Sport

Sænska lands­liðið for­dæmt fyrir að aug­lýsa megrunar­lyf

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Frida Karlsson og félagar í sænska landsliðinu munu auglýsa danska lyfjafyrirtækið sem framleiðir Ozempic og Wegovy. 
Frida Karlsson og félagar í sænska landsliðinu munu auglýsa danska lyfjafyrirtækið sem framleiðir Ozempic og Wegovy. 

Sænska landsliðið í skíðagöngu hefur gert samstarfssamning við Novo Nordisk, fyrirtækið sem framleiðir sykursýkislyfið Ozempic og megrunarlyfið Wegovy. Eina besta skíðagöngukona sögunnar segir þetta ganga gegn öllu sem hún stendur fyrir. 

Danski lyfjaframleiðandinn mun auglýsa merki sitt á fatnaði landsliðsins á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu á næsta ári en þyngdarstjórnunarlyf hafa verið að ryðja sér til rúms í íþróttum að undanförnu, eftir virkilega góðar viðtökur á almennum markaði.

Greint var frá því nýlega að keppendur á Ólympíuleikunum í París hefðu notað slík lyf, sem eru ekki á bannlista alþjóða lyfjaeftirlitsins eins og er, og nú er sænska landsliðið í skíðagöngu komið í samstarf við framleiðandann.

„Þetta sendir slæm skilaboð, sérstaklega fyrir ungt íþróttafólk og fyrir fólk í íþróttum þar sem átraskanir eru algengar“ sagði ein besta skíðagöngukona frá upphafi, hin norska Therese Johaug.

„Ef ég hefði heyrt að hún væri að nota svona lyf“

Hún vill banna lyfin algjörlega frá íþróttum og segir ungt íþróttafólk sérstaklega móttækilegt fyrir slíkum auglýsingum.

„Ég man þegar ég var ung, þá leit ég mikið upp til Marit Björgen. Ef ég hefði heyrt að hún væri að nota svona lyf hefði ég auðvitað farið að efast um sjálfa mig“ sagði Johaug.

„Gengur gegn öllu sem ég stend fyrir“

Johaug vann til þrennra silfurverðlauna og einna bronsverðlauna fyrir hönd Noregs á heimsmeistaramótinu í fyrra en lagði þá skíðin á hilluna. Hún vonar að norska sambandið fari ekki sömu leið og það sænska í auglýsingamálum.

„Fólki er auðvitað frjálst að gera það sem því sýnist, en ég myndi aldrei keppa með þetta merki á búningnum. Þetta gengur gegn öllu sem ég stend fyrir. Þegar þú ert í landsliði ertu fyrirmynd fyrir yngri iðkendur og þetta er algjörlega rangt á alla vegu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×