Sex drepnir í árásum á blokkir og orkuinnviði Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 8. nóvember 2025 20:34 Tveir létust þegar Rússlandsher hæfði íbúðarhús í Dnipro. EPA Minnst sex féllu í eldflauga- og drónaárásum Rússa á orkuinnviði og íbúðarhús í Úkraínu í dag.
Tveir létust og tólf særðust þegar Rússlandsher hæfði íbúðarhús í borginni Dnipro. Þá létust þrír í loftárás í Zaporizhzhia. Árásir voru gerðar á 25 stöðum hvaðanæva um Úkraínu, þar með talið í Kænugarði. Víða er rafmagns- og heitavatnslaust eftir árásirnar. Yulia Svyrydenko forsætisráðherra Úkraínu sagði í færslu á Telegram að herinn hefði unnið skemmdir á mikilvægum orkuinnviðum í Kænugarði, Karkív og Poltava. Breska ríkisútvarpið hefur eftir varnarmálaráðuneyti Rússlands að Rússlandsher hafi skotið niður 79 dróna frá Úkraínuher í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá úkraínska flughernum skaut hann níu eldflaugar og 406 dróna niður á sama tíma. Rússneskir ráðamenn segja árásir sínar á úkraínska orkuinnviði beinast að hernum en Úkraínumenn telja þær skýra aðför að fólkinu í landinu. Þá sé tilgangur þeirra að koma höggi á úkraínska hagkerfið. Volodimír Selenskí forseti Úkraínu segir árásirnar sýna fram á brýna þörf á áframhaldandi refsiaðgerðum vestrænna ríkja gagnvart Rússlandi. Greint var frá því í gær að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefði gert Ungverja undanskilda refsiaðgerðum vegna kaupa á rússneskri olíu í heilt ár. Péter Szijjártó utanríkisráðherra Ungverjalands sagði undanþáguna tryggja Ungverjum orkuöryggi.
Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Úkraína Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent Skafið og saltað Veður Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Erlent Fleiri fréttir Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Sjá meira