Bjarni með tólf og KA vann meistarana Sindri Sverrisson skrifar 10. október 2025 21:09 KA-menn eru á meðal efstu liða í Olís-deildinni. Einar Birgir Stefánsson skoraði fimm mörk í kvöld. VÍSIR/VILHELM KA-menn gerðu góða ferð til Reykjavíkur og unnu Íslandsmeistara Fram í Úlfarsárdal, 32-28, í Olís-deild karla í handbolta, 32-28. HK vann ÍR í Kórnum, 30-28, í slag tveggja neðstu liðanna.
HK-ingar eru eftir sigurinn með fjögur stig, líkt og Fram og Þór, en ÍR-ingar sitja eftir á botninum með aðeins eitt stig úr fyrstu sex umferðunum. KA-menn eru aftur á móti í toppbaráttunni, með átta stig líkt og Haukar og Valur, tveimur á eftir toppliði Aftureldingar. Haukar eiga leik til góða við ÍBV í Eyjum á sunnudaginn. Samkvæmt tölfræði HB Statz var Bjarni Ófeigur Valdimarsson í algjöru aðalhlutverki í Úlfarsárdal í kvöld og skoraði 12 mörk úr 15 skotum, þar af tvö úr vítum, fyrir KA. Einar Birgir Stefánsson kom næstur með fimm mörk og Bruno Bernat varði 14 skot í marki KA. Hjá Fram er Þorsteinn Gauti Hjálmarsson mættur aftur og skoraði fimm mörk en úr 16 skotum, og Rúnar Kárason skoraði einnig fimm en úr 10 skotum. Leó Snær Pétursson var markahæstur HK-inga í sigrinum gegn ÍR með sjö mörk og Ágúst Guðmundsson skoraði fimm. Jökull Blöndal Björnsson var langmarkahæstur hjá ÍR með tíu mörk.
Olís-deild karla Mest lesið „Ef vængirnir eru úr vaxi þá bráðna þeir“ Fótbolti Sara Björk kveður Sádi-Arabíu Fótbolti Haukur mikilvægari en Gidsel Handbolti Uppgjörið: Breiðablik - KR 6-3 | Kennslustund í Kópavogi Íslenski boltinn Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Enski boltinn Viktor Bjarki dregur sig úr landsliðshópnum Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan - Fram 0-1 | Sigurmark Róberts færir Fram nær toppnum Íslenski boltinn „Sérstaklega sætt að vinna hér á KA vellinum“ Íslenski boltinn Víkingur R. - FH | Markaveisla í Víkinni Íslenski boltinn „Þetta small saman í kvöld“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Magnaður Einar Bragi með ellefu mörk í fyrsta úrslitaleiknum Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Færeyjar á HM í fyrsta sinn Strákarnir hans Dags unnu Svía Yngri bróðir Sagosen steig á svið er Noregur komst á HM Alfreð og hans menn fengu ekki að hefna sín neitt Egyptaland - Ísland 27-30 | Tveggja sigra ferð til Kaíró Dagur snýr heim úr atvinnumennsku „Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Dagur gat ekki stillt upp sínu sterkasta í tapi gegn Svíum Santos óskaði eftir starfslokum sem þjálfari Selfoss Egyptaland - Ísland 30-31 | Skoruðu síðustu fjögur mörkin og tryggðu sér sigur Tilkynntu komu Arnars til stórliðsins á meðan hann spilaði landsleik Gísli Þorgeir útskýrir fjarveru sína: „Ber ekkert nema virðingu fyrir landsliðinu“ HSÍ verður að fá pening frá ríkinu Sjá meira