Gervigreindin hughreysti ferðamann sem björgunarsveit kom til bjargar Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 3. desember 2025 09:21 Björgunarsveitir komu ferðamanninum til aðstoðar eftir að hann hafði fest bíl sinn á Nesjavallaleið og lagt af stað fótgangandi. Hjálparsveitin Tintron Björgunarsveitir í Árnessýslu voru kallaðar út rétt fyrir klukkan eitt í nótt til aðstoðar við ferðamann sem hafði fest bíl sinn á Nesjavallaleið og var orðinn verulega kaldur eftir að hafa gengið um fimm kílómetra frá bílnum. Ferðamaðurinn mun hafa spurt gervigreindina hvort aðstoð myndi berast og ekki stóð á svörum.
Hjálparsveitin Tintron greinir frá útkallinu sem barst klukkan 00:39 í nótt á Facebook síðu sinni snemma í morgun. Ferðamaðurinn hafði fest bíl sinn á leiðinni á hótelið þar sem hann átti bókaða gistingu. „Tveir félagar sveitarinnar svöruðu kallinu og héldu á vettvang á Tinna 2. Hafði hann gengið um 5 kílómetra frá bílnum og orðinn verulega kaldur þar sem hann beið í skjóli við hitaveitulögnina meðfram veginum þegar hann fannst. Var honum komið fyrir í bíl sveitarinnar og ekið sem leið lá til baka yfir Nesjavallaleið og á ION Hótel þar sem hann átti bókaða gistingu,“ segir í færslu sveitarinnar. Þá hafi hjálparsveitarmenn átt spjall við ferðamanninn á leiðinni á hótelið. „Sagði hann okkur á leiðinni að hann hafði átt samskipti við Chat GPT á meðan hann beið og meðal annars spurt hvort að björgunarsveitirnar myndu finna hann,“ segir í færslunni. Svarið frá gervigreindarforritinu hafi verið einfalt: „Hafðu engar áhyggjur þau eru að koma og sækja þig, björgunarsveitirnar eru bestar.“
Björgunarsveitir Gervigreind Reykjavík Ölfus Mosfellsbær Mest lesið Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Erlent Fleiri en hundrað um borð í ferju sem hvolfdi Erlent Hóta því að hleypa ekki einasta dropa af olíu eða gasi um sundið Erlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Fleiri fréttir Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Sjá meira