Höldum fast í auðjöfnuð Íslands Víðir Þór Rúnarsson skrifar 6. nóvember 2025 13:00 Við Íslendingar kvörtum mikið. Þrátt fyrir að við séum fremst þjóða á vísitölu mannlegrar þróunar viljum við alltaf gera betur. Þetta er einn okkar helsti styrkur. Þessi stöðugi þrýstingur um að bæta samfélagið hefur gert Ísland að einu jafnasta og best skipulagða landi heims. Þannig höfum við varðveitt einn af okkar dýrmætustu eiginleikum: auðjöfnuðinn. Auðjöfnuður mælir dreifingu eigna og skulda milli íbúa. Íslendingar skara þar fram úr; auður okkar er einna jafnast dreifður á heimsvísu. Ef jöfnuðurinn fer að dala, legg ég til að við gerum það sem við kunnum best – kvörtum hástöfum. Íslendingar eru ríkasta millistétt í heimi Ísland státar af stórri, sterkri millistétt — sú efnaðasta í heimi. Það merkir þó ekki að Ísland sé ríkasta land heims á mann; fimm þjóðir standa okkur þar framar. Okkur hefur tekist að skapa ríkt land með meiri auðjöfnuð en allar sambærilega auðugar þjóðir, og mestan jöfnuð meðal Norðulandaþjóða. Skoðum þessi gögn saman: Mynd 1: Miðgildi og meðaltal auðs (USD) per manneskju í völdum löndum (efstu fimm í miðgildi, Norðurlönd, Bandaríkin og Evrópusambandið) - Gögn frá "UBS Global Wealth Databook 2023 og 2024; Y-ás í BNA dollurum" Eins og sjá má er Ísland ekki ríkasta land í heimi, en miðgildið sýnir að meðal-einstaklingur í íslenskri millistétt á meira en jafningjar hans annars staðar. Það er sláandi að millistéttarmaður í næst ríkasta landi Norðurlanda, Danmörku, á rúmlega helmingi minni auð en sá íslenski — og í Svíþjóð minna en fjórðung. Það er ástæða til að fagna þessu, á milli þess sem við finnum ný málefni til að kvarta yfir. Jöfnuðurinn er ekki sjálfgefinn Þrátt fyrir að auðjöfnuður Íslands hafi haldist stöðugur síðan um aldamótin, er hann ekki sjálfgefinn. Danmörk og Svíþjóð eru góð dæmi um þjóðir þar sem þetta hefur mikið breyst á síðustu áratugum. Í Danmörku hefur tekjujöfnuður[2] minnkað á þessari öld um nær 25%. Á sama tíma hefur hins vegar auðjöfnuður í Danmörku aukist um ~9%. Í Svíþjóð er sagan næstum öfug. Tekjujöfnuður hefur minnkað um aðeins 9%, og er enn hærri en í allflestum löndum heims. Hinsvegar hefur auðjöfnuður lækkað um tæp 18%. Það kemur lesanda líklegast á óvart að samkvæmt nýjustu gögnum er ekkert land í Evrópu né í Norður-Ameríku með meiri ójöfnuð á auði en Svíþjóð. Aðeins 12 lönd státa nú af meiri ójöfnuði á auði, en þau má öll finna í Afríku og Miðausturlöndum auk Brasilíu. Þetta þýðir að sænska millistéttin hefur lítið á milli handanna, þrátt fyrir mikinn heildarauð. Stefna sem miðar eingöngu að tekjujöfnuði tryggir ekki endilega jafna eignadreifingu. Ójafn auður hefur afleiðingar En hefur millistétt Norðurlandanna hvort eð er ekki orðið mun ríkari á þessari öld, þrátt fyrir að auðurinn hafi skipts á færri hendur? Jú, auður millistéttar okkar og nágrannalanda hefur aukist til muna síðustu áratugi. En, ójöfn dreifing auðs er ekki aðeins siðferðilegt vandamál; hún hefur raunverulegar afleiðingar. Rannsóknir sýna meðal annars að hún[1]: 1. Dregur úr hagvexti: a. Þegar auður safnast á færri hendur dregur úr frumkvöðlastarfi og hagvexti. Aukning um eitt staðalfrávik í auðójöfnuði getur dregið úr hagvexti um allt að 17%. 2. Eykur kreppuhættu: a. Þegar auðshlutdeild ríkustu 1% eykst, aukast líkur á efnahagskreppu — þó með seinkuðum áhrifum. 3. Veikir tekjugrunn ríkisins: a. Auðugustu íbúar landa eru líklegri til að flytja fé erlendis og rýra þannig skattstofna 4. Ógnar lýðræði: a. Stór auður í höndum fárra eykur áhrif einkafjár á stefnumótun og upplýsingaflæði, eins og er auðséð í Bandaríkjunum. 5. Skapar ójöfn tækifæri og skerðir félagslegan hreyfanleika: a. Þegar auður erfist innan fárra fjölskyldna dragast tækifæri annarra saman, jafnvel þar sem aðgengi að menntun er jöfn. 6. Dregur úr heilsufarslegum árangri a. Þverþjóðlegar rannsóknir sýna að aukinn ójöfnuður tengist verri heilsufarsvísum (t.d., lægri lífslíkum), sérstaklega í ríkum löndum. Horfum til Dana frekar en Svía Við státum af ríkustu millistétt í heimi. Þessi grein er því ekki skrifuð með það að leiðarljósi að miklar breytingar þurfi að eiga sér stað hérlendis - aðallega urðu skrifin fyrir hendi því mér þótti gögnin um auðjöfnuð áhugaverð. Það er ekkert að því að geta orðið rík(ur), og öll hagkerfi þurfa að stuðla að því að einstaklingar sem skapa mikið virði fyrir sín samfélög séu verðlaunaðir fyrir slíkt. Þvert á móti vil ég að við fögnum núverandi stöðu. Á sama tíma er mikilvægt að muna að halda áfram að kvarta þegar það á við. Núverandi staða getur breyst á skömmum tíma. Eins og skýrt var að ofan er Svíþjóð með tiltölulega jafnar tekjur í sínu samfélagi, en misskipting auðs er mikil. Helstu ástæður þess eru: Lágir fasteignaskattar og þök sem hlífa dýrustu eignum; Fjármagnsvænt skattkerfi sem skattleggur laun hátt en fjármagn lágt; Enginn erfða- né gjafaskattur. Á Íslandi má sjá svipað mynstur. Við erum með lágan erfðafjárskatt (10%), flatan fjármagnstekjuskatt og stuðning sem gerir húseign að sérlega hagstæðu fjárfestingarskjóli. Aðgengi að lánsfé erfiðara og dýrara hér, sem bitnar óhlutfallslega á ungu fólki og þeim sem minna eiga. Við gætum því óafvitandi verið að feta í fótspor Svía, nema við stöndum vörð um jafnvægið. Við getum varið þetta jafnvægi, Danmörk sýnir það. Þeir hafa haldið í erfðafjárskatt, sleppt þökum á fasteignasköttum og tekið upp stigvaxandi fjármagnstekjuskatt (1993). Stefnumótun Dana hefur ekki aðeins stöðvað frekari misskiptingu auðs á þessari öld, en einnig tekist að draga aðeins úr. Höldum fast í auðjöfnuðinn Ég er stoltur af því að vera Íslendingur, og hef alltaf verið. Það eru ýmsar ástæður fyrir því að vera stoltur af okkar landi. Ein þeirra er að við kvörtum mikið, og þegar hlutirnir batna, finnum við nýja hluti til að kvarta yfir. Ein ástæðan er sú að á Íslandi er ‘Ameríski draumurinn’ á lífi. Auðjöfnuður og félagslegur hreyfanleiki er slíkur að við fæðumst öll með sambærileg tækifæri. Þetta er ekki hvatning til róttækra breytinga heldur áminning: staðan getur breyst hratt. Við erum rík þjóð, ekki vegna einstaklingsauðs, heldur vegna þess að velmegunin nær vítt. Við ættum því að halda í það sem hefur gert Ísland sérstakt: að kvarta þegar jöfnuðurinn versnar, að fagna þegar hann vex — og að muna að í kvörtuninni felst sjálft varnarkerfi lýðræðisins. Höldum fast í auðjöfnuð okkar allra. Höfundur er með M.sc. í Management Science & Engineering frá Columbia Háskóla í New York; Bachelor í Iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands; Diplóma í Alþjóðaviðskiptum frá Stanford Háskóla í Kaliforníu. Hann vann í átta ár hjá McKinsey & Company í Svíþjóð og Danmörku. Heimildir: UBS Global Wealth Report 2023, 2024 https://www.ubs.com/content/dam/assets/wm/global/insights/doc/global-wealth-report.pdf Steenbrink, R.; Skali, A. (2024). https://www.econstor.eu/bitstream/10419/289584/1/GLO-DP-1417.pdf econstor.eu Jakurti, E. (2025). https://wid.world/document/wealth-inequality-asset-price-bubbles-and-financial-crises-world-inequality-lab-working-paper-2025-01/ WID - World Inequality Database Alstadsæter, A.; Johannesen, N.; Zucman, G. (2019). https://www.aeaweb.org/articles?id=10.1257%2Faer.20172043 American Economic Association Rau, E. G.; Stokes, S. (2025). https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/39793070/ (PMCID: PMC11725924) PubMed Darvas, Z.; Midões, C. (2021). https://www.eurofound.europa.eu/en/publications/all/wealth-distribution-and-social-mobility Eurofound Katikireddi, S. V.; Niedzwiedz, C. L.; Dundas, R.; Kondo, N.; Leyland, A. H.; Rostila, M. (2020). https://pmc.ncbi.nlm.nih.gov/articles/PMC7394946/ PMC [1] Ótæmandi listi þar sem þetta er auðvitað ekki fræðigrein. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Gríðarlegur velferðarábati með upptöku evru Dagur B. Eggertsson Skoðun Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson Skoðun Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson Skoðun Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan Hafsteinn Einarsson Skoðun Neyðin kennir nöktum Íslendingi að spinna Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar Skoðun Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan Hafsteinn Einarsson skrifar Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir skrifar Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gríðarlegur velferðarábati með upptöku evru Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Neyðin kennir nöktum Íslendingi að spinna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Af hámarkshraða og pylsum Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir skrifar Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Vísindaferð í Brussel eða umsókn um aðild? Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Arnarnesvegur og varnaðarorð sem voru hunsuð Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Öryggisvottaðir leikvellir: Úlfur í sauðagæru Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber áfengið heim að dyrum? Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hugsjónir og hagsmunir fara saman Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Fótbolti og þjóðarmorð eiga ekki samleið Guðrún Sif Friðriksdóttir skrifar Skoðun Bikarveiðar í búningi atvinnurekstrar Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar harður andstæðingur ESB-aðildar í Noregi skipti um skoðun Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Undarleg stefna í umræðunni um ESB Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun MBA: Meðvirkni, bómullar- og aumingjavæðing Davíð Bergmann skrifar Sjá meira
Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson Skoðun
Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir Skoðun
Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson Skoðun
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun
Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar
Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson skrifar
Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson Skoðun
Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir Skoðun
Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson Skoðun
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun