Holland áfram í undanúrslit og mætir Noregi Aron Guðmundsson skrifar 10. desember 2025 18:43 Hollenska landsliðið hefur spilað frábærlega til þessa á HM en verkefnið sem bíður þeirra í undanúrslitum mótsins er af stærri gerðinni. Vísir/Getty Gestgjafar Hollands eru komnir áfram í undanúrslit HM kvenna í handbolta. Þetta varð ljóst eftir fimm marka sigur liðsins á Ungverjalandi í dag, lokatölur þar 28-23.
Liðin mættust í átta liða úrslitunum í Rotterdam fyrr í dag í leik sem þær hollensku leiddu nær allan tímann. Liðið hefur verið að spila býsna vel á mótinu til þessa og hefur unnið alla leiki sína. Mest komst Holland í átta marka forystu um miðbik seinni hálfleiks en unnu að lokum fimm marka sigur. Dione Housheer var markahæst í liði Hollands í dag með átta mörk og þá gaf hún fimm stoðsendingar, frábær leikur hjá henni. Yara Ten Holte átti svo stórleik í marki hollenska liðsins með góða vörn fyrir framan sig. Hún varði fimmtán skot og var með markvörslu upp á 40,5 prósent. Í undanúrslitum fá þær hollensku risavaxið verkefni þar sem þær munu mæta norska landsliðinu sem hefur gjörsamlega valtað yfir andstæðinga sína á mótinu til þessa. Norska landsliðið þykir líklegast til þess að fara alla leið á mótinu en liðin eru bæði taplaus fyrir leikinn í undanúrslitum sem verður spilaður í Rotterdam í Hollandi á föstudaginn kemur.
HM kvenna í handbolta 2025 Mest lesið „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ Sport Ísland - Króatía 5-0 | Íslensk einstefna á Laugardalsvelli Fótbolti Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti Atlético yfir í 89 mínútur og raunir United-manna aukast Fótbolti Hákon og félagar máttu sín lítils þegar ensku meistararnir skiptu um gír Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Handbolti Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Handbolti Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Íslenski boltinn Konurnar komu Íslandi upp um deild í Bakgarðshlaupum Sport Fleiri fréttir Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum Sjá meira