Miðflokkurinn ekki undirritað siðareglur og mæting þingmanna sögð frjálsleg Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 10. desember 2025 11:21 Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, kallar eftir því að þingmenn mæti betur á fundi. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir kveðst stolt af því að Miðflokkurinn hafi ekki undirritað siðareglur. Vísir/Samsett Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, skorar á þingmenn að líta í eigin barm og rækta skyldur sínar gagnvart þinginu. Hún brást við umræðu stjórnarandstöðu um siðareglur Alþingis með því að benda á að ekki hafi allir þingmenn skrifað undir siðareglurnar auk þess sem hún vill meina að mætingu þingmanna á nefndarfundi sé ábótavant. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, segist stolt af því að þingflokkurinn sem hún tilheyrir hafi ekki skrifað undir siðareglur þingsins.
Formaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins gerðu siðareglur Alþingis að umræðuefni í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í gær og kölluðu eftir afstöðu forsætisráðherra um það hvort hún teldi nýleg ummæli stjórnarliða standast siðareglur. Ása Berglind brást við þeirri umræðu í ræðu sinni um störf þingsins í dag. „En nú er það svo að alþingismönnum ber ekki skylda til þess að undirrita siðareglur þingmanna. Og ég veit ekki betur en að hér sé heill þingflokkur sem kaus einmitt að sleppa því við upphaf þessa kjörtímabils,“ sagði Ása Berglind í ræðu sinni, en nefndi þó ekki neinn flokk á nafn. Muni aldrei undirrita siðareglur Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, nýtti þó sína ræðu um störf þingsins til að upplýsa að hún væri stolt af því að þingflokkur hennar hafi ekki undirritað siðareglurnar. „Ég get upplýst um það að það er þingflokkur Miðflokksins. Og mikið var ég ánægð og í raun og veru stolt í þessari viku að við hefðum ekki undirritað þessar siðareglur. Og ég mun ekki undirrita þessar siðareglur á mínu kjörtímabili hér. Af hverju? Vegna þess að ég held að það hafi bara allir séð í liðinni viku að þetta er tæki fyrir meirihlutann til að berja á minnihlutanum. Það er það sem siðareglurnar eru, ekkert annað. Þess vegna bara segi ég, ég er stolt af því að hafa ekki undirritað þetta,“ sagði Nanna Margrét. Frjálsleg mæting á nefndafundi Ása Berglind gerði mætingu þingmanna á nefndarfundi einnig að umræðuefni. „Hins vegar er þingmönnum skylt að sækja alla þingfundi nema nauðsyn banni, þar á meðal nefndafundi. Það hefur vakið athygli mína frá því að þing var sett í febrúar og á þessum tíma sem liðinn er síðan þá, hversu frjálslega margir þingmenn í þessari virðulegu stofnun líta fram hjá þeirri skyldu sinni. Sérstaklega í nefndunum sem eru annars mjög fyrirferðarmiklar í störfum okkar þingmanna,“ sagði Ása, en ummælunum var ekki beint sérstaklega að neinum flokki. Það sé í gegnum nefndastörfin sem þingmenn rýni viðfangsefnin, hlusti á sjónarmið umsagnaraðila og vegi og meti ólíka hagsmuni. „Það er inni í nefndum sem mesta vinnan fer fram, langoftast í mesta bróðerni, ólíkt því sem á sér stað hér í þessum stól, sem minnir mig stundum meira á leikhús heldur en virðulega löggjafarsamkomu,“ sagði Ása. Vissulega sé það svo að stundum þurfi þingmenn að gegna störfum á erlendri grundu á vegum þingsins, en það skýri ekki skort á mætingu í öllum tilfellum. „Mig langar því að nota tækifærið og hvetja þau sem láta sig heiður Alþingis varða að líta í eigin barm. Við erum á blússandi háum launum að vinna eitt af mikilvægustu störfum þessa lands, sem við vorum lýðræðislega kjörin til að sinna. Sýnum starfi okkar virðingu með því að rækta skyldur okkar, koma fram við hvort annað og ekki síst fólkið í landinu af virðingu,“ sagði Ása.
Alþingi Samfylkingin Miðflokkurinn Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Sjá meira