Enn mótmælt í Íran og átök að aukast Samúel Karl Ólason skrifar 8. janúar 2026 11:42 Mótmæli eru sögð hafa farið fram í 111 borgum og bæjum Íran, vísðvegar um landið. AP Víða í Íran kom til átaka milli mótmælenda og öryggissveita klerkastjórnarinnar. Umfangsmikil mótmæli hafa átt sér stað í landinu undanfarnar tæpar tvær vikur en útlit er fyrir að tíðni átaka sé að aukast.
Umfangsmikil mótmæli hafa verið nokkuð tíð í Íran á undanförnum árum en þau hafa iðulega snúist um að mótmælendur hafi viljað aukið frelsi frá klerkastjórninni. Að endingu hafa mótmælin oft verið kveðin niður með miklu harðræði. Rætur mótmælanna má að þessu sinni að langmestu rekja til mjög slæms efnahagslegs ástands í Íran. Gjaldmiðill Íran hefur hríðfallið í virði undanfarið ár, verðlag hefur hækkað mjög þar sem verðbólga mælist fjörutíu prósent og aðstæður almennings hafa versnað til muna. Eins og fram kemur í grein Al Jazeera má rekja dræma stöðu hagkerfis Íran til bæði umfangsmikilla refsiaðgerða en einnig slæmrar meðhöndlunar stjórnvalda á efnahagsmálum. Hingað til hefur ríkisstjórn Íran þó ekki brugðist við með hefðbundnum hætti. Masoud Pezeshkian, forseti, þykir umbótasinni en hann hefur talað fyrir rétti fólks til að mótmæla með friðsömum hætti og er hann sagður hafa skipað innanríkisráðuneytinu að eiga í samskiptum við mótmælendur og hlusta á áhyggjur fólks. Hvort það viðhorf endist með tilliti til þess að átök milli mótmælenda og öryggissveita virðast vera að aukast á eftir að koma í ljós. Grjótkast og skothríð BBC hefur eftir mannréttindasamtökum að vitað sé til þess að mótmæli hafi átt sér stað í að minnsta kosti 111 borgum og bæjum í öllum héruðum Íran. Í þessum mótmælum er talið að að minnsta kosti 34 mótmælendur og fjórir meðlimir öryggissveita hafi dáið. Rúmlega 2.200 mótmælendur eru sagðir hafa verið handteknir. Víða mun hafa komið til átaka í gær en fréttaveitan FARS, sem tengist Byltingarverði Íran, segir tvo lögreglumenn hafa verið skotna til bana í suðvesturhluta landsins. Í frétt BBC segir að myndbönd frá nokkrum mótmælum sýni mótmælendur kasta grjóti að öryggissveitum og að löggæslumenn virðist svara með því að skjóta á hópa mótmælenda og beita táragasi. Ali Khamenei, æðstiklerkur Íran.AP/Skristofa æðstaklerksins Pezeshkian er þó sagður hafa gefið ríkisstjórn sinni þá skipun í gær að fara ekki í hart gegn friðsömum mótmælendum. Það sama eigi ekki við um vopnaða mótmælendur og óeirðarseggi. Ali Khamenei, æðstiklerkur Íran og valdamesti maður landsins, er sagður hafa slegið á svipaða strengi. Það gæti spilað inn í ákvörðun yfirvalda í Íran að með því að beita mótmælendur harðræði gæti leitt til árása frá Bandaríkjunum. Háttsettir stjórnmálamenn þar í landi hafa gefið til kynna að loftárásir komi til greina, beiti yfirvöld ofbeldi gegn mótmælendum. Þeirra á meðal er Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sem sagði á dögunum að hann myndi grípa inn í, ef friðsæmir mótmælendur yrðu drepnir.
Íran Mótmælaalda í Íran Donald Trump Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira