„Erum búnir að sjá þetta milljón sinnum“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 8. janúar 2026 21:53 Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stjörnunnar. Vísir/Hulda Margrét Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stjörnunnar, gat andað léttar eftir óþarflega nauman sigur sinna manna gegn Valsmönnum í kvöld.
Stjarnan náði mest 27 stiga forskoti í 3. leikhluta, en þurfti að verja forskotið undir lokin og vann að lokum nauman þriggja stiga sigur, 102-105. Baldur var sammála því að sigurinn hafi verið óþarflega naumur. „Auðvitað finnst manni það, en svona er bara þessi körfubolti. Þú spilar vel og býrð til forystu og annað hvort leggst hitt liðið niður eða kemur til baka. Valsliðið kom til baka í kvöld. Það er bara eins og það er,“ sagði Baldur í leikslok. Hann segir að sínir menn hafi spilað virkilega vel í um það bil 25 mínútur í kvöld. „Við vorum bara þéttir varnarlega og Valsmenn áttu í vandræðum með að komast inn í eitthvað. Það var kannski þannig sem við stjórnuðum leiknum, með góðum varnarleik.“ „Svo bara breytist dýnamíkin í leiknum og þeir fara að skora rosalega mikið og þá verður þetta svona.“ Hann vildi þó ekki meina að hans menn hafi farið á taugum um leið og illa fór að ganga. „Nei, það er bara svona sem þessi leikur er. Við erum búnir að sjá þetta milljón sinnum í körfubolta. Annað liðið leiðir og hitt liðið kemur til baka. Annað liðið sækir rosalega aggressívt, af því að aðstæðurnar eru þannig að það þarf að sækja, og hitt liðið verður passívt. Við munum sjá þetta milljón sinnum í viðbót.“ Að lokum segir hann að það sé ýmislegt sem hans menn geti tekið með sér úr þessum leik í kvöld í næsta leik, sem er gegn Grindavík í bikarnum. „Við tökum með okkur varnarleikinn úr fyrri hálfleik, sem var frábær. Líka bara sóknarleikinn úr fyrri. Svo tökum við líka alls konar úr því þegar Valsmenn voru góðir og reynum að fikta eitthvað í því. Ákvarðanatöku og fleira til að ná að klára leiki með meiru en þremur stigum þegar við erum komnir 27 stigum yfir,“ sagði Baldur að lokum.
Bónus-deild karla Valur Stjarnan Mest lesið Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Körfubolti Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Sara Björk snýr heim í Hauka Íslenski boltinn Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri Fótbolti Fleiri fréttir Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Sjá meira