 Ofurparið Miles Greenberg og Viðar Logi eru að opna sýninguna s*x tape í Ásmundarsal. SAMSETT „Ég er svo glaður að vera kominn aftur til Reykjavíkur. Það er ótrúlega verðmætt að fá að vera með sýningu hérna heima,“ segir listamaðurinn Viðar Logi Kristinsson sem hefur unnið náið með tónlistarkonunni Björk undanfarin ár. Hann og kærastinn hans Miles Greenberg eru að opna sýninguna s*x tape.
Grín sem þróaðist „Þetta er fyrsta almennilega samstarfsverkefnið okkar. Þegar okkur var boðið að setja upp sýningu saman í Reykjavík vissum við strax að okkur langaði ekki að gera eitthvað tilgerðarlegt. Við grínuðumst með að við gætum allt eins bara gefið út kynlífsmyndband og hugmyndin þróaðist þaðan. Sýningin er á sinn eigin hátt einhvers konar kynlífsmyndband frá okkur,“ segir strákarnir kímnir í samtali við blaðamann. Viðar Logi er fæddur árið 1995 og alinn upp í Dalvík. Hann er sjálflærður íslenskur listamaður búsettur í New York og vinnur þvert á ljósmyndun, vídeó og skúlptúr. Viðar Logi hefur komið víða við í listheiminum, fann með Björk á plötunni Fossora, var valinn á Forbes 30 undir 30 2024 og hefur sýnt verk á stórum söfnum víða um heiminn. View this post on Instagram A post shared by vidar logi (@vidarlogi) Miles Greenberg er fæddur árið 1997 og ólst upp í Montreal. Hann er gjörningalistamaður og skúlptúristi sem vinnur með líkamann í stórum og skynrænum innsetningum, oft með langvinnum gjörningum. Hann hefur sýnt á alþjóðavettvangi, í Louvre í París, Neue Nationalgalerie og Feneyjatvíæringnum og verið gestalistamaður hjá Palais de Tokyo í París og The Watermill Center. Árið 2023 var hann á lista Forbes 30 undir 30 í flokknum listir og menning. Alltaf elskað Ísland Hingað til hefur Viðar Logi oft myndað sinn heittelskaða en núna er komið að því að skapa saman. Strákarnir hafa verið saman í að verða fjögur ár og listin spilar veigamikið hlutverk í þeirra lífi. Sýningin opnar næstkomandi laugardag í Ásmundarsal.Aðsend Þetta er í annað sinn sem Miles sýnir á Íslandi en hann var með rosa myndbandsverk á hátíðinni Sequences fyrir nokkrum árum. „Þessi verk eru öll gerð í New York en ég er svo glaður að vera kominn aftur til Reykjavíkur. Það er ótrúlega verðmætt að fá að vera með sýningu hérna heima, sérstaklega í Ásmundarsal sem hefur frá upphafi verið einn af mínum uppáhalds sýningarsölum. Þegar við lentum í Keflavík leið mér eins og spenntum hundi sem gat ekki hætt að dilla skottinu,“ segir Viðar Logi og Miles tekur undir: „Mér þykir svo vænt um það að fá tækifæri til þess að sýna listina mína á stað sem hefur gefið mér svona mikið. Ég byrjaði að heimsækja Ísland fyrir ellefu árum síðan þegar ég var ennþá í gaggó í Montreal. Íslendingar hafa síðan þá verið stór hluti af mínu lífi. Landslagið, samfélagið og andinn hérna hafa mótað mig bæði sem listamann og einstakling. Ég byrjaði líka ungur að hlusta á tónlist frá Íslandi, skoða myndir og var með þráhyggju yfir tungumálinu ykkar.“ S*x tape opnar í Ásmundarsal næstkomandi laugardag klukkan 18:00.
Sýningar á Íslandi Myndlist Menning Íslendingar erlendis Mest lesið Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Bíó og sjónvarp „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Fleiri fréttir Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Sjá meira