Fulltrúi ICE skaut konu til bana í Minneapolis Agnar Már Másson skrifar 7. janúar 2026 19:10 Blóðugur hauspúði úr bíl 37 ára konunnar sem skotin var til bana. ICE segir konuna hafa reynt að aka yfir fulltrúa sinn þegar þeir sátu um bíl hennar. AP Fulltrúi ICE, innflytjendaeftirlits Bandaríkjanna, skaut 37 ára konu til bana í Suður-Minneapolis í Minnesota í dag er hún sat á bak við stýri í bíl sínum. Í yfirlýsingu segir eftirlitið að fulltrúinn hafi óttast um líf sitt. „Drullið ykkur úr Minneapolis,“ segir borgarstjóri Minneapolis við ICE. Hvíta húsið kallar bæjarstjórann skítseiði.
Emily Heller sjónarvottur lýsir því við ríkisútvarp Minnesota, MPR, að hún hafi séð fulltrúann skjóta konuna nokkrum sinnum. Heller segist hafa vaknað í morgun við læti fyrir utan húsið sitt og séð bíl stöðva umferð við Portland Avenue, sem virðist vera gert í mótmælum við aðgerðir ICE í götunni en Heimavarnaráðuneyti Bandaríkjanna ræsti í gær út tvö þúsund ICE-liða til tvíburaborganna Minneapolis og Saint Paul. BREAKING: New video captures the ICE-involved shooting in Minneapolis, Minnesota.Homeland Security claimed a woman was shot dead by ICE after trying to run over officers during an operation. pic.twitter.com/aGPxCHM0Pv— AZ Intel (@AZ_Intel_) January 7, 2026 Heller segir að ICE-liðarnir hafi sagt konunni sem sat í bílnum að koma sér burt. Að sögn lögreglu var konan ein í bílnum. „Hún var að reyna að snúa við og ICE-fulltrúinn var fyrir framan hana. Hann tók út byssu og setti hana beint framan í hana — þindin hans var á stuðaranum og hann teygði sig þvert yfir húddið — og skaut hana í andlitið svona þrisvar, fjórum sinnum,“ sagði Heller við ríkisútvarp Minnesota. Blóðugur hauspúði úr bíl konunnar.AP Svo virtist að konan hafi gefið í og ekið um hundrað fet áður en hún rakst á staur og önnur faratæki, þar sem hún lá síðan bogin inni í bílnum. Another angle of the ICE-involved shooting in Minneapolis, Minnesota.A woman, a U.S. citizen, was shot and killed. pic.twitter.com/xLoKBQIh3i— AZ Intel (@AZ_Intel_) January 7, 2026 „Óeirðaseggur“ hafi vopnvætt bílinn og ICE svarað með „varnarskoti“ Heimavarnarráðuneytið heldur því fram að konan hafi reynt að aka yfir fulltrúa ICE þegar hún var skotin til bana. „Ofbeldisfluttur óeirðarseggur“ hafi „vopnvætt“ ökutæki sitt og ICE-liðar svarað með „varnarskotum“, hefur NBC eftir talsmanni ráðuneytisins. Frey: I have a message for ICE: Get the fuck out of Minneapolis pic.twitter.com/duQbqd5bTi— Acyn (@Acyn) January 7, 2026 Donald Trump Bandaríkjaforseti lét ræsa út hundruð ICE-fulltrúa víða um Bandaríkin sem hafa í auknum mæli beitt hörku við handtökur á innflytjendum að því er NBC greinir frá. „Drullið ykkur úr Minneapolis“ „Til ICE: Drullið ykkur úr Minneapolis,“ sagði Jacob Frey borgarstjóri á blaðamannafundi í dag. Hann staðfesti að konan væri 37 ára. „Ykkar yfirlýsta ástæða fyrir því að vera hér er að skapa öryggi, en þið eruð að gera algjöra andstæðuna við það. Það er verið að hrella íbúa sem hafa búið í Minneapolis í langan tíma [...] og nú er einhver látinn. Það er á ykkar ábyrgð. Það er einnig á ykkar ábyrgð að fara.“ Vopnaðir lögreglumenn við götuna.AP Hann sagði að ríkisstjórnin væri með aðgerðum sínum síðustu mánuði að reyna að eggja yfirvöld í ríkinu til þess að bregðast svo að ríkisstjórnin teldi sig hafa ástæðu til að bregðast við með herafli. „Þau vilja afsökun til að koma inn og sýna þess konar afl sem býr til meiri óreiðu og meiri þjáningu. Við skulum ekki leyfa þeim það,“ bætti Frey við. Trump regime ICE troops murdered a US citizen, a woman in Minneapolis. She was shot point blank in the face according to witnesses. Footage shows her drive away as an ICE trooper shoots into her car window, causing her car to lose control. pic.twitter.com/ASz7lWS9y2— Anonymous (@YourAnonCentral) January 7, 2026 Hvíta húsið: Borgarstjórinn er skítseiði Hvíta húsið brást illa við þessum ummælum. „Jacob Frey, borgarstjóri Minneapolis, segir að hetjurnar í ICE, sem hafa úthýst fjölda glæpamanna af götum Minneapolis, „séu ekki hér til að auka öryggi í borginni í þessari borg“,“ segir í yfirlýsingu Hvíta hússins samkvæmt BBC. „Þetta skítseiði ætti að skammast sín,“ bætir Hvíta húsið, æðsta stofnun Bandaríkjanna, við í yfirlýsingunni. Blóðugur hauspúði úr bíl konunnar.AP Rúmlega fimm ár frá morðinu á George Floyd Íbúar í Minneapolis bera lögregluyfirvöldum ekki ávallt fagra söguna. Eins og frægt er orðið var blökkumaðurinn George Floyd myrtur af hvítum lögreglumanni í borginni sem var að handtaka hann vegna gruns um að hafa borgað með fölsuðum seðli. Lögreglumaðurinn, er nefnist Derek Chauvin, þrýsti hné sínu á háls Floyd þar til hann lést. Upp úr þessu spratt bylgja mótmæla víða um Bandaríkin sem kennd voru við Black Lives Matter en víða spunnust mótmælin svo út í óreiðir, ekki síst í Minneapolis. Minniháttar mótmæli hafa nú brotist út við vettvang lögregluaðgerðarinnar í dag.
Bandaríkin Donald Trump Innflytjendarassíur ICE í Bandaríkjunum Mest lesið Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Erlent Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Innlent Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Erlent Áfengisbann í París um helgina Erlent Fleiri fréttir Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Sjá meira