Misvægi atkvæða bitnar mest á Kraganum Smári Jökull Jónsson skrifar 27. október 2025 22:02 Ólafur Þ. Harðarson er formaður starfshóps sem búið er að fela að undirbúa frumvarp til breytinga á kosningalögum. Vísir/Ívar Fannar Prófessor í stjórnmálafræði og formaður starfshóps sem vinnur að breytingu á kosningalögum segir misvægi atkvæða langmest hér á landi miðað við nágrannalönd. Hann segir áhyggjur landsbyggðarinnar eðlilegar.
Dómsmálaráðherra hefur stofnað starfshóp sem koma á með tillögur til breytinga á kosningalögum. Í tilkynningu stjórnarráðsins er haft eftir ráðherra að markmiðið sé að tryggja að atkvæði allra landsmanna vegi sem jafnast en það er í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Ólafur Þ. Harðarson prófessor í stjórnmálafræði við HÍ er formaður starfshópsins og hann segir kosningafyrirkomulagið hér á landi ósanngjarnt varðandi misvægi atkvæði eftir búsetu. Þróunin annars staðar sé að minnka misvægi atkvæða. „Í flestum nágrannalöndunum er lítið eða ekkert misvægi eftir búsetu, það er svolítið í Noregi en í nágrannalöndum er það langmest hér. Alþjóðlegar stofnanir hafa gert athugasemdir við misvægið hér hvað það er mikið,“ sagði Ólafur í viðtali í kvöldfréttum Sýnar. „Ein af þessum stofnunum er Fenyjarnefndin sem telur kannski eðlilegt að misvægið geti verið 10%, jafnvel 15% í undantekningatilfellum. Misvægið hjá okkur getur verið 100%.“ Kraginn fengi þingmenn frá landsbyggðinni Ef litið er til skiptingu þingmanna eftir kjördæmum þá sést að í landsbyggðarkjördæmunum þremur eru nú samtals 27 þingmenn, tíu í Norðausturkjördæmi, sjö í Norðvestur- og tíu í Suðurkjördæmi. Í kjördæmunum á höfuðborgarsvæðinu, Reykjavíkurkjördæmunum tveimur og Kraganum eru þingmenn samtals 36. Mun fleiri kjósendur eru á bak við hvern þingmann á Suðvesturhorninu en landsbyggðinni. Þingmönnum myndi fjölga í Suðvesturkjördæmi á kostnað Norðvestur- og Norðausturkjördæmanna.Grafík/Hjalti Ef fjöldi þingmanna í hverju kjördæmi væri í hlutfalli við íbúa breyttist staðan mjög. Í Kraganum myndi þeim fjölga um fimm en fækka í bæði Norðausturkjördæmi og Norðvesturkjördæmi. Rétt er þó að taka fram að samkvæmt stjórnarskrá geta þingmenn hvers kjördæmis aldrei verið færri en sex. „Kjósendur af landsbyggðinni íhaldssamari heldur en kjósendur á höfuðborgarsvæðinu“ Ólafi finnst þetta vera mannréttindamál og segir óeðlilegt að sumir kjósendur í landinu hafi eitt atkvæði og aðrir tvö. Hann segir áhyggjur landsbyggðar af nýju fyrirkomulagi eðlilegar en að ef menn vilji efla landsbyggðirnar sé best að vera með sérstakar áætlanir um það í gegnum löggjöf. „Hins vegar held ég að reynslan sýni nú ekki að of margir þingmenn af landsbyggðinni hafi dugað mjög vel til að tryggja hagsmuni landsbyggðarinnar, þannig að ég er ekki svo viss um að það muni neitt breytast. Það eru heildarhagmsunir landsins að hagsmuna landsbyggðarinnar sé gætt og til þess þurfa þeir ekki að hafa yfirvigt á þinginu.“ Að hans mati myndi jöfnun atkvæða hafa lítil eða engin áhrif á heildarfjölda þingmanna flokkanna. Hins vegar hafi misvægi atkvæða birst í að innan allra flokka séu of margir þingmenn af landsbyggðinni og sjónarmið íbúa landsbyggðarinnar og höfuðborgarsvæðisins séu ekki alltaf þau sömu. Það hafi sést í íslensku kosningarannsókninni og það séu mál sem komi byggðaskiptingu ekki við. „Til að mynda eru kjósendur af landsbyggðinni íhaldssamari heldur en kjósendur á höfuðborgarsvæðinu og það er auðvitað engin ástæða til að íhaldssamir kjósendur hafi meiri áhrif en fjöldi þeirra gefi til kynna.“ Stendur ekki til að leggja til breytingar á stjórnarskrá Auk markmiðsins að auka jafnræði í atkvæðavægi mun starfshópurinn skoða þingsætadreifingu sem og leiðir til að fækka atkvæðum sem falla niður dauð í kosningum. Bæði í kosningum 2013 og í desember síðastliðnum fór fjöldi dauðra atkvæða yfir 10%. „Þetta stafar af því að það er 5% þröskuldur og það stendur ekki til að breyta honum,“ sagði Ólafur en þröskuldurinn sem hann nefnir er sá að flokkar þurfa 5% atkvæða á landsvísu til að eiga rétt á jöfnunarþingmanni. Flokkar geta þó fengið kjördæmakjörinn þingmann þó fylgi á landsvísu nái ekki 5%. Stjórnarskrárbreytingar þarf til að breyta 5% viðmiðum en Ólafur segir að starfshópurinn muni skoða hvaða leiðir séu færar í þessum efnum með breytingu á kosningalögum. Telur alla sammála um að breyta „Svo er eitt atriði í viðbót sem við þurfum að leiðrétta í þessari vinnu og það er það að þingmannafjöldi flokkanna sé í réttu samræmi við atkvæðafjölda í landinu og ég held að allir séu sammála um að breyta þessu.“ Engin skekkja var hvað varðar fjölda þingmanna í síðustu kosningum en í fernum kosningum þar á undan fékk flokkur einum manni fleira heldur en hann hefði átt að fá ef skipt hefði verið eftir atkvæðahlutfölum. „Þessu er tiltölulega einfalt að breyta í kosningalögunum,“ segir Ólafur að lokum.
Kjördæmaskipan Stjórnarskrá Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Sjá meira