Fótbolti

Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Banda­ríkjunum

Sindri Sverrisson skrifar
Sveindís Jane Jónsdóttir í baráttunni við Yazmeen Ryan í sigrinum á Denver Summit í nótt.
Sveindís Jane Jónsdóttir í baráttunni við Yazmeen Ryan í sigrinum á Denver Summit í nótt. Getty/Timothy Hurst

Sveindís Jane Jónsdóttir er á miklu flugi með liði Angel City í bandarísku úrvalsdeildinni í fótbolta og hún átti stóran þátt í frábærum 3-2 útisigri gegn Denver Summit í nótt.

Angel City lenti 2-0 undir eftir 18 mínútur en Sveindís nýtti hraðann sinn vel þegar hún minnkaði muninn með marki á 32. mínútu sem sjá má hér að neðan.

Mark Sveindísar markaði upphaf endurkomu Angel City sem náði að komast yfir áður en fyrri hálfleik lauk með mörkum frá Taylor Marie Suarez og Ally Sentnor. Engin mörk voru svo skoruð í seinni hálfleiknum og Angel City fagnaði sætum sigri.

„Ég elska þetta lið. Við gefumst aldrei upp og við lögðum líf og sál í þetta í dag,“ sagði Sveindís samkvæmt The Sporting Tribune.

Sveindís og stöllur hennar hafa nú spilað heila átta leiki í röð án þess að tapa og hreinlega flogið upp stigatöfluna. Liðið er núna í 5. sæti þegar aðeins tvær umferðir eru eftir af deildarkeppninni, með 46 stig og aðeins stigi á eftir Kansas City.

„Horfum bara upp á við“

Átta efstu liðin komast í úrslitakeppnina, sem er útsláttarkeppni, og er Angel City nánast búið að tryggja sér sæti þar. Það er ekki síst Sveindísi að þakka sem nú hefur skorað níu mörk og er markahæst í liðinu auk þess að hafa átt þrjár stoðsendingar.

„Við verðum að vinna næstu tvo leiki. Við viljum komast eins hátt og hægt er. Við horfum bara upp á við. Við vitum ekki hvað er fyrir neðan okkur svo við viljum vinna þessa síðustu tvo leiki og reyna að fá heimaleik í úrslitakeppninni,“ sagði Sveindís með augun á fjórða sætinu.

Úrslitakeppnin fer fram í nóvember og eftir hana flýgur Sveindís yfir Atlantshafið til að spila með Íslandi í leikjunum tveimur við Portúgal um sæti á HM í Brasilíu. Fyrri leikurinn er áætlaður þriðjudaginn 1. desember í Portúgal en sá seinni laugardaginn 5. desember á Laugardalsvelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×