Happy Hydrate seldi fyrir 302 milljónir Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 8. nóvember 2025 12:52 Arnar Gauti Arnarsson, öðru nafni Lil Curly, er einn eigenda Hydrate ehf. Vísir/Samsett Happy Hydrate seldi vörur fyrir rúmar 302 milljónir króna á síðasta ári. Um er að ræða tíföldun rekstrartekna frá árinu þar á undan en þrátt fyrir það var félagið rekið með tæplega 900 þúsund króna tapi.
Þetta kemur fram í ársreikningi Hydrate ehf. sem framleiðir og selur vörur undir vörumerkinu Happy Hydrate. Félagið hefur verið gagnrýnt fyrir að markaðssetja steinefnasaltsdrykki fyrir ung börn. Samkvæmt ársreikningnum kostaði tæplega 91 milljón að framleiða vörurnar, annar rekstrarkostnaður nam rúmri 161 milljón króna og laun og launatengd gjöld námu 28 milljónum. Rekstrarhagnaður félagsins á árinu nam 22 og hálfri milljón en milljón króna afskriftir, fjármagnsgjöld og gengismunur urðu til þess að hagnaðurinn varð að tapi. Vörubirgðir félagsins um síðustu áramót námu tæplega 55 milljónum króna og viðskiptakröfur upp á 17 milljónir. Við þetta bætist bíll og úr verða samanlagðar eignir upp á tæplega 74 milljónir króna. Í síðasta mánuði gagnrýndi hópur næringarfræðinga markaðssetningu félagsins á steinefnadrykkjum sem ætlaðir eru börnum. Í september kynnti Happy Hydrate inn steinefnahylki fyrir börn, „Hydration Kids“. Á vefsíðu fyrirtækisins segir að stikurnar séu ætluð börnum fjögurra ára og eldri. Í greininni bendir hópurinn á að utan á pakkningunni sem um ræðir séu ýmsir þættir taldir upp sem gætu stuðlað að því að börn þurfi aukin sölt, meðal annars svefn og leikur.
Verslun Drykkir Uppgjör og ársreikningar Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira