Vangreiðslugjald orð ársins 2025 Magnús Jochum Pálsson skrifar 19. desember 2025 10:30 Skilti frá Parka þar sem fólk er minnt á að greiða samdægurs, annars leggist viðbótargjald á sektina - vangreiðslugjald. Vísir/Vilhelm Árnastofnun hefur valið orðið vangreiðslugjald sem orð ársins í ár. Um er að ræða gjald sem bílastæðafyrirtæki innheimta þegar ekki er greitt fyrir gjaldskylt bílastæði innan tiltekins tímaramma. Önnur orð sem komu til greina voru tollastríð, fjölþáttaógnir, gímald, kjarnorkuákvæði, frelsisfloti, ofbeldisvandi og vók/vókismi.
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum hefur frá árinu 2018 valið orð ársins á grundvelli gagna sem stofnunin safnar um málnotkun jafnt og þétt allt árið. Árið 2022 var orðið innrás valið, þar á eftir orðið gervigreind og svo í fyrra varð hraunkæling fyrir valinu. „Við valið er tölfræðilegum aðferðum beitt til að greina þau orð sem eru áberandi í málinu og velja úr orð sem koma til greina. Með hliðsjón af þessum gögnum er síðan orð ársins ákveðið,“ segir um aðferðafræðina í tilkynningu frá Árnastofnun. Önnur orð sem komu til greina við val á orði ársins voru: tollastríð, fjölþáttaógnir og fjölþáttaárásir, gímald, kjarnorkuákvæði, skuggafloti og frelsisfloti, ofbeldisvandi, gervigreindarkapphlaup, virðismat og vók/vókismi. Orðið vangreiðslugjald hefur verið áberandi í tengslum við umræðu um bílastæðamál og var réttmæti gjaldsins umdeilt. Um er að ræða gjald sem bílastæðafyrirtæki innheimta þegar ekki er greitt fyrir gjaldskylt bílastæði innan tiltekins tímaramma. Ef greiðsla berst ekki innan tilskilins tíma er rukkun send til skráðs eiganda ökutækisins og vangreiðslugjaldið leggst ofan á stöðugjaldið. „Þótt orðið vangreiðslugjald sé tiltölulega nýtt má finna það í fréttum um bílastæðamál á árunum 2011 og 2018. Orðið vangreiðsla er þó ekki nýtt en er algengara í lagamáli en almennu máli. Í Íslenskri nútímamálsorðabók er vangreiðsla skýrt sem ’of lág greiðsla’,“ segir í tilkynningu Árnastofnunar.
Íslensk tunga Bílastæði Skattar, tollar og gjöld Fréttir ársins 2025 Mest lesið Hvað veistu um… textana hans Bubba? Lífið Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Gagnrýni Sögufrægt verslunarhús til sölu Lífið Lúpína verði fyrsta stopp fyrir veisluna eða afmælið Tíska og hönnun Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Lífið Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi Lífið Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lífið Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Lífið samstarf Fjórtán manns hita upp fyrir Mos Def í Gamla bíó Tónlist „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Lífið Fleiri fréttir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira