„Salah talar bara þegar hann vantar nýjan samning“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. nóvember 2025 07:32 Mohamed Salah hefur ekki skorað eða lagt upp mark í síðustu þremur leikjum Liverpool. getty/Molly Darlington Jamie Carragher vill að Mohamed Salah gefi kost á sér í viðtöl nú þegar Englandsmeistarar Liverpool eiga í vandræðum.
Salah og félagar töpuðu 0-3 fyrir Nottingham Forest á laugardaginn og hafa tapað sex af síðustu sjö leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni. Carragher er orðinn þreyttur á þögn Salahs og vill að hann stígi fram fyrir skjöldu. „Eftir leikinn gegn Forest kom Virgil van Dijk í viðtal eins og hann átti að gera sem fyrirliði. Eftir öll þessi töp er það alltaf hann sem kemur fram og talar. Fyrirliðinn ætti að gera það en aðrir leikmenn ættu líka að gera það,“ sagði Carragher. „Fyrir ári var Salah ekki feiminn að tala um sína stöðu og að félagið hefði ekki boðið honum nýjan samning. Ég heyri Salah bara tala þegar hann er valinn maður leiksins eða vantar nýjan samning. Ég myndi vilja sjá Salah, sem einn af leiðtogum og goðsögnum Liverpool, stíga fram og tala fyrir liðið.“ Eftir frábært tímabil í fyrra þar sem hann var bæði marka- og stoðsendingahæstur í ensku úrvalsdeildinni hefur Salah ekki náð sömu hæðum í vetur. Wayne Rooney, markahæsti leikmaður í sögu Manchester United, gekk meira að segja svo langt að hvetja Arne Slot, knattspyrnustjóra Liverpool, til að setja Salah á varamannabekkinn. Liverpool er í 12. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með átján stig eftir tólf umferðir. Liverpool mætir PSV Eindhoven á Anfield í Meistaradeild Evrópu annað kvöld.
Enski boltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Fleiri fréttir Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Nottingham Forest - Arsenal | Gengið skelfilega að skora á þessum velli Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Sjá meira